Síða 1 af 1

Vantar að láni 15TB

Sent: Mið 05. Jún 2019 16:50
af Tiger
Þarf að uppfæra Drobo hjá mér (svo volume geti orðið stærra en 16TB) en á meðan það er gert þarf ég stað til að geyma rétt um 15TB.

Einhver sem liggur á stórum "flakkara" 3,5" diskum eða hýsingu sem getur aðstoðað mig í nokkra daga?

Re: Vantar að láni 15TB

Sent: Mið 05. Jún 2019 18:09
af arons4
Ef þú ert á þokkalega öflugri tengingu geturu keypt þér lén(t.d namecheap.com) og notað fyrirtækja útgáfuna af google drive(https://gsuite.google.com/).

Fyrir 10 dollara á mánuði ertu með ótakmarkað geymslupláss í skýjinu(þeir auglýsa 1TB per notenda en það er sammt ótakmarkað með einum notenda).

700GB upload limit á dag sammt.

Re: Vantar að láni 15TB

Sent: Mið 05. Jún 2019 19:29
af olihar

Re: Vantar að láni 15TB

Sent: Mið 05. Jún 2019 20:08
af Viktor
Má maður spyrja undir hvað í andskotanum?

Compulsive hoarding?

Re: Vantar að láni 15TB

Sent: Mið 05. Jún 2019 20:30
af Tiger
Sallarólegur skrifaði:Má maður spyrja undir hvað í andskotanum?

Compulsive hoarding?


Megnið af þessu eru 10 ár af íþrottaljósmyndum sem ég hef tekið. En algjörlega margt sem er bara söfnunarárátta líka og leti við tiltekt ásamt góðu Plex libarary.

Re: Vantar að láni 15TB

Sent: Fös 07. Jún 2019 13:56
af Cascade
Ég á því miður ekkert til að lána þér, en reglulega hægt að kaupa 10 TB flakkara á um $160 í USA

t.d. eru þeir núna á $160 hjá bestbuy
https://www.bestbuy.com/site/wd-easysto ... Id=6278208


Þú kæmir ekkert svo illa út ef þú myndir kaupa 2stk, nota þá í þetta og selja þá svo hérna á klakanum
Miðað við að þetta er selt á 50þús+ stykkið hérna. Töluvert minna en $160 með shipping og sköttum

(eða bara eiga þá áfram og bæta við 20 TB við array-ið þitt)

Re: Vantar að láni 15TB

Sent: Fös 07. Jún 2019 14:49
af selur2
Hvernig er með shipping frá Bestbuy ?
þarf maður að nota ShopUSa ?

Re: Vantar að láni 15TB

Sent: Fös 07. Jún 2019 18:32
af Tiger
Ég pantaði bara 2x8TB diska frá B&H sem ég nota til að geyma meðan ég reset-a DROBO, skipti svo út 2x 3TB fyrir þessa nýju. Tvær flugur í einu höggi og verð komin með 24TB þá avalible data.

Re: Vantar að láni 15TB

Sent: Fös 07. Jún 2019 19:20
af olihar
Vertu svo með backup af ÖLLU alltaf sérstaklega þar sem þú ert með Dropo sem eiga það til að bila alveg hræðilega illilega.

Re: Vantar að láni 15TB

Sent: Fös 07. Jún 2019 22:54
af kizi86
olihar skrifaði:Vertu svo með backup af ÖLLU alltaf sérstaklega þar sem þú ert með Dropo sem eiga það til að bila alveg hræðilega illilega.

lenti aldrei í veseni með mitt gamla Drobo FS box, sé vel eftir að hafa selt það en vantaði pening :/

Re: Vantar að láni 15TB

Sent: Mán 10. Jún 2019 11:08
af Tiger
olihar skrifaði:Vertu svo með backup af ÖLLU alltaf sérstaklega þar sem þú ert með Dropo sem eiga það til að bila alveg hræðilega illilega.


Er með online backup af öllu mikilvæga (ljósmyndum ofl) hjá Backblaze þannig að ég er safe. Já það getur allt bilað einhverntíman, búinn að eiga þessa græju síðan 2013 og ekki enn feilpúst......... 7-9-13