Síða 1 af 1

Rangt minniskort í myndavélarauf

Sent: Mið 01. Jan 2025 13:20
af falcon1
Sælir félagar og gleðilegt nýtt ár.

Ég gerði ótrúlega heimskan hlut í nótt og ég var ekki einu sinni fullur. Aðalmyndavélin mín notar CFexpress kort en varavélin SD kort og ég var búinn að taka fullt af myndum (á báðar vélar) og svona og var að setja yfir í tölvuna. Svo þegar það var búið ætlaði ég að setja CFexpress kortið í aðalvélina en tók óvart SD kortið og gerði mér ekki grein fyrir því fyrr en ég missti það ofan í CFexpress raufina og þar er það núna fast.

Fólk er að benda mér á að nota flísatöng en ég þori nú ekki að nota eitthvað úr járni nálægt þessu. Er hægt að fá flísatöng úr plasti eða einhverju sem er ekki hætta á að steiki vélina?

Re: Rangt minniskort í myndavélarauf

Sent: Mið 01. Jan 2025 16:14
af olihar
Það ætti ekki að vera erfitt að ná kortinu úr, bara taka um endan og draga það út.

Mín vél tekur bæði, snýrð þeim bara í sitthvora áttina.

Re: Rangt minniskort í myndavélarauf

Sent: Mið 01. Jan 2025 19:13
af rostungurinn77
Snúa henni á hvolf og hrista.

Kannski pota í kortið með mjúku efni þangað til það snýr rétt.

Re: Rangt minniskort í myndavélarauf

Sent: Mið 01. Jan 2025 19:48
af falcon1
Þetta reddaðist með flísatöng (tók batterýið úr). Myndavélin í góðu lagi. :)