Mig langaði að forvitnast um hvort einhver vissi hvort það væri hægt að sjá vöruúrvalið í Elko í fríhöfninni einhvers staðar? Hef hvergi getað fundið það þrátt fyrir mikla leit, og þær upplýsingar sem ég fékk þegar ég hringdi í þjónustuborðið hjá Elko var að þær væru ekki alveg með þetta á hreinu, en myndu hringja til baka eftir að kanna þetta... sem þær síðan gerðu aldrei blessaðar

E'ða er mögulega einhver hérna inni sem hefur farið erlendis nýlega gegnum Leifsstöð og leit þar við? Vefsíðan hjá þeim segir voðalega lítið finnst mér - en langar að vita hvort þeir selji t.d. harða diska þar eða þvíumlíka íhluti. Hefur einhver hérna einhverja hugmynd um hvernig það er?
(Og já, ég setti þetta undir "þjónustu" þar sem að mér fannst skorta verulega á hana hjá þeim í sambandi við þetta

Kkv.,
Ágúst