Síða 1 af 1

Hvaða verslanir verða með "Black Friday" tilboð?

Sent: Mán 23. Nóv 2015 14:02
af Crush1234
Fyrir utan Elko, hvaða verslanir verða með "Black Friday" tilboð?
(þá aðalega tölvubúðir, það má líka setja erlendar verslanir sem senda til Íslands en ég er aðalega að leita að íslenskum verslunum).

http://www.elko.is/elko/blackfriday2015/

Re: Hvaða verslanir verða með "Black Friday" tilboð?

Sent: Mán 23. Nóv 2015 14:12
af stefhauk
Ég hef bara séð Elko auglýst. Vonandi að það séu fleirri.

Re: Hvaða verslanir verða með "Black Friday" tilboð?

Sent: Þri 24. Nóv 2015 00:06
af Tiger
Elko komið með sér heimasíðu um þetta

http://www.blackfriday.is

Það sem ég skoðaði svo sem ekkert spes, LG OLED sjónvarpið er ódýrara t.d. bara hjá Heimilstækjum og það er alla daga vikunar.

Re: Hvaða verslanir verða með "Black Friday" tilboð?

Sent: Þri 24. Nóv 2015 00:16
af einarhr
Tiger skrifaði:Elko komið með sér heimasíðu um þetta

http://www.blackfriday.is

Það sem ég skoðaði svo sem ekkert spes, LG OLED sjónvarpið er ódýrara t.d. bara hjá Heimilstækjum og það er alla daga vikunar.


Já er þetta ekki bara eins og vanalega, ss þeir kaupa inn vöruna og leggja svo meira en vanalega á vöruna og svo er varan auglýst á svaka afslætti á Black Friday.

Re: Hvaða verslanir verða með "Black Friday" tilboð?

Sent: Mið 25. Nóv 2015 10:08
af PhilipJ
Emobi.is ætla að taka þátt í black friday samkvæmt facebook síðunni þeirra.

Re: Hvaða verslanir verða með "Black Friday" tilboð?

Sent: Mið 25. Nóv 2015 13:25
af Sera
Tölvutek var að auglýsa black friday - https://www.facebook.com/events/1620983611495296/
A4 eru með black friday https://www.facebook.com/events/1687270334835835/
Rafha er með black friday útsölu - https://www.facebook.com/events/1653840064888466/

Re: Hvaða verslanir verða með "Black Friday" tilboð?

Sent: Mið 25. Nóv 2015 23:13
af jörundur85
Hefur einhver reynslu af www.newegg.com??
Þeir eru með fullt af tölvuvörum og íhlutum fyrir black friday.
Annars er spurning með sendingakostnað, og hvort þeir sendi almennt til Íslands..

Re: Hvaða verslanir verða með "Black Friday" tilboð?

Sent: Mið 25. Nóv 2015 23:26
af jörundur85
Annars er þetta skjákort hjá att.is - http://www.att.is/product/msi-gf-980gtx-ti-gam-skjakort á 139.950 kr.
Er á tæp 650$ eða 86.000 kr. hjá newegg.com - http://www.newegg.com/Product/Product.a ... gnorebbr=1
Eru tollar og sendingakostnaður virkilega nærri því að vera 54.000 kr.??

Re: Hvaða verslanir verða með "Black Friday" tilboð?

Sent: Mið 25. Nóv 2015 23:33
af Oak
jörundur85 skrifaði:Annars er þetta skjákort hjá att.is - http://www.att.is/product/msi-gf-980gtx-ti-gam-skjakort á 139.950 kr.
Er á tæp 650$ eða 86.000 kr. hjá newegg.com - http://www.newegg.com/Product/Product.a ... gnorebbr=1
Eru tollar og sendingakostnaður virkilega nærri því að vera 54.000 kr.??


Ef þú setur $700 í reiknivélina hjá tollinum er þetta um 115 þús. en ég held að sendingarkostnaðurinn sé aðeins meiri þannig að þetta er nú ekkert langt útí loftið.

Re: Hvaða verslanir verða með "Black Friday" tilboð?

Sent: Fim 26. Nóv 2015 01:27
af htmlrulezd000d
Hef reynt að panta frá newegg en þeir senda ekki til íslands held ég

Re: Hvaða verslanir verða með "Black Friday" tilboð?

Sent: Fim 26. Nóv 2015 08:13
af zedro
jörundur85 skrifaði:Eru tollar og sendingakostnaður virkilega nærri því að vera 54.000 kr.??

Þú þarft að hafa í huga hvað þú ert að greiða fyrir þegar þú verslar innanlands.
Seljandi þarf að ábyrgjast vöru í 2 ár, ekki bara 1 ár frá framleiðanda.
Seljandi þarf að borga starfsmönnum sínum laun.
Seljandi ber kostnað á að senda vöru út í OEM skipti ef þess þarf.

Þar eru margar vöru sem eru seldar á litlu eða engu álagi á móti öðrum sem eru með hærra álag
vegna td. færri seldra eintaka. En til langs tíma þá er fólk í þessu til að græða enda stendur
verslun ekki lengi í lappirnar ef þeir eru alltaf að klóra sér rétt framyfir núllið.

Re: Hvaða verslanir verða með "Black Friday" tilboð?

Sent: Fös 27. Nóv 2015 21:37
af Tiger
ELKO stendur sig auðvitað alltaf eins og hetjur.

Íslensk viðskiptasiðferði í hnotskurn.

image.png
image.png (982.37 KiB) Skoðað 5303 sinnum

Re: Hvaða verslanir verða með "Black Friday" tilboð?

Sent: Fös 27. Nóv 2015 22:15
af Orri
Tiger skrifaði:ELKO stendur sig auðvitað alltaf eins og hetjur.

Íslensk viðskiptasiðferði í hnotskurn.

*MYND*


Elko er búið að útskýra þetta á Facebook síðunni sinni :)

27.11.2015-22-13-09-04e9.png
27.11.2015-22-13-09-04e9.png (222.17 KiB) Skoðað 5265 sinnum

Re: Hvaða verslanir verða með "Black Friday" tilboð?

Sent: Lau 28. Nóv 2015 16:10
af Stuffz
Ég ætlaði kannski að fá mér 8tb drif til að sameina stuff en bara engin góð tilboð hérlendis..

Mynd