Síða 1 af 1

X99 + Quad channel RAM ?

Sent: Fim 29. Jan 2015 22:50
af kunglao
Sælir er að spá í að fara í extreme flokkinn með nýja X99 Chip settinu frá Intel.
Þarf að vita í sambandi við DDR4 hvort að nóg sé að vera með Dual channel sticks t.d 8 gb hvor sem dæmi eða verður maður að fá sér fjóra til að geta notað móðurborðið,örgjörvann svo að tölvan pósti og hægt sé að installa OS ?

Re: X99 + Quad channel RAM ?

Sent: Fim 29. Jan 2015 23:37
af Hnykill
Já mig minnir að 2x minniskubbar séu nóg.. er sjálfur að fara í X99 uppfærslu. en ég er að fara í Corsair 4x4GB 2666 Mhz http://www.att.is/product/corsair-ven-4x4gb-2666-minni svo ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því. ég held líka að ef það þyrfti 4x minnikubba þá væru þeir seldir 4x saman í pakka, en ekki 2x.

Re: X99 + Quad channel RAM ?

Sent: Fim 29. Jan 2015 23:40
af kunglao

Re: X99 + Quad channel RAM ?

Sent: Fös 30. Jan 2015 11:02
af Hnykill
Ég tel að flestir sem eru að fjárfesta í X99 línunni séu að fara nota Quad Memory setup. að eyða svona miklum pening í þetta og nota svo aðeins Dual DDR hljómar mjög furðulega. en ef þú kaupir 2x kubba núna þá geturu bara bætt öðrum 2x síðar til að nota Quad setup.

Re: X99 + Quad channel RAM ?

Sent: Fös 30. Jan 2015 11:19
af kunglao
já auðvitað. Ég er bara að skoða þann möguleika hvort það sé hægt sð nota tvo ram stauta í borðið eða ekki ?
Einhver á Vaktinni sem getur staðfest það???

Re: X99 + Quad channel RAM ?

Sent: Fös 30. Jan 2015 11:56
af mercury
sá í einhverri umfjöllun um þetta ddr4 dæmi. Sagði ttl að ddr4 séu mun viðkvæmari fyrir pörun en ddr3 og mælir því með því að menn kaupi settið í heild. ef þú kaupir 4 saman þá er búið að prufa þá saman og ættu því að virka án vandræða.
þetta kom einhvað furðulega út en ég vona að þú fattir hvað ég á við.

Re: X99 + Quad channel RAM ?

Sent: Fös 30. Jan 2015 12:48
af Hnykill
Ok er með þetta... það er hægt að nota 1 kubb, 2 kubba, 4 og alveg eins og þú vilt.. hér er verið að kanna W á minninu.. alveg frá 1x uppí 4x kubba.

Sérð þetta rétt fyrir neðan hitamyndirnar.

http://www.tomshardware.com/reviews/int ... 18-13.html

sýnist mér :/

Re: X99 + Quad channel RAM ?

Sent: Fös 30. Jan 2015 12:52
af Hnykill
Og hér er test setupið hjá þeim að nota Dual DDR meðal annars

http://www.tweaktown.com/reviews/6620/i ... ndex4.html

Re: X99 + Quad channel RAM ?

Sent: Fös 30. Jan 2015 16:39
af Moldvarpan
Í hvað eruði að fara nota þetta rándýra setup í? X99 + 8 Sticks of RAM + Súper dýran CPU... 300.000kr?

Bara að forvitnast, ég skil ekki tilganginn.

http://www.overclockers.com/forums/showthread.php/750439-DDR3-4930K-vs-DDR4-5820K-comparison

Re: X99 + Quad channel RAM ?

Sent: Fös 30. Jan 2015 16:57
af Tiger
Moldvarpan skrifaði:Í hvað eruði að fara nota þetta rándýra setup í? X99 + 8 Sticks of RAM + Súper dýran CPU... 300.000kr?

Bara að forvitnast, ég skil ekki tilganginn.


Hver þarf tilgang fyrir græjufíkn....because you can

Re: X99 + Quad channel RAM ?

Sent: Fös 30. Jan 2015 17:02
af vesley
Tiger skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Í hvað eruði að fara nota þetta rándýra setup í? X99 + 8 Sticks of RAM + Súper dýran CPU... 300.000kr?

Bara að forvitnast, ég skil ekki tilganginn.


Hver þarf tilgang fyrir græjufíkn....because you can



Nákvæmlega!

Re: X99 + Quad channel RAM ?

Sent: Fös 30. Jan 2015 17:04
af Hnykill
Ég er að missa íbúðina mína og bý hjá vini mínum í nokkra mánuði. það losnaði aðeins um veskið hjá mér vegna þess að nú borga ég hvorki leigu, hita og rafmagn eða internet. og mig langar í DDR4 setup. svosem enginn þörf á þessu.. bara gaman að geta gert svona einu sinni. er með vélina í undirskrift svo þetta verður ágætis uppfærsla fyrir mig. svo er líka búið að laga hitaleiðnina í Heatspreadernum á 5X örgjörvalínunni, sem fékk svo marga til að "delidda" sína i7 og i5 á sínum tíma.

Ekkert svo óskynsamlegt svosem.. þó ég spili eiginlega bara FPS leiki þá er bara rosalega gaman að eiga almennilega græju, eins og þið flestir ættuð að kannast við :megasmile

Re: X99 + Quad channel RAM ?

Sent: Fös 30. Jan 2015 22:26
af kunglao
Græjufíkn og að eiga massíva tölvu er alltaf gaman :)

Re: X99 + Quad channel RAM ?

Sent: Fös 30. Jan 2015 22:31
af MatroX
Hnykill skrifaði:Ég er að missa íbúðina mína og bý hjá vini mínum í nokkra mánuði. það losnaði aðeins um veskið hjá mér vegna þess að nú borga ég hvorki leigu, hita og rafmagn eða internet. og mig langar í DDR4 setup. svosem enginn þörf á þessu.. bara gaman að geta gert svona einu sinni. er með vélina í undirskrift svo þetta verður ágætis uppfærsla fyrir mig. svo er líka búið að laga hitaleiðnina í Heatspreadernum á 5X örgjörvalínunni, sem fékk svo marga til að "delidda" sína i7 og i5 á sínum tíma.

Ekkert svo óskynsamlegt svosem.. þó ég spili eiginlega bara FPS leiki þá er bara rosalega gaman að eiga almennilega græju, eins og þið flestir ættuð að kannast við :megasmile

færð meira útur z79 setupi fyrir peninginn :D sérstaklega ef þú ert bara að spila leiki en ekki rendera 4k video

Re: X99 + Quad channel RAM ?

Sent: Fös 30. Jan 2015 23:09
af kunglao
Þá er ég búin að fá þetta á hreint. DDR4 er hægt að nota dual channel mode en það er best að nota quad channel mode uppá power consumption að gera... Ef maður kaupir segjum http://www.start.is/index.php?route=pro ... uct_id=842 og notar tvo 8 gb stk DDR4 Ram þá lítur það vel út á þessu borði sem dæmi !!!

Re: X99 + Quad channel RAM ?

Sent: Fös 30. Jan 2015 23:16
af Hnykill
MatroX skrifaði:
Hnykill skrifaði:Ég er að missa íbúðina mína og bý hjá vini mínum í nokkra mánuði. það losnaði aðeins um veskið hjá mér vegna þess að nú borga ég hvorki leigu, hita og rafmagn eða internet. og mig langar í DDR4 setup. svosem enginn þörf á þessu.. bara gaman að geta gert svona einu sinni. er með vélina í undirskrift svo þetta verður ágætis uppfærsla fyrir mig. svo er líka búið að laga hitaleiðnina í Heatspreadernum á 5X örgjörvalínunni, sem fékk svo marga til að "delidda" sína i7 og i5 á sínum tíma.

Ekkert svo óskynsamlegt svosem.. þó ég spili eiginlega bara FPS leiki þá er bara rosalega gaman að eiga almennilega græju, eins og þið flestir ættuð að kannast við :megasmile

færð meira útur z79 setupi fyrir peninginn :D sérstaklega ef þú ert bara að spila leiki en ekki rendera 4k video



Ég ákvað líka að taka stökkið vegna betri hitaleiðni í 5x örgjörvaseríunni. svo dauðlangar mig bara í nýja tölvu, og ég reikna með að eiga hana í allavega 3-4 ár og vona að bæði leikir og forrit séu farin að nýta sér örgjörva og annað betur þá. þetta ætti að vera nokkuð future proof eins og maður segir .

Re: X99 + Quad channel RAM ?

Sent: Fös 30. Jan 2015 23:20
af Klaufi
Tiger skrifaði:Hver þarf tilgang fyrir græjufíkn....because you can


Þetta ætti að vera slagorð Vaktarinnar..