Síða 1 af 1
[KOMIÐ] S.O.S. Hvar fæ ég belti/reim á þvottavél?
Sent: Fim 25. Ágú 2016 11:37
af worghal
Það kom að þvi að reimin sem snýr trommlunni og mig vantar nýja asap.
Vantar reim sem er 110cm löng/ummál
Hvar get ég fengið þetta helst í dag án þess að þurfa að bíða í viku eftir pönntun?
--
Edit:
þetta er reddað. Rafbreidd í kópavog gátu reddað mér

það var meira vesen að koma helvítis reiminni á heldur en að redda sér nýrri. sit hérna eftir þetta blóðugur og sveittur

Re: S.O.S. Hvar fæ ég belti/reim á þvottavél?
Sent: Fim 25. Ágú 2016 11:58
af arons4
Talaðu við umboðið, þeir eiga þetta örugglega á lager fyrir nokkra hundraðkalla ef vélin er ekki eeeeld gömul.
Re: S.O.S. Hvar fæ ég belti/reim á þvottavél?
Sent: Fim 25. Ágú 2016 12:11
af lukkuláki
Tékkaðu hér.
Þeir hafa gert við fyrir ELKO í mörg ár. (Áður egill.is)
Kapp ehf
Miðhrauni 2
210 Garðabæ
Sími: 544 2444
Re: S.O.S. Hvar fæ ég belti/reim á þvottavél?
Sent: Fim 25. Ágú 2016 12:25
af worghal
Gleimdi að taka fram að þetta er general electric vél frá 2006
Re: S.O.S. Hvar fæ ég belti/reim á þvottavél?
Sent: Fim 25. Ágú 2016 12:49
af roadwarrior
Fálkinn td. Þeir eru sérfræðingar í reimum
Einnig er fyrirtæki sem heitir Rafbraut og sérhæfir sig í viðgerðum í heimilstækjum. Annaðhvort eiga þeir þetta til eða geta bent þér á þann sem er að selja þetta hérna í bænum ef einhver er að því yfir höfuð. Síminn hjá þeim er 585 2400
Re: S.O.S. Hvar fæ ég belti/reim á þvottavél?
Sent: Fim 25. Ágú 2016 13:53
af DJOli
Re: S.O.S. Hvar fæ ég belti/reim á þvottavél?
Sent: Fim 25. Ágú 2016 16:53
af dori
DJOli skrifaði:http://www.ebay.com/sch/i.html?_from=R40&_trksid=p2050601.m570.l1313.TR0.TRC0.H0.Xgeneral+electric+2006+washing+machine+belt.TRS0&_nkw=general+electric+2006+washing+machine+belt&_sacat=0
worghal skrifaði:Hvar get ég fengið þetta helst í dag án þess að þurfa að bíða í viku eftir pönntun?
](./images/smilies/eusa_wall.gif)