Góðan daginn
Var að fara að versla á Bílanaust.is eins og ég geri gjarnan og læt senda til mín út á land, þar er auðvitað lokað í dag svo ég náði ekki í neinn þar, en nú fer greiðsluhnappurinn fyrir pöntunina hjá þeim með mig inn á slóðina:
https:// verslun . fannsker . is / innskraning
Það er eitthvað shady við þessa síðu finnst mér, SSL útrunninn fyrir löngu, beðið um rafræn skilríki innskráningu en áður þegar maður greiddi var maður sendur beint á rapyd eða valitor eða eitthvað slíkt bara embedded á vefversluninni hjá þeim
Ætli sé búið að hakka eitthvað og verið að reyna að svindla eitthvað á mér með þessari innskráningu?
Ég er að sjálfsögðu búinn að senda þeim skeyti með fyrirspurn um þetta en er forvitinn hvað ykkur finnst
Netverslun Bílanaust - öryggi - Hakk?
Re: Netverslun Bílanaust - öryggi - Hakk?
Verslaði á síðunni hjá þeim í gærkvöldi og lenti ekki í þessu. Þetta er eitthvað shady þykir mér.
Síðast breytt af Ghost á Fim 29. Maí 2025 23:54, breytt samtals 1 sinni.