Síða 1 af 1

DX Racer stólar

Sent: Fim 03. Mar 2016 16:38
af Swanmark
Gamestöðin var að selja þessa stóla fyrir jól, en gat ekki keypt slíkann þá, og hafa þeir verið uppseldir síðan um áramót. Ég hringdi í gær og hann sagði að þeir ættu von á þeim í apríl, eru aðrir að selja þetta kannski, á svipuðu verði? Sé reyndar að á síðunni hjá DXRacer er þetta out of stock :/

Re: DX Racer stólar

Sent: Fim 03. Mar 2016 17:07
af demaNtur
Að vísu ekki DXRacer, enn Tölvutek eru með svipaða stóla.

Re: DX Racer stólar

Sent: Fös 04. Mar 2016 13:00
af pwr
Get mælt með DXRacer stólunum, besta sem hefur komið fyrir bakið á mér. Ég get lítið annað en setið þessa dagana en ef maður stendur upp af og til í 10 mínútur þá er auðvelt að sitja í þannig stól allan daginn. Gamestöðin skutlaði líka stólnum frítt heim til mín í gegnum Póstinn held ég, sem ég kunni vel að meta þar sem að kassinn er HUGE. Þeir voru þrír að glíma við að koma honum inn um dyrnar hjá mér.

Arozzi Enzo sem Tölvutek er með get ég hinsvegar ekki mælt með. Ég keypti þannig stól áður en ég ákvað að fjárfesta í DXRacer og sá stóll bæði lyktaði ógeðslega og var alls ekki hentugur fyrir langtímasetu. Enginn stuðningur við mjóbakið heldur. Íbúðin mín og fötin mín lyktuðu líka eins og bráðið plast í margar vikur.

Veit ekkert um þessa Alpha Gamer Vega stóla sem Tölvutek er með sem virðast vera eftirlíkingar af DXRacer en kannski eru það fínustu stólar. Versta er að þegar maður er prófa að setjast í svona stóla í búðunum þá veit maður ekkert hvort að þeir séu þægilegir til lengri tíma en maður veit að maður er að fá gæði þegar maður kaupir DXRacer.

Re: DX Racer stólar

Sent: Fös 04. Mar 2016 13:55
af viddi

Re: DX Racer stólar

Sent: Fös 04. Mar 2016 14:27
af oskar9
Elko í Lindum eru með 3 stóla frá DXRacer á staðnum, sá ódýrasti með svörtu taui á 49 þús, minnir mig, og svo tvo leðurstóla, annar á 55 þús og hinn á 59 þús, þeir geta svo pantað þá í mörgum litum.

(Var að skoða þá áðan) :D

Re: DX Racer stólar

Sent: Fös 04. Mar 2016 14:45
af andriki
oskar9 skrifaði:Elko í Lindum eru með 3 stóla frá DXRacer á staðnum, sá ódýrasti með svörtu taui á 49 þús, minnir mig, og svo tvo leðurstóla, annar á 55 þús og hinn á 59 þús, þeir geta svo pantað þá í mörgum litum.

(Var að skoða þá áðan) :D


Eru þeir ekki með Ak racing stóla ekki dxracer

Re: DX Racer stólar

Sent: Fös 04. Mar 2016 15:33
af oskar9
andriki skrifaði:
oskar9 skrifaði:Elko í Lindum eru með 3 stóla frá DXRacer á staðnum, sá ódýrasti með svörtu taui á 49 þús, minnir mig, og svo tvo leðurstóla, annar á 55 þús og hinn á 59 þús, þeir geta svo pantað þá í mörgum litum.

(Var að skoða þá áðan) :D


Eru þeir ekki með Ak racing stóla ekki dxracer


Ahh jú sé það núna, eftir að hafa skoðað heimasíðu DX racer þá virðast þetta vera svipaðir stólar á svipuðu verði

Re: DX Racer stólar

Sent: Fös 04. Mar 2016 22:59
af Olafurhrafn
Mæli með því að þið kíkjið á nýju Vega stólanna sem Tölvutek voru að fá, þeir virðast vera mjög góðir. Þeir eru líka margfalt ódýrari en DXRACER.

Re: DX Racer stólar

Sent: Fös 04. Mar 2016 23:02
af pwr
Olafurhrafn skrifaði:Mæli með því að þið kíkjið á nýju Vega stólanna sem Tölvutek voru að fá, þeir virðast vera mjög góðir. Þeir eru líka margfalt ódýrari en DXRACER.


Ekki beint "margfalt ódýrari", dýrasti DXRacer stóllinn var á 64.900 seinast þegar ég tjékkaði.

Re: DX Racer stólar

Sent: Lau 05. Mar 2016 02:24
af Mencius
http://www.dxracer.com/us/en-us/product ... h-be120-n/

Keypti mér þennan í gamestöðini þegar að þeir voru með þá seinast besta fjárfesting sem ég hef gert lengi.

Re: DX Racer stólar

Sent: Mið 09. Mar 2016 23:10
af Olafurhrafn
pwr skrifaði:
Olafurhrafn skrifaði:Mæli með því að þið kíkjið á nýju Vega stólanna sem Tölvutek voru að fá, þeir virðast vera mjög góðir. Þeir eru líka margfalt ódýrari en DXRACER.


Ekki beint "margfalt ódýrari", dýrasti DXRacer stóllinn var á 64.900 seinast þegar ég tjékkaði.


Ó, afskaðu það. Ég hélt að dxracer stólarnir væru 60-100 þúsund.

Re: DX Racer stólar

Sent: Fim 10. Mar 2016 00:45
af Swanmark
viddi skrifaði:Myndi líka skoða Maxnomic http://www.needforseat.de/eu_english/sh ... /index.php

Hvar færðu þetta á Íslandi?

Re: DX Racer stólar

Sent: Lau 12. Mar 2016 15:32
af Alfa
Ég myndi skoða AK Racing í Elko, ég er mjög ánægður með minn og hann er actually til á landinu !

Re: DX Racer stólar

Sent: Mán 14. Mar 2016 23:10
af Skari
http://superkaup.is/product/dxracer-kin ... eats-black

reyndar aldrei verslað við þá en virðast vera með dxracer og akracing

Re: DX Racer stólar

Sent: Mán 14. Mar 2016 23:26
af Danni V8
Vonandi fara DX Racer stólarnir að koma aftur þar sem mig langar til að kaupa mér annan. Klikkaði aðeins og keypti minnstu gerðina sem heitir minnir mig R-Series og þetta er liggur við barnastóll þetta er svo lítið. Ég er ekki sama beinabeygla og ég var fyrir nokkrum árum svo ég þarf að komast í örlítið breiðari stól :P

Mjög góður stóll samt að öðru leiti.