depill skrifaði:Mér finnst þetta flott framtak og sé ekki betur en að þið eruð komnir með netþjónan innanlands sem mætti kannski taka fram þar sem þeir voru það ekki áður.
Allavega flott mál, gangi ykkur vel...
Búnir að bjóða upp á íslenska hýsingu lengi

Annars er verið að vinna í nýjum vef sem mun innihalda ítarlegri upplýsingar.
Gúrú skrifaði:En rosalega finnst mér íslenskir VPSar dýrir ef að þið eruð ódýrastir.

Það er nú bara þannig að það er allt mikið dýrara á íslandi en erlendis, nettengingar og vélbúnaður... allt nema rafmagn líklegast...
Svo að það er því miður afskaplega erfitt að keppa við US hýsingarfyrirtæki sem eru að velta milljónum dollara mánaðarlega.
dori skrifaði:Hvernig er með afritun gagna á þessu? Og getur maður ekki fengið hvaða stýrikerfi sem er (ég er bara að hugsa um GNU/BSD/eitthvað frjálst) á vélarnar?
Stýrikerfin sem við höfum boðið upp á hingað til eru: Arch, CentOS, Debian, Fedora, Gentoo, Ubuntu.
Með VPS vélunum fylgir aðgangur í stjórnborð þar sem þú getur sjálfur meðal annars sett stýrikerfið upp, upp á nýtt, skipt út stýrikerfinu á vélinni og fleira. Þetta getur þú gert allt sjálfur, hvenær sem þér hentar.
Ef þig langar í eitthvert distro sem við bjóðum ekki upp á, þá ætti alveg að vera hægt að skoða það.
Varðandi backups, þá er raid1 á vélunum hjá okkur og það eru tekin afrit á vél sem er staðsett annarstaðar einu sinni á sólarhring.