Kísildalur
-
- /dev/null
- Póstar: 1460
- Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
- Reputation: 455
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: Kísildalur
Fór með 2080Ti sem var bilað, VRAM mál. Kísildalur staðfesti á einum degi bilunina og ég fékk nýtt kort strax.
Kísildalur er 100% heiðarlegir með svona hluti og myndu aldrei reyna að svindla á neinum, slíkt væri gersamlega fáránlegt eftir að hafa byggt upp frábært repp yfir mörg ár.
> Það vantar eitthvað í þessa sögu hjá innleggshöfundi CrazyHelgi, lyktar sem hefndarþráður. Gaurinn setur disk í sem greinilega short cuircitar, tölvan bilar í framhaldinu og svo á verslunina að taka ábyrgð, bara rugl.
>>> @Crazyhelgi, varstu búinn að gefa þessu tíma og leyfa Kísildal að skoða málið almennilega eða rage-aðir þú strax hérna þegar þeir sögðu þér að gamli diskurinn þinn var með skammhlaup?

--
|| Core Ultra 9 - Z890 - DDR8800 - 5090 - ||

- has spoken...
- Póstar: 177
- Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
- Reputation: 40
- Staðsetning: 105
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Templar skrifaði:Fór með 2080Ti sem var bilað, VRAM mál. Kísildalur staðfesti á einum degi bilunina og ég fékk nýtt kort strax.
Kísildalur er 100% heiðarlegir með svona hluti og myndu aldrei reyna að svindla á neinum, slíkt væri gersamlega fáránlegt eftir að hafa byggt upp frábært repp yfir mörg ár.
> Það vantar eitthvað í þessa sögu hjá innleggshöfundi CrazyHelgi, lyktar sem hefndarþráður. Gaurinn setur disk í sem greinilega short cuircitar, tölvan bilar í framhaldinu og svo á verslunina að taka ábyrgð, bara rugl.
>>> @Crazyhelgi, varstu búinn að gefa þessu tíma og leyfa Kísildal að skoða málið almennilega eða rage-aðir þú strax hérna þegar þeir sögðu þér að gamli diskurinn þinn var með skammhlaup?
Mér þykir þú gefa þér ansi mikið þarna. Ef hann væri óheiðarlegur hefði hann sett þetta drif í og tölvan öll brunnið yfir strax hefði hann væntanlega tekið drifið úr áður en hann fór með hana til Kísildals. Mér þykir líka yfirgnæfandi líkindi að þá hefði hann fengið þessu útskipt í ábyrgð. Þannig ég myndi frekar gefa mér að þetta drif hafi einmitt verið í lagi fyrst og hann því ekki tengt þessa atburðarás við þetta drif á nokkurn hátt þegar hann fer með þetta til þeirra.
En ég er sammála þér í því að Kísildalur hefur einmitt alltaf staðið við sitt gagnvart mér líka og hefur almennt gott orð á sér hjá fólki.
edit : Bætti við "væri óheiðarlegur" svo meiningin væri skýrari.
Síðast breytt af Gemini á Þri 27. Maí 2025 00:06, breytt samtals 2 sinnum.
-
- /dev/null
- Póstar: 1460
- Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
- Reputation: 455
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: Kísildalur
Gemini, ég gef mér ekkert, kisildalur.is segir að ofan að diskurinn var með sksmmhlaup. Gamall diskur sem hann setti í.
--
|| Core Ultra 9 - Z890 - DDR8800 - 5090 - ||
|| Core Ultra 9 - Z890 - DDR8800 - 5090 - ||
-
- has spoken...
- Póstar: 177
- Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
- Reputation: 40
- Staðsetning: 105
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Templar skrifaði:Gemini, ég gef mér ekkert, kisildalur.is segir að ofan að diskurinn var með sksmmhlaup. Gamall diskur sem hann setti í.
Ég er ekkert að rengja það. Var meira að setja út á að þú værir að saka hann um einhvern mögulegan óheiðarleika í frásögn. Þannig ég vildi benda á ef hann væri óheiðarlegur hefði hann væntanlega farið með tölvuna án þessa drifs. Hann var að lenda í ömurlegum aðstæðum og kannski óþarfi að bæta á það hérna.
-
- /dev/null
- Póstar: 1460
- Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
- Reputation: 455
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: Kísildalur
Þetta bar einkenni hefndarhugs strax, hann neitar að horfast í augu við það að bilunin á sér stað eftir að hann setur gamlan disk í og taka ábyrgð á eigin gjörðum. Leiðinlegt og allt það en shit happens en þú varst að skrúfa gamalt dót í nýja tölvu verður maður að axla ábyrgð á því.
Nei hann mætir hingað til að fá samúð og reyna að skaða orðspor verslunarinnar þegar honum er eðlilega bent á gamla diskinn með skammhlaup. Lélegt.
@CrazyHelgi þú sagðist ekki hafa sótt tölvuna sjálfur, hver sótti tölvuna og hvað sagði sá sem sótti tölvuna við þig? Af hverju hringdir þú ekki í Kísildal áður en þú bjóst til þennan þráð?

Síðast breytt af Templar á Þri 27. Maí 2025 08:21, breytt samtals 1 sinni.
--
|| Core Ultra 9 - Z890 - DDR8800 - 5090 - ||
|| Core Ultra 9 - Z890 - DDR8800 - 5090 - ||
Re: Kísildalur
rapport skrifaði:Finnst smá "þú raufst innsigli" fílingur yfir þessu en bara trúi því ekki upp á Kísildal
Nákvæmlega það sem ég hugsaði.
Það að tölvan virkaði í 7 daga (skv. OP) eftir að diskurinn var settur í tölvuna áður en örgjörvinn deyr og að móðurborðið er í lagi fær mig til að efast þessa niðurstöðu en frekar.
Ég treysti Kísildal að öllu jöfnu 100%, en það að maður hefur lesið að í örfáum tilvikum hafa ASRock borð verið að drepa örgjörva af 9000 línunni fær mig til að halda að í þessu tilviki hafi Kísildalur átt að leyfa viðskiptavininum að njóta vafans og skipt örgjörvanum út í ábyrgð.
Nýlegt umfjöllun
Er hægt að sanna að þetta hafi ekki verið móðurborðið sem grillar örgjörvan? Get ekki séð fyrir mér að OP tapi málinu ef hann fer með málið fyrir Kærunefnd.
Re: Kísildalur
chaplin skrifaði:Er hægt að sanna að þetta hafi ekki verið móðurborðið sem grillar örgjörvan?
Og jafnvel, er hægt að sanna að örgjörvinn hafi ekki grillað diskinn?
Löglegt WinRAR leyfi
-
- Kóngur
- Póstar: 6554
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Reputation: 529
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
spyr sá sem ekki veit.
er ekki hægt að sækja þetta í heimilistryggingar?

CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow
-
- has spoken...
- Póstar: 177
- Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
- Reputation: 40
- Staðsetning: 105
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
worghal skrifaði:spyr sá sem ekki veit.

Það eru alveg fleiri leiðir fyrir hann. T.d. heimilistrygging, ef hann borgaði með kreditkorti gæti verið einhver trygging þar líka eins getur hann líklega sent bara sjálfur örgjörvann í RMA til AMD.
Síðast breytt af Gemini á Þri 27. Maí 2025 10:45, breytt samtals 1 sinni.
-
- /dev/null
- Póstar: 1460
- Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
- Reputation: 455
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: Kísildalur
chaplin skrifaði:rapport skrifaði:Finnst smá "þú raufst innsigli" fílingur yfir þessu en bara trúi því ekki upp á Kísildal
Nákvæmlega það sem ég hugsaði.
Það að tölvan virkaði í 7 daga (skv. OP) eftir að diskurinn var settur í tölvuna áður en örgjörvinn deyr og að móðurborðið er í lagi fær mig til að efast þessa niðurstöðu en frekar.
Ég treysti Kísildal að öllu jöfnu 100%, en það að maður hefur lesið að í örfáum tilvikum hafa ASRock borð verið að drepa örgjörva af 9000 línunni fær mig til að halda að í þessu tilviki hafi Kísildalur átt að leyfa viðskiptavininum að njóta vafans og skipt örgjörvanum út í ábyrgð.
Nýlegt umfjöllun
Er hægt að sanna að þetta hafi ekki verið móðurborðið sem grillar örgjörvan? Get ekki séð fyrir mér að OP tapi málinu ef hann fer með málið fyrir Kærunefnd.
Kísildalur er búinn að segja að það er skemmd á disknum, straumur shortaður yfir í jörð.
OP er einnig búinn að segja að einhver annar sótti tölvuna, hann hefur ekki verið í samskiptum við Kísildal, samt kemur hann hingað að kvarta yfir þeim.
Um að gera að standa með neytendum en það verða allir að vera sanngjarnir hérna, ekki séns að Kisildalurinn sé að reyna eitthvað funny shit, þeir myndu aldrei gera það.
--
|| Core Ultra 9 - Z890 - DDR8800 - 5090 - ||
|| Core Ultra 9 - Z890 - DDR8800 - 5090 - ||
-
- Kóngur
- Póstar: 6554
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Reputation: 529
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Templar skrifaði:chaplin skrifaði:rapport skrifaði:Finnst smá "þú raufst innsigli" fílingur yfir þessu en bara trúi því ekki upp á Kísildal
Nákvæmlega það sem ég hugsaði.
Það að tölvan virkaði í 7 daga (skv. OP) eftir að diskurinn var settur í tölvuna áður en örgjörvinn deyr og að móðurborðið er í lagi fær mig til að efast þessa niðurstöðu en frekar.
Ég treysti Kísildal að öllu jöfnu 100%, en það að maður hefur lesið að í örfáum tilvikum hafa ASRock borð verið að drepa örgjörva af 9000 línunni fær mig til að halda að í þessu tilviki hafi Kísildalur átt að leyfa viðskiptavininum að njóta vafans og skipt örgjörvanum út í ábyrgð.
Nýlegt umfjöllun
Er hægt að sanna að þetta hafi ekki verið móðurborðið sem grillar örgjörvan? Get ekki séð fyrir mér að OP tapi málinu ef hann fer með málið fyrir Kærunefnd.
Kísildalur er búinn að segja að það er skemmd á disknum, straumur shortaður yfir í jörð.
OP er einnig búinn að segja að einhver annar sótti tölvuna, hann hefur ekki verið í samskiptum við Kísildal, samt kemur hann hingað að kvarta yfir þeim.
Um að gera að standa með neytendum en það verða allir að vera sanngjarnir hérna, ekki séns að Kisildalurinn sé að reyna eitthvað funny shit, þeir myndu aldrei gera það.
OP er einnig búinn að segja að hann gerði póstinn með mikið minni upplýsingar en hann fékk eftir að hann gerði póstinn.
CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow
Re: Kísildalur
Njall_L skrifaði:Og jafnvel, er hægt að sanna að örgjörvinn hafi ekki grillað diskinn?
Nákvæmlega. Finnst það ólíklegt, en finnst það líka ólíklegt að drifið hafi grillað örgjörvan. Eina sem mér finnst koma til greina er að móðurborðið sé sökudólgurinn.
worghal skrifaði:spyr sá sem ekki veit.
er ekki hægt að sækja þetta í heimilistryggingar?
Þetta hljómar ekki eins og tryggingarmál, þetta hljómar eins og einfalt ábyrgðarmál.
Ef ég væri OP myndi ég fara eftir ráðum wICE_man og fara með þetta til Neytendastofu eða Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa, þar sem ég get ekki séð hann tapa þessu máli.
Kísildalur þarf að sanna að
- Diskurinn sé valdur þess að örgjörvinn skemmdist, eflaust stjarnfræðilega sjaldgæft og hef ég aldrei heyrt það gerast (efast ekki um að það gæti gerst).
- Að það hafi ekki verið móðurborðið sem skemmdi örgjörvann sem gæti verið mjög erfitt að sanna þar sem framleiðandinn fyrir móðurborðið er að gefa út firmware til að koma í veg fyrir að móðurborðin steiki örgjörvana.
Bara mín 2 cent..
-
- Stjórnandi
- Póstar: 17029
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2297
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: Kísildalur
Það má velta fyrir sér hvers konar ákvörðun Kísildalur er að taka hér.
Við erum að tala um örgjörva sem kostar um 42.000 krónur. Ef málið fer fyrir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa og fyrirtækið tapar, þarf það að greiða 35.000 krónur í kostnað, útvega nýjan örgjörva, borga fyrir sendingar og ísetningu íhlutar og verja tugum klukkustunda í pappírsvinnu og svörun. Þetta er ferli sem tekur allt að sex mánuði.
Kísildalur leggur því orðspor sitt, viðskiptatengsl og ímynd í söluna fyrir eitthvað sem er tæplega þess virði.
Er þetta virkilega sú barátta sem þeir ætla að velja? Fyrir utan efnislegan kostnað, þá er hér verið að kalla yfir sig viðskiptalega áhættu og langvarandi umræðu sem getur haft áhrif á traust viðskiptavina. Þegar allt kemur til alls er þetta ekki spurning um lög og reglur eingöngu, heldur líka um dómgreind.
Einmitt. Það er ekkert óeðlilegt að verslun taki afstöðu, en ef hún ætlar að leggja slíkt mat til grundvallar, þá verður hún líka að vera tilbúin að svara fyrir það. Ef það mat stendur ekki af sér faglegt mat óháðrar neytendastofnunar, þá er tjónið orðið margfalt.
Þetta snýst ekki bara um einn örgjörva. Þetta snýst um hvort viðskiptaþjónusta og traust séu bara slagorð, eða raunveruleg stefna fyrirtækisins þar sem eigandi þess virðist tilbúinn að leggja gott orðspor sem hann hefur áunnið sér að veði fyrir smámuni

wICE_man skrifaði:Ef ég hefði ekki séð beina tengingu þarna á milli sem skýrir hvernig þetta gerðist þá hefði ég klárlega leyft viðskiptavini á njóta vafans.
Einmitt. Það er ekkert óeðlilegt að verslun taki afstöðu, en ef hún ætlar að leggja slíkt mat til grundvallar, þá verður hún líka að vera tilbúin að svara fyrir það. Ef það mat stendur ekki af sér faglegt mat óháðrar neytendastofnunar, þá er tjónið orðið margfalt.
Þetta snýst ekki bara um einn örgjörva. Þetta snýst um hvort viðskiptaþjónusta og traust séu bara slagorð, eða raunveruleg stefna fyrirtækisins þar sem eigandi þess virðist tilbúinn að leggja gott orðspor sem hann hefur áunnið sér að veði fyrir smámuni
-
- /dev/null
- Póstar: 1460
- Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
- Reputation: 455
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: Kísildalur
@guðjónr Kísildalur segir frá því sem þeir sjá og hafa eflaust spurt eitthvað út í þetta. OP segir svo einhvern annan hafa sótt tölvuna og hann viti ekki hvað þar fór fram en samt kemur OP hingað að gera Kísildal grunsamlegan.
Þú hefur einmitt 100% rétt fyrir þér þegar þú spyrð eðliega að þetta snýst ekki um bara einn örgjörfa, þetta veit Kísildalur 100% líka en á sama tíma er ekki hægt að fara að borga tjón sem er ekki 100% að sé þeirra. Menn eiga ekki að komast upp með að fjárkúga fyrirtæki með hótun um að tala illa um þau á netinu.
Tölvan er svo sótt af einhverjum öðrum aðila, það vantar í þá frásögn, hvað fór á milli þess aðila og Kísildal?
"Kísildalur leggur því orðspor sitt, viðskiptatengsl og ímynd í söluna fyrir eitthvað sem er tæplega þess virði." Nákvæmlega, þeir myndu aldrei segja nei eða biðja um lengri tíma að skoða málið nema að þarna væri alveg á tæru að tjónið sjáist á harða diskinum gamla sem var settur í tölvuna.
Þetta er alveg eins og bíleigendur sem eru ósanngjarnir, menn eru að redda sér eitthvað í sveitinni, það klikkar og svo á mæta með græjuna á börum í umboðið í RVK. Svo þegar þeir vilja ekki taka á sig tjón sem varð vegna auka hlutar sem var sett í bílinn eða viðgerðar í bílskúr einhvers staðar sem olli tjóni þá klikkast menn.
No way Kísildalur er að gera þessum manni grikk... Þetta er rage dæmi.

Síðast breytt af Templar á Þri 27. Maí 2025 16:22, breytt samtals 1 sinni.
--
|| Core Ultra 9 - Z890 - DDR8800 - 5090 - ||
|| Core Ultra 9 - Z890 - DDR8800 - 5090 - ||
-
- Stjórnandi
- Póstar: 17029
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2297
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: Kísildalur
Góðar athugasemdir, Templar. En það má spyrja beint ert þú talsmaður Kísildals eða telurðu að wICE_man hafi ekki styrk til að útskýra sitt eigið mat?
Þú virðist vera að svara umræðu sem enginn er að halda uppi. Það er enginn að saka Kísildal um grikk. Umræðan snýst um hvort það sé vitrænt og viðskiptalega skynsamlegt að fara þessa leið. Þeir sem gagnrýna þetta eru að velta fyrir sér hvort sé góð ákvörðun að tefla orðspori og ímynd í tvísýnu fyrir kröfu sem væri hægt að leysa með minni tilkostnaði.
Örgjörvinn kostar 42.000 krónur. Ef málið fer fyrir Kærunefnd vöru og þjónustukaupa getur það kostað fyrirtækið 35.000 krónur í beinan kostnað, auk sendinga, ísetningar og tugatals klukkustunda í pappírsvinnu. Þetta getur tekið hálft ár og haft bein áhrif á traust og orðspor.
Kísildalur hefði líklega getað claimað örgjörvann sjálfur sem gallaðan, lokað málinu og haldið áfram án umfjöllunar og áhættu. Það væri líklega minni vinna, minni áhætta og betri niðurstaða fyrir alla.
Því má spyrja, er þetta virkilega sú barátta sem þeir ætla að velja? Fyrir utan beinan kostnað og tíma, þá skapar þetta umræðu sem mun lifa áfram í hugum neytenda. Hvort sem þeir hafa rétt eða rangt fyrir sér, þá er hér verið að taka áhættu sem er varla þess virði.
Þetta snýst ekki um að einhver sé að reyna að komast upp með eitthvað. Þetta snýst um hvort fyrirtæki átti sig á því að viðskiptatraust og þjónusta er meira en bara ábyrgðarskilmálar. Það er raunveruleg stefna, eða bara slagorð.

- </Snillingur>
- Póstar: 1029
- Skráði sig: Þri 11. Des 2007 21:23
- Reputation: 22
- Staðsetning: Heima
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Ef ég myndi kaupa nýja tölvu og taka SSD diskinn sem er minni gömlu núna og setja í nýju tölvuna fljótlega virkar svo ekki tölvan
fer svo með hana láta ath fá svo þær skýringar að ég hefði eyðilagt örgjörvan í nýju tölvunni með því að setja SSD diskinn minn sem er búinn virka í mörg ár í gömlu
ég ætti erfitt með að sætta við mig við það allavega og flestir hérna liklega
fer svo með hana láta ath fá svo þær skýringar að ég hefði eyðilagt örgjörvan í nýju tölvunni með því að setja SSD diskinn minn sem er búinn virka í mörg ár í gömlu
ég ætti erfitt með að sætta við mig við það allavega og flestir hérna liklega
-
- /dev/null
- Póstar: 1460
- Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
- Reputation: 455
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: Kísildalur
@Guðjón, þú ert alger snillingur að lesa og setja þig inn málin, super mod ef þú spyrð mig.
Ég er ekki talsmaður Kísildals og tengist þeim ekkert nema ég versla hjá þeim þegar þeir eiga hlutinn sem mér vantar, ég sérpanta stundum hjá þeim líka.
Út af því þegar OP kom með þennan þráð vissi ég strax að þetta væri hefndar- og reiðiþráður, því ég veit eftir mörg mörg ár að hafa verslan við dalinn hversu heiðarlegir og bókstaflega vandaðir einstaklingar reka og vinna í versluninni. Þekki þetta frá annars staðar líka, bílaumboðin.
Ég er einmitt að svara fyrir þá því mér sem kúnna þeirra veit hversu óheiðarlegt þetta innlegg er enda búinn að rekja í því rökgalla sbr. að ofan.
Sömuleiðis er ég að svara umræðu sem hefði getað orðið og er orðin en þú segir:
"Því má spyrja, er þetta virkilega sú barátta sem þeir ætla að velja? Fyrir utan beinan kostnað og tíma, þá skapar þetta umræðu sem mun lifa áfram í hugum neytenda. Hvort sem þeir hafa rétt eða rangt fyrir sér, þá er hér verið að taka áhættu sem er varla þess virði."
Það átti sem sagt að kaupa gaurinn burt svo hann myndi ekki fara að skíta þá út, þetta kallast fjárkúgun og ég held að OP sé alveg meðvitaður um þetta sem þú ert að segja enda mætir OP hér strax í reiðiskasti og hafði ekki einu sinni talað við verslunina sjálfur þegar tölvan var sótt.
Allan daginn mun ég versla í dalnum og hvet þá sem lesa þetta að ekki kaupa þessa dellu, þetta er meiðandi og óheiðarlegt innlegg. Dalurinn myndi aldrei ekki taka sinn tíma og aðstoða þig eða axla ábyrgð. Þeir standa sig alltaf. Stend harður á mínu, OP er ekki heiðarlegur.

Maður er eiginlega kominn á þann stað að þó að líkindin eftir þessar mælingar séu að þetta drif hafi eitthvað klikkað þá er þetta svo afskaplega undarlegt allt en það sem er mikilvægast þá er þetta ekki alveg 100% hvað gerðist þarna. Þannig líklega væri sanngjarnast að láta hann njóta vafans og Kísildalur bara RMAi þennan örgjörva. Hann tapar þessu SSD drifi sínu en á sama hátt getur ekki sýnt fram á að vélbúnaðurinn frá Kísildal hafi valdið þessu eins og er allavega. Ef hann skellir samt öðru drifi svo í að það fryast svo líka eftir viku þá liggur það auðvitað öðruvísi við.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 17029
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2297
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: Kísildalur
@Templar Ég skil að þú ert með jákvæða reynslu af Kísildal og það er þér að sjálfsögðu í lófa lagið að deila henni. En þú ert kominn í þá stöðu núna að verja þá með slíku offorsi að þú virðist hvorki geta séð eðlilega gagnrýni né spurt hvort aðrir geti haft réttmætar efasemdir.
Þú kallar þetta "meiðandi" og "óheiðarlegt", en í raun er verið að gagnrýna ákvörðun sem snýr að viðskiptalegri áhættu. Ekki tilfinningar. Ekki meiðyrði. Heldur val á viðbrögðum við óljósu tjóni sem auðveldlega hefði mátt leysa með minna tapi. Hvorki fjárkúgun né reiði. Bara spurning hvort það borgi sig að gera mál úr örgjörva, þegar það gæti kostað meira en að leysa málið. Og hvort það sé skynsamlegt að styðja þá stefnu.
Þú fullyrðir að OP sé ekki heiðarlegur af því að hann hafði ekki sjálfur sótt tölvuna? Það er veik röksemd. Þetta snýst ekki um það hver sótti hana heldur hvernig fyrirtækið kýs að bregðast við. Hvort þú treystir Kísildal eða ekki breytir ekki því að áberandi aðilar þurfa að meta hvernig aðrir sjá viðbrögð þeirra. Þetta er opinbert umhverfi.
Það má alveg gagnrýna OP. En það má líka gagnrýna Kísildal. Hvorugt útilokar hitt.
---
@Gemini Samt sammála þér. Það er einmitt ekki 100% öruggt hvað gerðist og þá kemur þetta spurning: Ætti seljandinn að njóta vafans? Í þessu tilviki eru líkindin gegn honum, ekki neytandanum. Hann verður að verja ákvörðun sína og taka áhættuna á öllum kostnaðinum, orðsporslegum og fjárhagslegum, ef hann hefur rangt fyrir sér.
Og já, ef annað drif myndi klikka eftir viku, þá myndi myndin breytast. En þar til þá er þetta spurning um dómgreind og kostnaðarmat, ekki sekt eða sakleysi.
Það er ekki alltaf snjallast að hafa rétt fyrir sér, stundum er snjallast að leysa hlutina fljótt og fagmannlega.

- Tölvutryllir
- Póstar: 610
- Skráði sig: Lau 21. Sep 2019 22:53
- Reputation: 81
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Niðurstaðan sem maður kemst að skiptir ekki jafn miklu máli og hvernig maður fékk hana, eins og William K. Clifford segir. Mér allavegana finnst það áhugavert að þeir kenni diskinum um, ef hann virkaði vel áður fyrr, og sérstaklega á meðan móðurborðaframleiðandinn er á hálum ís með áræðanleika að gera. Mín 2 cent er að Kísildalur ætti einfaldlega að gera útskipti á örgjörvanum, þar sem það verður voðalega erfitt að vinna þetta mál.
Ryzen 7 7800X3d
RTX 3080 10Gb
32gb ddr5 6000MTS
1440p 180hz
RTX 3080 10Gb
32gb ddr5 6000MTS
1440p 180hz
-
- /dev/null
- Póstar: 1460
- Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
- Reputation: 455
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: Kísildalur
GuðjónR skrifaði:@Templar Ég skil að þú ert með jákvæða reynslu af Kísildal og það er þér að sjálfsögðu í lófa lagið að deila henni. En þú ert kominn í þá stöðu núna að verja þá með slíku offorsi að þú virðist hvorki geta séð eðlilega gagnrýni né spurt hvort aðrir geti haft réttmætar efasemdir.
Þú kallar þetta "meiðandi" og "óheiðarlegt", en í raun er verið að gagnrýna ákvörðun sem snýr að viðskiptalegri áhættu. Ekki tilfinningar. Ekki meiðyrði. Heldur val á viðbrögðum við óljósu tjóni sem auðveldlega hefði mátt leysa með minna tapi. Hvorki fjárkúgun né reiði. Bara spurning hvort það borgi sig að gera mál úr örgjörva, þegar það gæti kostað meira en að leysa málið. Og hvort það sé skynsamlegt að styðja þá stefnu.
Þú fullyrðir að OP sé ekki heiðarlegur af því að hann hafði ekki sjálfur sótt tölvuna? Það er veik röksemd. Þetta snýst ekki um það hver sótti hana heldur hvernig fyrirtækið kýs að bregðast við. Hvort þú treystir Kísildal eða ekki breytir ekki því að áberandi aðilar þurfa að meta hvernig aðrir sjá viðbrögð þeirra. Þetta er opinbert umhverfi.
Það má alveg gagnrýna OP. En það má líka gagnrýna Kísildal. Hvorugt útilokar hitt.
---
@Gemini Samt sammála þér. Það er einmitt ekki 100% öruggt hvað gerðist og þá kemur þetta spurning: Ætti seljandinn að njóta vafans? Í þessu tilviki eru líkindin gegn honum, ekki neytandanum. Hann verður að verja ákvörðun sína og taka áhættuna á öllum kostnaðinum, orðsporslegum og fjárhagslegum, ef hann hefur rangt fyrir sér.
Og já, ef annað drif myndi klikka eftir viku, þá myndi myndin breytast. En þar til þá er þetta spurning um dómgreind og kostnaðarmat, ekki sekt eða sakleysi.
Það er ekki alltaf snjallast að hafa rétt fyrir sér, stundum er snjallast að leysa hlutina fljótt og fagmannlega.
@Guðjón, ég skil þín sjónarmið alveg en hallast á eftirfarandi v. fyrri reynslu og rökvilla í innleggi OP sem sýna að það vantar í frásögnina.
1. "Þú kallar þetta "meiðandi" og "óheiðarlegt", en í raun er verið að gagnrýna ákvörðun sem snýr að viðskiptalegri áhættu...."
Svar >> Ég veit að dalurinn myndi aldrei svindla á neinum og alltaf axla ábyrgð væri minnsti vafi á að þetta væri ábyrgðarmál. Vitandi þetta þá vissi ég strax að það vantaði eitthvað í upphaflegt innlegg hjá OP eða CrazyHelgi. Dalurinn svíkur engann!
2. "Þú fullyrðir að OP sé ekki heiðarlegur af því að hann hafði ekki sjálfur sótt tölvuna? Það er veik röksemd..."
Svar >>Ég skal skýra aftur. Ef þú lest betur þráðinn þá kemur fram að hann sótti ekki tölvuna og þegar hann setur innleggið inn veit hann ekki hvað fór á milli þess aðila sem sótti tölvuna og talaði við Kísildal! Þú setur ekki inn meiðandi innlegg við þessar aðstæður og ekki með öll gögn málsins.
------
Niðurstaða: Það vantar ennþá í frásögn OP, ég skal láta leiðrétta mig 100% og viðurkenna mistök hafi ég gert þau en til þess þarf OP að segja rétt frá og því sem fór á milli dalsins og þess sem sótti tölvuna. Ég hef séð með rage-a inn í verslunum og hella sér yfir starfsfólk því það vildi smá tíma að skoða málið eða spurði smá út í atvikin og eyða svo næstu 10 árum að skíta út fyrirtækið.
Miðað við hvað Dalurinn er flottur og heiðarlegur tel ég slíkt vera málið hér, þetta varð rage og ekkert víst að þetta þurft að fara svona.
Bíð eftir IP að segja okkur frá samskiptum þess sem sótti tölvuna og dalsins.
Síðast breytt af Templar á Þri 27. Maí 2025 21:39, breytt samtals 1 sinni.
--
|| Core Ultra 9 - Z890 - DDR8800 - 5090 - ||
|| Core Ultra 9 - Z890 - DDR8800 - 5090 - ||
-
- Kóngur
- Póstar: 8279
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1323
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Mér gefur tekist að stúta diskum, móðurborðum og örgjörvum með handvömm í samsetningu.
Hugsanlega er Kísildalur með einhverja neglu í málinu sem þeir vilja ekki posta hér því það gerði OP að fávita en geta sagt við hann og kærunefndina ef þörf verður á.
GuðjónR kom með sjónarhorn sem er heiðarlegt og felur í sér "customer is king" nálgun. Með henni þá munu jafnvel óheiðarlegir viðskiptavinir mæla með þjónustunni...
Hvort það geri reksturinn sjálfbærann og samkeppnishæfann er svo annað mál.
Ég er of mikið "rétt skal vera rétt" en hefði boðið nýjan örgjörva á kostnaðarverði til að sýna að mér væri ekki á sama um vandræði kúnnans.
Bílaumboð eru ekki gott dæmi enda algjörar okurbúllur sem eiga litla virðingu skilið... allt annað en Kísildalur sem er algjör demantur á þessum litla markaði.
Hugsanlega er Kísildalur með einhverja neglu í málinu sem þeir vilja ekki posta hér því það gerði OP að fávita en geta sagt við hann og kærunefndina ef þörf verður á.
GuðjónR kom með sjónarhorn sem er heiðarlegt og felur í sér "customer is king" nálgun. Með henni þá munu jafnvel óheiðarlegir viðskiptavinir mæla með þjónustunni...
Hvort það geri reksturinn sjálfbærann og samkeppnishæfann er svo annað mál.
Ég er of mikið "rétt skal vera rétt" en hefði boðið nýjan örgjörva á kostnaðarverði til að sýna að mér væri ekki á sama um vandræði kúnnans.
Bílaumboð eru ekki gott dæmi enda algjörar okurbúllur sem eiga litla virðingu skilið... allt annað en Kísildalur sem er algjör demantur á þessum litla markaði.
-
- Kóngur
- Póstar: 8279
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1323
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Templar skrifaði: rant
Þú ert ekki að hjálpa Kísildal með þessu ranti eða lægja neinar öldur. OP virðist búa úti á landi og það er ástæðan fyrir að einhver annar pikkaði vélina upp.
Að gera honum upp ásetning og fara að fabúlera um ástæður er bara algjört aukaatriði.
-
- /dev/null
- Póstar: 1460
- Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
- Reputation: 455
- Hafðu samband:
- Staða: Tengdur
Re: Kísildalur
@Rabbport, las fyrsta póstið og hugsaði, dang gott innlegg og svo kemur mótþróinn low tension position. Það eru rökvillur sem gefa sterklega til kynna blekkingu í innleggjum OP eða næstum því tryggja þær.
Sem sagt Dalurinn á með þögninni láta þetta rugl yfir sig vaða því að OP er ekki heiðarlegur, þeir eru að því og þið væruð að kaupa "hneyksli" og "eftir mörg ár af að því að byggja upp repp þá..." ef einhver hefði ekki bent á það augljósa að Dalurinn svíkur engann. Þú ert að taka easy position hérna í seinna innlegginu eins og vanalega.
Custmer is King er cool en þá verða allir að vera heiðarlegir.
Ég er kominn með nóg af þessari hjarðhegðun í samfélaginu og sjá fólk og fyrirtæki eyðilagt því einhver sagði eitthvað sem reynist svo ekki satt.
Ekki séns að OP fékk slæma meðferð, vantar ennþá í þetta allt saman.
>> Við erum ennþá að bíða eftir uppfærslu frá OP.. Getum við ekki sammælst að bíða eftir henni?

- Besserwisser
- Póstar: 3185
- Skráði sig: Mán 03. Jan 2011 00:22
- Reputation: 237
- Staða: Ótengdur
Re: Kísildalur
Athyglisverð lesning
Viðskiptavinur fær ALLTAF að njóta vafrans en mér sýnist kísildalur hafa sýnt fram á að ekki sé um framleiðslugalla að ræða og í raun sýnir þetta enn og aftur hversu heiðarlegir þeir eru.. Sem er því miður ekki í hag viðskiptavinar í þetta skiptið.
Fyrirtæki þurfa líka að bera virðingu fyrir framleiðendum og troða ekki endalausum claimum í gegn sem eiga klárlega ekki rétt á sér, en ef vafi er... Um að gera að reyna á framleiðanda.
Ég hef beint og óbeint átt gríðarlega mikil viðskipti við kísildal, tekið ófáar vélar í bilanagreiningu sem ég hef þurft að senda til þeirra þegar hlutir voru gallaðir og í ábyrgð o.s.f - aldrei vesen að claima þegar það á við.
Það má síðan alltaf ræða hvort hægt að selja nýjan örgjörva a cost pris + vsk og/eða gefa afslátt af vinnu eða fella niður greiningu ef vélin er glæný o.s.f.
Aldrei spennandi fyrir neinn að standa í svona.

Síðast breytt af gunni91 á Mið 28. Maí 2025 00:11, breytt samtals 1 sinni.