Síða 1 af 1

Vantar hjálp við talstöð.

Sent: Mán 28. Nóv 2016 00:27
af ingibje
Sælir, mig langaði að athuga hvort einhver gæti sagt mér hvernig á að stilla talstöðvar inn á rétta tíðni.

Ég er algjör nýgræðingur í talstöðvum og veit eiginlega ekki hvert ég á að leita með þetta.

enn vandamálið er þannig að fyrirtækið sem ég er hjá er með rás sem það borgar fyrir og eru 3 talstöðvar tengdar inn á rásina.

ég á talstöð sem er með sömu tíðnisvið og hinar 3, mig langar að tengja hana við hinar 3.

þegar ég læt nýju talstöðina leita af stöð þá dett ég inn á rásina sem hinar 3 eru, enn heyri ekki neitt, nema smá hljóð rétt á meðan ég ýti á takkan á talstöðnni.

veit einhver hvar ég get aflað mér upplýsingar um þessi talstöðvarmál eða hvert ég gæti leitað til að fá að borga manni til setja upp talstöðvar fyrir mig?

félagi minn var að kaupa hluti hjá fyrirtæki í þessum bransa og spurðist fyrir um hvernig maður færi að tengja talstöð inn á sína tíðni og það var svaka ræða sem hann fékk á sig með hótunum um að menn væru bara kærðir fyrir gera þetta sjálfir, ég bara skil þetta ekki.

Re: Vantar hjálp við talstöð.

Sent: Mán 28. Nóv 2016 10:02
af BO55
Mæli með að þú talir við hann Ásgeir hjá Friðrik A. Jónsson, faj.is. Hann veit allt um talstöðvar.

Re: Vantar hjálp við talstöð.

Sent: Mán 28. Nóv 2016 13:02
af urban
Ef að fyrirtækið sem að þú vinnur hjá á rásirnar, þá þarftu að fá leyfi hjá (ef að ég man rétt) bæði eiganda rásanna og fjarskiptastofnun til þess að nota þær.

Rásirnar eru semsagt lokaðar vegna þess að það er eigandi af þeim og það á ekki að vera á þeim.

T.d. á Samskip nokkrar rásir sem að eru notaðir við vinnu á skipunum, ég gat ekki fengið að fá aukastöð inná þá rás fyrir aðila sem að var að aðstoða mig í útskipun, þrátt fyrir að það voru allir sammála því að aðilinn sem að átti að hafa þá rás þyrfti hana, það fékkst ekki leyfi fyrir því.

Semsagt, það er aðeins meira en að bara að stilla talstöðina inná rásirnar.

Ræðan sem að þú fékkst á þig, fékkstu einfaldlega af þeirri ástæðu að þetta er stranglega bannað.

Ef að fyrirtækið sem að þú vinnur hjá er sammála því að þú hafir stöð á þessari rás, þá á það fyrirtæki bara að afhenda þér stöð á rásina.

Re: Vantar hjálp við talstöð.

Sent: Mán 28. Nóv 2016 23:40
af ingibje
já, ég er að gera þetta í umboði fyrir fyrirtækið, það eru eigendur fyrirtækisins sem vilja bæta við 3 talstöðvum inn á rásina sem fyrirtækið borgar fyrir.

við eigum talstöðvar sem okkur langar að láta inn á þessa stöð.

ætla hringja í fjarskiptastofnun og athuga hvort þeir geti frætt mig um þetta.

Re: Vantar hjálp við talstöð.

Sent: Þri 29. Nóv 2016 00:15
af urban
ingibje skrifaði:já, ég er að gera þetta í umboði fyrir fyrirtækið, það eru eigendur fyrirtækisins sem vilja bæta við 3 talstöðvum inn á rásina sem fyrirtækið borgar fyrir.

við eigum talstöðvar sem okkur langar að láta inn á þessa stöð.

ætla hringja í fjarskiptastofnun og athuga hvort þeir geti frætt mig um þetta.


Já þá horfir málið allt öðruvísi við :)
Ég skildi þetta fyrst einsog þú værir að "stelast" inná rásinu :)

Re: Vantar hjálp við talstöð.

Sent: Þri 29. Nóv 2016 00:45
af russi
Siggi Harðar er líka maður sem gæti aðstoðað þig og leiðbeint í þessu
http://radioehf.is/

Re: Vantar hjálp við talstöð.

Sent: Mið 30. Nóv 2016 18:22
af ingibje
takk fyrir hjálpina strákar :) hringdi í fjarskiptastofnun og þeir gáfu mér góðar upplýsingar um hvernig þetta virkar allt saman.

Re: Vantar hjálp við talstöð.

Sent: Fim 01. Des 2016 00:24
af ulfr
Kannske ágætt að taka þetta fram þó málið hafi leysts. Þar sem þessi þráður er örlítið ruglingslegur.

Tíðnieigandi getur gefið út leyfi til hvers sem hann óskar um að nota sínar tíðnir.

Tilbær þjónustuaðili hverrar talstöðvategundar getur forritað þær tíðnir inn. (Múlaradíó, Nesradíó, Radíóraf og hugsanlega fleiri aðilar sem ég þekki ekki til eða man ekki eftir)

Sé óvissa um tíðnir eða eigendur tíðna er hægt að snúa sér að Póst og Fjarskiptastofnun sem fer með slík mál.

Einstaklingum er velkomið að forrita sínar stöðvar sjálfir geti þeir það, en þeir verða að virða 43. Grein fjarskiptalaga um þagnaskyldu ef þeir forrita tíðnir sem ekki tilheyra þeim inn í þær talstöðvar sem þeir nota.

Re: Vantar hjálp við talstöð.

Sent: Lau 03. Des 2016 12:41
af jonsig
ingibje skrifaði:takk fyrir hjálpina strákar :) hringdi í fjarskiptastofnun og þeir gáfu mér góðar upplýsingar um hvernig þetta virkar allt saman.


hvað heita þessar talstöðvar? Kannski byrja á því svo hægt væri að hjálpa þér svo þú þurfir ekki að bögga póst og fjar