File server / nas server / annað


Höfundur
Hallipalli
Ofur-Nörd
Póstar: 240
Skráði sig: Þri 12. Mar 2013 16:04
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

File server / nas server / annað

Pósturaf Hallipalli » Mið 26. Jún 2019 08:47

Sælir Vaktarar

Langar í sniðuga hagkvæma lausn fyrir gögn hjá fyrirtæki.

Lítið fyrirtæki 3-5manns sem hefur verið að notast við skýjalausn sem er ekki að gera sig og er of kostnaðarsöm.

Fyrir svona lítið battery þar sem ekki er mikið um þung gögn mest skjöl, myndir og þetta klassíka með hverju mynduð þið mæla með?

Með eftirfarandi breytur í huga: Hagkvæmt, einfalt, hægt að komast i gögn utan skrifstofu (VPN, annað).

Var að pæla hvort það væri best að setja upp Windows Server og setja upp AD og allt það með fileshare (þá er spurning hvort það þurfi að afrita file server hjá öðrum líka uppá öryggi).

Setja upp NAS file server

Setja upp gamla desktop vél með file server

Aðrar hugmyndir til að fá boltann til að rúlla?



Skjámynd

russi
FanBoy
Póstar: 726
Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
Reputation: 175
Staðsetning: Terran Empire
Staða: Ótengdur

Re: File server / nas server / annað

Pósturaf russi » Mið 26. Jún 2019 11:48

Nextcloud gæti verið hentugt fyrir ykkur.

Setur upp linux vél með vefserver og setur upp Nextcloud, færð þér SSL Certifacate í gegnum Let´s Eyncrypt eða á öðrum góðum stað.
Getur svo nálagst gögn á ýmsan hátt, með client á desktop og síma og svo líka í gegnum Vefbrowser. Færð líka möguleika að deila skjölum með link, sem þú getur verndað með passwordi og/eða tímasetningum. Getur líka búið til upload linka ef á að senda ykkur stærri gögn.

Ert þarna líka með mögulega að setja Collabora-plugin upp með þessu ef þú villt að fólk geti unnið saman í Office skjölum.
Fullt af öðrum skemmtilegum plug-ins sem er hægt að setja með ef þörf krefur.

Basicly í réttri uppsetningu mætti kalla þetta gott hybrid af Dropbox og Google Apps




Höfundur
Hallipalli
Ofur-Nörd
Póstar: 240
Skráði sig: Þri 12. Mar 2013 16:04
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: File server / nas server / annað

Pósturaf Hallipalli » Mið 26. Jún 2019 14:12

Nextcloud hljómar svipað og Tresorit og ef eg skil "pricing" rétt hja þeim er það of dýrt.

Erum með 1TB One drive hver einstaklingur.

En þurfum eitthvað meira concrete veit ekki hvort filserver sé bara nóg eða setja bara upp nettann server fyrir crewið.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: File server / nas server / annað

Pósturaf Viktor » Mið 26. Jún 2019 14:25

Hvað var of dýrt, og hvað kostaði það? Hvað olli hægaganginum? Er 1500 kr. á mánuði per user of dýrt?

Ég myndi klárlega skoða þetta ef ég væri í þessum hugleiðingum:

https://gsuite.google.com/solutions/small-business/

https://products.office.com/EN/onedrive ... ness-plans


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

russi
FanBoy
Póstar: 726
Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
Reputation: 175
Staðsetning: Terran Empire
Staða: Ótengdur

Re: File server / nas server / annað

Pósturaf russi » Mið 26. Jún 2019 14:43

Hallipalli skrifaði:Nextcloud hljómar svipað og Tresorit og ef eg skil "pricing" rétt hja þeim er það of dýrt.


Nextcloud er frítt ef þú setur það upp sjálfur og sérð um það



Skjámynd

olihar
spjallið.is
Póstar: 420
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 85
Staða: Ótengdur

Re: File server / nas server / annað

Pósturaf olihar » Mið 26. Jún 2019 15:08

Skella upp Qnap NAS-i getur verið með allskonar þægilegt eins og version-ing á skrám. Það er upfront kostnaður að sjálfsögðu.



Skjámynd

nidur
/dev/null
Póstar: 1355
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 192
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: File server / nas server / annað

Pósturaf nidur » Mið 26. Jún 2019 22:29

Getur notað owncloud á freenas.

Hef sjálfur verið að nota það seinustu ár til að copera vinnslugögn í backup og svo inn á cloud backup



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3090
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: File server / nas server / annað

Pósturaf Hjaltiatla » Mið 26. Jún 2019 22:45

nidur skrifaði:Getur notað owncloud á freenas.

Hef sjálfur verið að nota það seinustu ár til að copera vinnslugögn í backup og svo inn á cloud backup


Smá forvitni, hvaða cloud backup provider notaru fyrir cloud backup og hvernig afritaru serverinn ?


Just do IT
  √

Skjámynd

nidur
/dev/null
Póstar: 1355
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 192
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: File server / nas server / annað

Pósturaf nidur » Mið 26. Jún 2019 23:53

Hjaltiatla skrifaði:Smá forvitni, hvaða cloud backup provider notaru fyrir cloud backup og hvernig afritaru serverinn ?


Ég nota crashplan fyrir cloud backup,

Kerfið er svona hjá mér
Vinnustöðin --> Owncloud inn á Freenas --> Backup af Freenas inn á Crashplan. (þú getur keyrt CP af freenas, linux, mac eða win.)
RDC á vinnustöðina og aðgangur á owncloud skjölin í gegnum vefsíðu hvar sem.

Það sem er gott að geta gert í svona umhverfi eins og þú lýsir er að nota snapshots á freenas. Og verið með mirror eða raid-z2 sameiginlegt drif.

Kannski passar freenas ekki fyrir þetta, það er soldil vinna að læra á það ef maður hefur ekki prófað áður, en það kostar ekki neitt á mánuði að reka þetta, en ég myndi mæla með Ecc minni í vélina sem keyrir freenas og lágmark 8GB fer eftir hversu mörg TB þú þarft.




slapi
Gúrú
Póstar: 552
Skráði sig: Fös 19. Jún 2009 21:47
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: File server / nas server / annað

Pósturaf slapi » Fim 27. Jún 2019 09:18

Hvernig fælar eru þetta og hversu stórir?

Ég er með 40 terabæt í GSuite og notast við Google File Stream en þá mountarðu google drive sem network drive.
Létt að aðskilja Team Drives og Personal.
12$ á mánuði á user og ótakmarkað geymslupláss ef fleiri en 5.

https://gsuite.google.com/pricing.html

https://support.google.com/a/answer/7491144?hl=en

Ég mæli með að prófa þetta