Síða 1 af 1
Óska eftir rafvirkja - færa ljósleiðarabox
Sent: Mið 12. Ágú 2015 20:48
af Hannesinn
Mig vantar rafvirkja til að færa fyrir mig ljósleiðarabox. Er einhver hérna sem hefur reynslu af þessu og getur tekið þetta að sér?
Re: Óska eftir rafvirkja - færa ljósleiðarabox
Sent: Mið 12. Ágú 2015 21:01
af arons4
Ef mér skjátlast ekki þarf þetta að vera gert af verktaka á vegum gagnaveitunnar(er þó ekki alveg viss)
Re: Óska eftir rafvirkja - færa ljósleiðarabox
Sent: Fim 13. Ágú 2015 21:40
af Hannesinn
Kannast ekki við það. Ætla allavega að prufa hér fyrst. Ef það gengur ekki, hringi ég eitthvert af fyrirtækjunum sem gagnaveitan gefur upp fljótlega eftir helgi.
Re: Óska eftir rafvirkja - færa ljósleiðarabox
Sent: Fim 13. Ágú 2015 22:13
af Icarus
Gagnaveitan rukkar 19.900 fyrir að láta verktaka á þeirra vegum að gera þetta.
Spurning hvort það sé eitthvað dýrara heldur en að láta bara einhvern gera þetta?
http://www.gagnaveita.is/Heimili/Verdskra/
Re: Óska eftir rafvirkja - færa ljósleiðarabox
Sent: Fös 14. Ágú 2015 00:12
af DJOli
Hringja í mílu og spyrja þar? gæti verið ódýrara en gagnaveitan.
Re: Óska eftir rafvirkja - færa ljósleiðarabox
Sent: Fös 14. Ágú 2015 11:14
af Some0ne
Míla færir ekki ljósleiðarabox sem gagnaveitan á.
Re: Óska eftir rafvirkja - færa ljósleiðarabox
Sent: Fös 14. Ágú 2015 11:40
af Pandemic
Fer svolítið eftir því hversu langt þú ætlar að færa það. Ef það er stutt og þú þarft ekki að aftengja leiðarann úr úr bracketinu sem er undir boxinu geturu gert það sjálfur. Þarna erum við að tala um nokkra cm. Hinsvegar ef þetta er að fara í annað herbergi eða leiðarinn þarf að vera lengri þá verðuru að fá verktaka frá gagnaveitunni til að gera þetta. Það þarf að bræða ljósleiðarann með sérstakri græju sem þessir verktakar eru með.
Re: Óska eftir rafvirkja - færa ljósleiðarabox
Sent: Fös 14. Ágú 2015 12:08
af Hannesinn
Pandemic skrifaði:Fer svolítið eftir því hversu langt þú ætlar að færa það. Ef það er stutt og þú þarft ekki að aftengja leiðarann úr úr bracketinu sem er undir boxinu geturu gert það sjálfur. Þarna erum við að tala um nokkra cm. Hinsvegar ef þetta er að fara í annað herbergi eða leiðarinn þarf að vera lengri þá verðuru að fá verktaka frá gagnaveitunni til að gera þetta. Það þarf að bræða ljósleiðarann með sérstakri græju sem þessir verktakar eru með.
Amm, ég vissi að þetta væri meira spurning um einhverja græju en sérkunnáttu. En er semsé að tala um að færa boxið frá stofunni að inntakinu í íbúðina, eða þá færa hann yfir á mótvegg í stofunni. Hvorutveggja er stytting. Leyfi þessu að standa framyfir helgi og hringi þá upp í gagnaveitu.
Re: Óska eftir rafvirkja - færa ljósleiðarabox
Sent: Lau 15. Ágú 2015 02:19
af jonsig
Spurning með að athuga svona plögg sem maður setur á sjálfur ,kannski það sleppi í svona tilfelli þar sem þú ert ekki með langan fiber optic milli tengiboxa. Þú mátt búast við að fá góðan reikning frá hverjum sem er því vélarnar í þetta verk eru ekki ódýrar.
Re: Óska eftir rafvirkja - færa ljósleiðarabox
Sent: Lau 15. Ágú 2015 17:48
af arons4
jonsig skrifaði:Spurning með að athuga svona plögg sem maður setur á sjálfur ,kannski það sleppi í svona tilfelli þar sem þú ert ekki með langan fiber optic milli tengiboxa. Þú mátt búast við að fá góðan reikning frá hverjum sem er því vélarnar í þetta verk eru ekki ódýrar.
Gagnaveitan rukkar fast verð fyrir þetta. Sjá link fyrir ofan.
Re: Óska eftir rafvirkja - færa ljósleiðarabox
Sent: Lau 15. Ágú 2015 23:52
af ZoRzEr
Þurfti að gera það sama í mars sl. Færa boxið úr stofunni í þvottaherbergið þar sem ljósleiðarinn var dreginn úr geymslunni. Hringdi í Gagnaveituna og þeir sköffuðu mann í gegnum verktakafyrirtæki sem vinnur fyrir þá. Þetta var hrein stytting, bæra færa boxið, klippa á vírinn og skella í samband í þvottaherberginu. Lét hann hengja boxið upp á góðan stað og tengja rafmagn í rafmagnstöfluna. Routerinn hengur svo þar hliðiná. Lét hann einnig draga ethernet fram í stofu og eitt herbergi.
Rafvirkinn sagði að fyrst að þetta væri einfaldur flutningur, þurfti ekki að bæta við lengri ljósleiðaravír, að hann myndi ekki rukka 19.900kr fyrir að færa boxið. Borgaði bara fyrir að efni í að draga kaplana og vinnu. Var mjög ánægður með það.