Síða 1 af 1

Hvernig skal Spila Háskerpu efni (HD)

Sent: Fim 18. Okt 2007 17:39
af CraZy
Hvernig skal spila háskerpu efni V 1.0

Byrjum á því að setja upp Media Player Classic (MPC)

Til að spila x264 skrár encoded með .mkv eða .mp4 þurfum við:

CoreAVC 1.1 Pro, Linkur 1 Linkur 2

DirectVobSub (VSFilter), Linkur

Haali Media Splitter, Linkur (Ætti að birtast eitthvað svona: Mynd í task bar hjá ykkur þegar hann hrekkur í gang)

Hvernig nota ég þetta svo?

1. Setið upp draslið
2. Slökkvið á x264 afkóðuninni sem FFDShow notar með því að:
Spila .x264 skrá í MPC
Hægriklikkið og farið í Filters > FFDShow

Mynd

Farið síðan í FFDShow video decoder settings, Farið í Codecs og finnið x.264 töfluna og breytið því úr "libavcodec" í "disabled"

Mynd

3. Slökkvið og oppnið x264 skránna aftur og farið í filters og þá lúkkar þetta svona:

Mynd

4. Tada! CoreAVC verður núna notað í stað FFDShow til að afkóða x264 skrár

Núna ætti jafnvel vesælustu tölvur að geta höndlað að spila að minnsta kosti 720p !

Fengið frá SCT með hjálp HDbits
Ízlenzkað af mér


Ef þið sjáið einhverjar innsláttar / stafsetningar-villur bjallið í mig

Sent: Fim 18. Okt 2007 18:30
af ÓmarSmith
wtf...

afhverju ekki bara spila þetta beint í Media player eða VLC.

ég hef ekki verið í vandræðum með það svo mig minni hingað til ;)


Þetta er óþarflega flókið ferli.

Re: Hvernig skal Spila Háskerpu efni (HD)

Sent: Fim 18. Okt 2007 19:49
af urban
CraZy skrifaði:Fengið frá SCT með hjálp HDbits
Ízlenskað af mér


Ef þið sjáið einhverjar innsláttar / stafsetningar-villur bjallið í mig


veit ekki hvort að þetta átti að vera grín eða ekki...

en hérna...
íslenzkað
ekki
ízlenskað...
fyrir utan að það er náttúrulega löngu búið að fella þessa z úr gildi :)

Re: Hvernig skal Spila Háskerpu efni (HD)

Sent: Fim 18. Okt 2007 20:48
af CraZy
urban- skrifaði:
CraZy skrifaði:Fengið frá SCT með hjálp HDbits
Ízlenskað af mér


Ef þið sjáið einhverjar innsláttar / stafsetningar-villur bjallið í mig


veit ekki hvort að þetta átti að vera grín eða ekki...

en hérna...
íslenzkað
ekki
ízlenskað...
fyrir utan að það er náttúrulega löngu búið að fella þessa z úr gildi :)

z er tótalí kúl, fyrst þú nefnir það þá ættla ég að splæsa á 2 z !

ÓmarSmith skrifaði:wtf...

afhverju ekki bara spila þetta beint í Media player eða VLC.

ég hef ekki verið í vandræðum með það svo mig minni hingað til ;)


Þetta er óþarflega flókið ferli.


Þetta er bara betri afkóðari
Allavega reddaði þetta mér á druslunni minni

Sent: Fim 18. Okt 2007 23:33
af CendenZ
ÓmarSmith skrifaði:wtf...

afhverju ekki bara spila þetta beint í Media player eða VLC.

ég hef ekki verið í vandræðum með það svo mig minni hingað til ;)


Þetta er óþarflega flókið ferli.


Margar eldri vélar höndla ekki flókna afkóðunarrumluna í vlc.

thats why!

Ég á hinsvegar ekki það gamla vél að þetta hjálpi mér.

Sent: Fös 19. Okt 2007 16:07
af Ljosastaur
Ég dreg orð mín til baka.

Ég hefði nú haldið að stjórnandi færi eftir reglum síðunnar.

9. gr.

Notendum ber að fara eftir lögum þegar þeir skrifa bréf.
Þetta er gert til að tryggja langlífi vaktarinnar. Þessi regla er ekki bara
formsatriði eins og sumstaðar, henni er fylgt eftir eins og öðrum reglum


CoreAVC er varið höfundarréttarlögum og það er lögbrot að sækja það þarna.
Ef menn vilja ná sér í það bendi ég á http://www.coreavc.com

Sent: Fös 19. Okt 2007 18:45
af CraZy
Ljosastaur skrifaði:Ég hefði nú haldið að stjórnandi færi eftir reglum síðunnar.

9. gr.

Notendum ber að fara eftir lögum þegar þeir skrifa bréf.
Þetta er gert til að tryggja langlífi vaktarinnar. Þessi regla er ekki bara
formsatriði eins og sumstaðar, henni er fylgt eftir eins og öðrum reglum


CoreAVC er varið höfundarréttarlögum og það er lögbrot að sækja það þarna.
Ef menn vilja ná sér í það bendi ég á http://www.coreavc.com

Þú mátt kaupa það ef þú endilega villt :roll:

Sent: Lau 20. Okt 2007 00:57
af gumol
Ljosastaur skrifaði:CoreAVC er varið höfundarréttarlögum og það er lögbrot að sækja það þarna.

Endilega bentu á lögin eða þær réttarheimildir sem verið er að brjóta gegn með því að ná í þetta.

Það er líka brot á reglunum að koma með einhverja fullyrðingu út í bláinn.

Sent: Sun 21. Okt 2007 11:57
af Ljosastaur
Afsakið svar mitt fyrir ofan.

Eftir þennan póst fór ég og kynnti mér þessi blessuðu höfundarréttarlög og fann ekkert sem bannaði fólki að sækja þennan hugbúnað.
Ég hafði heyrt að þetta væri brot á höfundarréttarlögum en þær upplýsingar hafa greinilega verið rangar.

Ég bið því Crazy innilegar afsökunar á svari mínu fyrir ofan og þakka honum fyrir flottar leiðbeiningar.

Ég hvet samt menn eindregið að kaupa hugbúnaðinn ef þeim líkar vel við.

Sent: Sun 21. Okt 2007 12:05
af GuðjónR
Ljósastaur...talandi um höfundarréttarlög. :)

Sent: Sun 21. Okt 2007 12:18
af CraZy
Ljosastaur skrifaði:Afsakið svar mitt fyrir ofan.

Eftir þennan póst fór ég og kynnti mér þessi blessuðu höfundarréttarlög og fann ekkert sem bannaði fólki að sækja þennan hugbúnað.
Ég hafði heyrt að þetta væri brot á höfundarréttarlögum en þær upplýsingar hafa greinilega verið rangar.

Ég bið því Crazy innilegar afsökunar á svari mínu fyrir ofan og þakka honum fyrir flottar leiðbeiningar.

Ég hvet samt menn eindregið að kaupa hugbúnaðinn ef þeim líkar vel við.

hehe.. við erum góðir ;)

Sent: Sun 21. Okt 2007 12:58
af Ljosastaur
GuðjónR skrifaði:Ljósastaur...talandi um höfundarréttarlög. :)


Margt sem er ekki höfundaréttarvarið á Usenet, þó flest áhugavert sé það.

CraZy skrifaði:hehe.. við erum góðir ;)


Flott.

Sent: Mán 22. Okt 2007 09:50
af Dagur
Er það ekki bara bannað í bandaríkjunum?

Ég spyr út af þessu

Sent: Fös 23. Nóv 2007 12:08
af Zorba
Afhverju notarðu svona gamla útgáfu af coreavc?

Ég er sjálfur að nota 1.6

Sent: Fös 23. Nóv 2007 14:32
af CraZy
DMT skrifaði:Afhverju notarðu svona gamla útgáfu af coreavc?

Ég er sjálfur að nota 1.6

Ég er bara svona retro :8)
En annars þá er þetta gamall guide þannig að það er við því að búast að þetta hafi eitthvað uppfærst síðan

Sent: Fös 23. Nóv 2007 17:46
af Zorba
Hehe ókei..Ég var bara að pæla því að hef heyrt fólk segja að pre-beta og einhverjar aðrar eldri útgáfur af coreavc hafi virkað betur en nýju

Sent: Fös 04. Jan 2008 22:33
af Pandemic
Snilldar guide, var að reyna að spila .mkv fæl í gær og þetta bjargaði mér...

Takk