Síða 1 af 1

Skipta um viftu í aflgjafa?

Sent: Mið 17. Nóv 2010 03:27
af kristjanl
Sælir.

Ég hef verið að lenda í veseni með að keyra þunga leiki í vélinni minni. Haddahófskenndir hlutir hætta að svara (mús, skjákort osf) og vél slekkur á sér stuttu seinna. Þegar það gerist hef ég tekið eftir því að aflgjafinn (500W) er óeðlilega heitur (örgjörvi, skjákort osf virðast samt ná að kæla sig eðlilega). Ég tók síðan eftir því að viftan í aflgjafanum er stíf og snýst ekki.

Fyrst þetta er bara viftan í aflgjafanum, þá langar mér eiginlega bara að opna hann og skipta um hana, en ég er samt frekar smeykur að opna þessa aflgjafa. Hvað finnst ykkur að ég ætti ég að gera? Taka sénsinn á að skipta um viftu eða hætta þessari nísku og bara kaupa nýjan aflgjafa?

Re: Skipta um viftu í aflgjafa?

Sent: Mið 17. Nóv 2010 03:30
af Black
Opnaðu bara aflgjafan.. ekki vera flón og snerta hlutina inní honum.. ekki hafa hann tengdann í rafmagn, ef viftan er stíf þá er spurning um að þú smyrjir hana bara með smá feiti :besserwisser

Re: Skipta um viftu í aflgjafa?

Sent: Mið 17. Nóv 2010 03:45
af GullMoli
Eg er sammala black, eg hef skipt um viftu i aflgjafa og thad var ekkert mal! En bara EKKI snerta NEITT inni honum. Einnig tha skaltu taka hann ur sambandi og yta svo nokkrum sinnum a power takkann a tolvunni til ad afhlada afgjafann sem mest. Og nuna koma svo comment sem segja ther hvad thetta er haettulegt og ad thu eigir alls ekki ad gera thetta :D

Re: Skipta um viftu í aflgjafa?

Sent: Mið 17. Nóv 2010 04:29
af Gets

Re: Skipta um viftu í aflgjafa?

Sent: Mið 17. Nóv 2010 15:49
af littli-Jake
Man að ég mixaði einusinni kassaviftu inni í minn því að tengið fyrir viftuna var lóðað í. Var merkilega lítið mál.

Re: Skipta um viftu í aflgjafa?

Sent: Mið 17. Nóv 2010 18:41
af Zethic
Get ég semsagt skipt um og sett viftu með rauði LED ljósi í aflgjafann minn ?

Væri það ekki soldið kúl ?

I think it would be awesome...

Eða myndi það hafa einhver áhrif á aflgjafann ?

Re: Skipta um viftu í aflgjafa?

Sent: Mið 17. Nóv 2010 18:46
af vesley
Zethic skrifaði:Get ég semsagt skipt um og sett viftu með rauði LED ljósi í aflgjafann minn ?

Væri það ekki soldið kúl ?

I think it would be awesome...

Eða myndi það hafa einhver áhrif á aflgjafann ?



Auðveldara að skella bara rauðum led viftum í kassan en að "skítamixa" eitthvað í aflgjafann.

Líka óþarfa áhætta ef það er 100% í lagi með viftuna og augljóslega dettur varan úr ábyrgð.

Re: Skipta um viftu í aflgjafa?

Sent: Mið 17. Nóv 2010 18:55
af Black
vesley skrifaði:
Zethic skrifaði:Get ég semsagt skipt um og sett viftu með rauði LED ljósi í aflgjafann minn ?

Væri það ekki soldið kúl ?

I think it would be awesome...

Eða myndi það hafa einhver áhrif á aflgjafann ?



Auðveldara að skella bara rauðum led viftum í kassan en að "skítamixa" eitthvað í aflgjafann.

Líka óþarfa áhætta ef það er 100% í lagi með viftuna og augljóslega dettur varan úr ábyrgð.


Ætti að vera lítið mál að mixa rauða viftu :O

Re: Skipta um viftu í aflgjafa?

Sent: Mið 17. Nóv 2010 20:07
af beatmaster
Ég hef skipt um viftu í nokkrum aflgjöfum, enda gjalda oft ágætis aflgjafar þess að hafa alltof háværa viftu, númer eitt tvö og þrjú er að snerta eins lítið opinn aflgjafann og hægt er (muna samt að þetta er eitthvað sem að getur mögulega drepið þig)

Re: Skipta um viftu í aflgjafa?

Sent: Fim 18. Nóv 2010 11:15
af kristjanl
beatmaster skrifaði:(muna samt að þetta er eitthvað sem að getur mögulega drepið þig)


Takk, það gerir mig ekki minna nervös :S

En ætli ég hætti þessum aumingjaskap og reyni þetta. Ef þið heyrið ekki aftur í mér, þá vitið þið hvað gerðist.

Re: Skipta um viftu í aflgjafa?

Sent: Fim 18. Nóv 2010 11:27
af rapport
kristjanl skrifaði:
beatmaster skrifaði:(muna samt að þetta er eitthvað sem að getur mögulega drepið þig)


Takk, það gerir mig ekki minna nervös :S

En ætli ég hætti þessum aumingjaskap og reyni þetta. Ef þið heyrið ekki aftur í mér, þá vitið þið hvað gerðist.



Ef þú ert með stórutánna inní innstungu (snertir jörðina) þá færi straumurinn beint í gegnum þig og þú færir ekkert að drepast, fengir hugsnlega smá sár á tánna en það ætti samt ekki að gerast...

voðalega patent lausn á málinu... :santa

Muna að fara úr sokknum náttúrulega...

Re: Skipta um viftu í aflgjafa?

Sent: Fim 18. Nóv 2010 12:30
af Sydney
Minnsta mál í heimi að skipta um viftu í PSU, ég skítamixaði viftuna í mínum PSU við viftustýringu til þess að hægja á henni, allt annað líf.