Síða 1 af 1
Bilun hjá bróður mínum
Sent: Þri 19. Jan 2010 15:12
af J1nX
Bróðir minn er með Vista Home Premium 64bita og í hvert skipti sem hann opnar dialog box(save as box, open file box og þannig) og ætlar að navigate-a eitthvað þar inní crashar forritið sem hann er í. Þetta gerist með öll forrit sem notast við svona dialog boxes. Þetta getur staðið þarna opið svo lengi sem það er ekki fiktað neitt í þessu og þú getur valið file ef hann er inn í þessari start möppu og forritin crasha ekki fyrr en hann ætlar eitthvað að browse-a úr upphafsmöppunni.
Log úr event manager:
Faulting application DTLite.exe, version 4.35.5.68, time stamp 0x4aead490, faulting module PortableDeviceApi.dll, version 6.0.6002.18112, time stamp 0x4ac3ff8a, exception code 0xc0000005, fault offset 0x00033d3a, process id 0xa54, application start time 0x01ca9916313d411a.
sýnist þetta vera þetta PortableDeviceApi.dll og er búinn að ná í nýjan .dll en vista leyfir mér ekki að overwrite-a neitt inni í System32 þó ég sé búinn að breyta permissions og sé loggaður inn sem admin. Væri gott ef einhver gæti sagt mér hvernig ég get gert það þó svo að ég þurfi þess ekki. Alltaf gaman að vita hvernig maður gerir eitthvað sem maður á ekki að gera
Thanks in advance,
Einn nett pirraður á þessu.
Re: Bilun hjá bróður mínum
Sent: Þri 19. Jan 2010 16:01
af einarhr
Varstu búin að skoða þetta á Microsoft síðunni? Ég veit ekki hvort þetta á við hjá þér en sakar ekki að prófa.
http://support.microsoft.com/kb/959108
Re: Bilun hjá bróður mínum
Sent: Þri 19. Jan 2010 16:50
af J1nX
já var búinn að prófa þetta, segir "This update does not apply to your system."
Takk samt.
Re: Bilun hjá bróður mínum
Sent: Þri 19. Jan 2010 17:28
af GuðjónR
Fyrsta sem mér datt í hug þegar ég sá titilinn var að bróðir þinn væri bilaður.
Re: Bilun hjá bróður mínum
Sent: Þri 19. Jan 2010 17:40
af Lallistori
GuðjónR skrifaði:Fyrsta sem mér datt í hug þegar ég sá titilinn var að bróðir þinn væri bilaður.
Hahaha
Re: Bilun hjá bróður mínum
Sent: Þri 19. Jan 2010 23:04
af Starman
"Faulting application DTLite.exe", segir þetta ekki allt sem segja þarf (daemon-tools lite)
Ég mundi byrja á því að fjarlægja Daemon Tools Lite forritið og sjá til.
Re: Bilun hjá bróður mínum
Sent: Mið 20. Jan 2010 02:24
af J1nX
Starman skrifaði:"Faulting application DTLite.exe", segir þetta ekki allt sem segja þarf (daemon-tools lite)
Ég mundi byrja á því að fjarlægja Daemon Tools Lite forritið og sjá til.
ég tók bara þennan log sem dæmi.. en þetta gerist með öll forrit sem nota file dialogs.
Re: Bilun hjá bróður mínum
Sent: Mið 20. Jan 2010 02:27
af J1nX
Faulting application AutoRun.exe_Electronic Arts AutoRun, version 1.8.0.432, time stamp 0x43a9e2e6, faulting module PortableDeviceApi.dll, version 6.0.6002.18112, time stamp 0x4ac3ff8a, exception code 0xc0000005, fault offset 0x00033d3a, process id 0x1178, application start time 0x01ca994ac7d64067.
Þetta kom þegar ég ætlaði að velja directory þegar ég var að installa leik t.d.
Re: Bilun hjá bróður mínum
Sent: Mið 20. Jan 2010 08:30
af kazgalor
Ég er með einfalda og varanlega lausn. Losaðu þig við vista og náðu þér í win7. Ef þér langar ekki að borga fyrir uppfærslu þá er internetið enn og aftur besti vinur þinn

Re: Bilun hjá bróður mínum
Sent: Þri 26. Jan 2010 08:27
af BjarniTS
Gera þetta file replace með ubuntu livecd?
Re: Bilun hjá bróður mínum
Sent: Þri 26. Jan 2010 09:29
af GuðjónR
Af hverju í ósköpunum hangir fólk á VISTA?
Farðu frekar í XP ... eða win2000 hvað það varðar....það er einfaldlega allt betra en VISTA.
Þetta er eins og að keyra á gömlum Ford Econoline og kvarta yfir bensínverði.
Re: Bilun hjá bróður mínum
Sent: Þri 26. Jan 2010 19:53
af Nariur
GuðjónR skrifaði:Af hverju í ósköpunum hangir fólk á VISTA?
Farðu frekar í XP ... eða win2000 hvað það varðar....það er einfaldlega allt betra en VISTA.
Þetta er eins og að keyra á gömlum Ford Econoline og kvarta yfir bensínverði.
manneskja sem finnst MAC OS gott stýrikerfi getur ekki dæmt önnur.
Vista er fínasta stýrikerfi, ég byrjaði að nota það nokkrum mán. eftir að það kom út og notaði það þangað til að win7 betan kom út og skil ekki enn yfir hverju fólk var að kvarta
Re: Bilun hjá bróður mínum
Sent: Þri 26. Jan 2010 19:57
af Glazier
Nariur skrifaði:GuðjónR skrifaði:Af hverju í ósköpunum hangir fólk á VISTA?
Farðu frekar í XP ... eða win2000 hvað það varðar....það er einfaldlega allt betra en VISTA.
Þetta er eins og að keyra á gömlum Ford Econoline og kvarta yfir bensínverði.
manneskja sem finnst MAC OS gott stýrikerfi getur ekki dæmt önnur.
Vista er fínasta stýrikerfi, ég byrjaði að nota það nokkrum mán. eftir að það kom út og notaði það þangað til að win7 betan kom út og skil ekki enn yfir hverju fólk var að kvarta
Á meðan fólk er með nógu fjandi öfluga tölvu þá er vista ágætt, en maður setur ekki vista á hvaða tölvu sem er, HVAÐ ÞÁ ÞEGAR Windows 7 er komið !!

Re: Bilun hjá bróður mínum
Sent: Þri 26. Jan 2010 20:10
af Nariur
Glazier skrifaði:Nariur skrifaði:GuðjónR skrifaði:Af hverju í ósköpunum hangir fólk á VISTA?
Farðu frekar í XP ... eða win2000 hvað það varðar....það er einfaldlega allt betra en VISTA.
Þetta er eins og að keyra á gömlum Ford Econoline og kvarta yfir bensínverði.
manneskja sem finnst MAC OS gott stýrikerfi getur ekki dæmt önnur.
Vista er fínasta stýrikerfi, ég byrjaði að nota það nokkrum mán. eftir að það kom út og notaði það þangað til að win7 betan kom út og skil ekki enn yfir hverju fólk var að kvarta
Á meðan fólk er með nógu fjandi öfluga tölvu þá er vista ágætt, en maður setur ekki vista á hvaða tölvu sem er, HVAÐ ÞÁ ÞEGAR Windows 7 er komið !!

það er alveg rétt að 7>Vista, það var nú alveg nóg að hafa semi nýlega budget tölvu þegar vista kom út til að höndla það