Coolshop.is


Höfundur
falcon1
vélbúnaðarpervert
Póstar: 911
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 110
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Coolshop.is

Pósturaf falcon1 » Mið 18. Jún 2025 13:26

er öruggt að versla við þá vefsíðu?



Skjámynd

flottur
Tölvutryllir
Póstar: 693
Skráði sig: Þri 02. Jún 2009 14:37
Reputation: 47
Staðsetning: Gardentown
Staða: Ótengdur

Re: Coolshop.is

Pósturaf flottur » Mið 18. Jún 2025 13:32





Diddmaster
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 389
Skráði sig: Fös 19. Júl 2013 20:55
Reputation: 75
Staðsetning: Reykjanesbæ
Staða: Tengdur

Re: Coolshop.is

Pósturaf Diddmaster » Mið 18. Jún 2025 13:37

Uuuu já


Asus Z390-A Prime i7 9700k CPU Thermaltake 3.0 Extreme Corsair 16GB (2x8) 3000MHz CL15 500 GB Samsung 970 EVO Plus m.2 palit 2080 super seasonic 760w 80+ platinum

Skjámynd

Henjo
Geek
Póstar: 863
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 331
Staða: Ótengdur

Re: Coolshop.is

Pósturaf Henjo » Mið 18. Jún 2025 13:47

Já, hef tvisvar pantað frá þeim. Fékk einusinni sent í póstbox og hitt sótti ég í leikfangabúðina í smára. Þrátt fyrir heimskulega fáránlegt nafn þá er þetta legit. Veit samt ekki hversu mikið vesen það er ef varan er gölluð eða bilar.




Höfundur
falcon1
vélbúnaðarpervert
Póstar: 911
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 110
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Coolshop.is

Pósturaf falcon1 » Mið 18. Jún 2025 13:49

Ok, kúl - vildi bara vera viss. :D




Dr3dinn
Tölvutryllir
Póstar: 639
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 21:44
Reputation: 103
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Coolshop.is

Pósturaf Dr3dinn » Mið 18. Jún 2025 14:05

Hef tvisar skilað vörum til þeirra, án mikils vesens, alveg eðlileg búð oft með mun betri verð á logitech vörum en sambærilegt hérlendis


Vélar
Leikja:Corsair Carbide 400C Clear - AMD 7800X3D - ASROCK b650 lightning - Samsung 990 1tb, Sabrent m.2 1TB, s 32GB(2x16 GB) 6000 MHz - ASRock Radeon RX 6900XT Phantom Gaming D 16GB -1x Odyssey G7 32, 240hz, 1ms, QHD 1440p

Vinnuvélin:Corsair Carbide 275R White - AMX 3900x -Samsung 1TB Pro-32GB (2x16 GB) 3400 MHz Corsair -2060 MSI Ventus 6 GB


Gerbill
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 332
Skráði sig: Mán 22. Sep 2008 16:36
Reputation: 5
Staða: Ótengdur

Re: Coolshop.is

Pósturaf Gerbill » Mið 18. Jún 2025 15:43

Eini gallinn er að lagerinn þeirra er að stórum hluta í Danmörku svo getur tekið nokkra daga að fá vöruna.



Skjámynd

olihar
ÜberAdmin
Póstar: 1330
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 305
Staða: Ótengdur

Re: Coolshop.is

Pósturaf olihar » Mið 18. Jún 2025 15:44

Ég hef verslað þarna, þetta er legid en hef 2 lent í því að varan er ekki það sem átti að vera.




andrith
Nýliði
Póstar: 17
Skráði sig: Sun 16. Júl 2017 21:39
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Coolshop.is

Pósturaf andrith » Mið 18. Jún 2025 16:03

Verslaði einu sinni Kindle af þeim því þau voru með ódýrasta verðið. Þegar ég fékk vöruna þá gat ég ekki sett hann upp, fékk bara villu um að hann væri læstur. Hafði samband við Amazon og fékk þær upplýsingar að Kindilinn væri merktur stolinn og verslunin væri að gera eitthvað vitlaust. Þurfti því að skila honum til Coolshop og fá nýjan. Þau voru náttúrulega ekki með þetta á lager svo ég þurfti að bíða eftir nýjum.

Allt ferlið tók 2 mánuði eftir að ég uppgötvaði vandamálið, sem var pínu bömmer. Nokkrum klst eftir að ég senti þeim að ég vildi fá endurgreiðslu því þetta var að taka svo langan tíma þá fékk ég tilkynningu um að hann væri kominn í póst :japsmile
Síðast breytt af andrith á Mið 18. Jún 2025 16:06, breytt samtals 3 sinnum.




vatr9
Nörd
Póstar: 124
Skráði sig: Fim 18. Sep 2008 13:34
Reputation: 44
Staða: Ótengdur

Re: Coolshop.is

Pósturaf vatr9 » Mið 18. Jún 2025 18:44

Verslað nokkrum sinnum af þeim og allt gengið vel. Tekur 10 til 15 daga að berast frá Danmörku.
Yfirleitt eru verðin á þeim vörum sem ég hef pantað 10 - 20 % ódýrari en hér heima.