Síða 1 af 1

Hagstæður flakkari?

Sent: Þri 31. Okt 2017 11:34
af moa
Ég þarf að umpotta sirka 5 harða diska - Hvar er hægt að finna nettan flakkara, á hagstæðu verði, og sem er með allt í lagi repp á sér?
- 3-5 Terabæt er sennilega nóg fyrir mig.

Re: Hagstæður flakkari?

Sent: Þri 31. Okt 2017 12:19
af Moldvarpan
Afhverju viltu hafa diskana í flakkara?

Flakkarar eru frekar out-dated.

Re: Hagstæður flakkari?

Sent: Þri 31. Okt 2017 13:11
af Stingray80
Moldvarpan skrifaði:Afhverju viltu hafa diskana í flakkara?

Flakkarar eru frekar out-dated.

Hvað eru menn að nota þá í stað þeirra ?

Re: Hagstæður flakkari?

Sent: Þri 31. Okt 2017 13:55
af Moldvarpan
Það fer reyndar eftir því í hvað hann er að nota þetta.

En ef þetta er eins og 95% almennra notenda, þá er það fyrir afþreyingarefni og backup af mikilvægum skrám.

Nú þegar flest öll tæki eru orðin snjöll og nettengd, þá er þæginlegra að hafa allt efni á einum stað, og streama því svo yfir á tækin.

Re: Hagstæður flakkari?

Sent: Þri 31. Okt 2017 14:10
af Hakuna
Hef verið að versla 2,5" flakkarahýsingar á umþb 4 dollara af Ali, USB 3.0 Svo er bara að setja harðadiskinn úr tölvunni í hýsinguna. Veit svo sem ekki hvort það sé eitthvað hagstætt verð á 3,5" hýsingunum.

Fínt að nota þetta í NAS eða eitthvað slíkt, backup osfrv.

Re: Hagstæður flakkari?

Sent: Þri 31. Okt 2017 18:04
af Hjaltiatla
Sjálfur á ég Iodd Iodd2531 Black - Usb3.0 sem ég get notað bæði fyrir gögn og til að setja upp stýrikerfi beint af flakkaranum (tekur eingöngu við 2,5" diskum).

Annars nota ég Usb dokku með Duplicator function til að afrita diska, sé alls ekki eftir 9000 kr í þá græju.

Re: Hagstæður flakkari?

Sent: Mið 01. Nóv 2017 09:28
af moa
Moldvarpan skrifaði:Afhverju viltu hafa diskana í flakkara?

Flakkarar eru frekar out-dated.

-
Sæl Moldvarpan
Af því það er eitthvað sem ég kann á, og eitthvað sem ég treysti mér í að svo stöddu.
Er ekki mikið fyrir að geyma stöff útí geimi ..eða senda nektarmyndir með "snappchatttt".
Held einmitt að cd og flakkarar verða meira inn ..it´s like cash.

Re: Hagstæður flakkari?

Sent: Mið 01. Nóv 2017 09:30
af moa
Hjaltiatla skrifaði:Sjálfur á ég Iodd Iodd2531 Black - Usb3.0 sem ég get notað bæði fyrir gögn og til að setja upp stýrikerfi beint af flakkaranum (tekur eingöngu við 2,5" diskum).

Annars nota ég Usb dokku með Duplicator function til að afrita diska, sé alls ekki eftir 9000 kr í þá græju.

Takkk :)

Takk fyrir