Síða 1 af 1

skrítin lykt úr aflgjafa

Sent: Mán 05. Sep 2011 21:08
af Posus
Þannig er má með vexti að það byrjaði að koma skrítin lykt úr aflgjafanum úr tölvunni hjá vinni mínum
aflgjafinn var fullur af ryki og ég held að það hafi valdið skammhlaupi.

gott væri að fá álit hjá öðrum.

Re: skrítin lykt úr aflgjafa

Sent: Mán 05. Sep 2011 21:09
af biturk
flott saga

hvernig eigum við að geta gefið þér álit hvort lyktin hafi verið skrýtin eða ekki :hugenose

Re: skrítin lykt úr aflgjafa

Sent: Mán 05. Sep 2011 21:11
af worghal
súr lykt ?

Re: skrítin lykt úr aflgjafa

Sent: Mán 05. Sep 2011 21:12
af Eiiki
var aflgjafalykt af honum? ef svo er þá getur þetta verið mjög slæmt

Re: skrítin lykt úr aflgjafa

Sent: Mán 05. Sep 2011 21:28
af Oak
sprunginn þéttir?

Re: skrítin lykt úr aflgjafa

Sent: Mán 05. Sep 2011 21:42
af Stanman
Aflgjafann er að brenna yfir.. þéttir gefur frá sér lykt sem getur verið hættuleg við innöndun.. ef í ábyrgð þá er honum skipt út annars mæli ég með nýjum.

Re: skrítin lykt úr aflgjafa

Sent: Mán 05. Sep 2011 22:14
af KristinnK
Og svo spyr fólk af hverju eigi að eyða meir en 10 þús í aflgjafa.

Re: skrítin lykt úr aflgjafa

Sent: Mán 05. Sep 2011 22:29
af Posus
Tók eftir því þegar að ég var að skoða hann að eitt kopar vafið í aflgjafanum var orðið svart

Re: skrítin lykt úr aflgjafa

Sent: Mán 05. Sep 2011 22:32
af biturk
KristinnK skrifaði:Og svo spyr fólk af hverju eigi að eyða meir en 10 þús í aflgjafa.



skiptir engu máli hvað hann kostar, ef hann er fullur af ryki þá leiðir á milli og hann brennur yfir :face

dýrasti aflgjafi sem ég hef átt kostaði innan við 5 þúsund og hefur staðið sig án nokkur skakkafalla

Re: skrítin lykt úr aflgjafa

Sent: Mán 05. Sep 2011 22:36
af Stanman
akkurat.. á ekki að skipta máli hvað hann kostar.. þó vandaðari aflgjafar endist lengur.. Á aflgjafa handa þér (460W) sem ég get selt þér..