Síða 1 af 1

iPhone 5 viðgerð, brotið gler

Sent: Fim 01. Maí 2014 12:58
af sveimhugi
Mér tókst að missa iPhone 5 símann minn og brjóta á honum glerið, hann virkar samt alveg eins og áður en ég þarf að fá nýtt gler. Ég hef séð erlendis síður sem taka svona að sér en ég vil ekki þurfa að senda hann í pósti til útlanda.

Er einhver hér sem tekur að sér svona viðgerðir, eða veit hvar væri best að fara með svona í viðgerð hérlendis?

Einar

Re: iPhone 5 viðgerð, brotið gler

Sent: Fim 01. Maí 2014 13:14
af KermitTheFrog
http://isiminn.is/

Veit ekki hvað þetta kostar hjá þeim. Annars geturðu farið með símann í Epli og fengið honum skipt út fyrir nýjan síma (mögulega með ábyrgð?) fyrir 50k minnir mig. Einnig er lítið mál að skipta um skjáinn í þessum símum ef þú treystir þér í að panta að utan og gera þetta sjálfur.

Re: iPhone 5 viðgerð, brotið gler

Sent: Fim 01. Maí 2014 16:16
af Squinchy
KermitTheFrog skrifaði:http://isiminn.is/

Veit ekki hvað þetta kostar hjá þeim. Annars geturðu farið með símann í Epli og fengið honum skipt út fyrir nýjan síma (mögulega með ábyrgð?) fyrir 50k minnir mig. Einnig er lítið mál að skipta um skjáinn í þessum símum ef þú treystir þér í að panta að utan og gera þetta sjálfur.


2 ára ábyrgð, ef þetta er á einstaklings kennitölu