Síða 1 af 1

Laga minnisvillu(r) innan úr Windows (mögulegt workaround)

Sent: Þri 10. Okt 2017 21:34
af Revenant
Ég hef verið að glíma við single-bit minnisvillur með tilheyrandi BSOD (MEMORY_MANAGEMENT) eða random forrita crash-um.
Úr memtest86 fékk ég tvær minnisaddressur sem voru gallaðar: 0x1BFAE5474 sem féll á prófi 5 (Moving inversions, random pattern) og prófi 10 (Bit fade test, 2 patterns), og síðan addressu 0x116A3FE55 (próf 10 aftur).

Ég er latur og nenni varla að kaupa nýtt/rma-a minni í 6 ára gamla vél þannig ég ákvað að gera pínulítið öðruvísi.

Windows býður nefnilega upp á að blacklista memory addressur þannig það reynir ekki að nota það range.
Þar sem Windows blacklistar bara blaðsíðu (e. page) af minni þurfti ég að taka síðustu 3 af minnisaddressunni sem voru til vandræða þ.e. 0x1BFAE5474 -> 0x1BFAE5 og 0x116A3FE55 -> 0x116A3F.

Síðan var það bara keyra í command prompt í administrator mode:

Kóði: Velja allt

bcdedit /set {badmemory} badmemoryaccess no
bcdedit /set {badmemory} badmemorylist 0x1bfae5 0x116a3f
 
# Skoða svo með
bcdedit /enum {badmemory}

og endurræsa svo.

RAMMap frá sysinternals staðfesti svo að þessar minnisaddressur voru ekki mappaðar af Windows.

Mynd

Fyrir aðra í svipuðum aðstæðum þá *ætti* þetta að virka.

Re: Laga minnisvillu(r) innan úr Windows (mögulegt workaround)

Sent: Þri 10. Okt 2017 21:44
af Viktor
Sniðugt!

Re: Laga minnisvillu(r) innan úr Windows (mögulegt workaround)

Sent: Mið 11. Okt 2017 08:32
af hagur
Hardcore :-)

Re: Laga minnisvillu(r) innan úr Windows (mögulegt workaround)

Sent: Mið 11. Okt 2017 12:39
af Baldurmar
Haha, vá !
Þetta er snilldarlausn !

Re: Laga minnisvillu(r) innan úr Windows (mögulegt workaround)

Sent: Mið 11. Okt 2017 22:57
af ojs
Mjög sniðugt, sérstaklega ef minnið er fast í móðurborðinu eins og sumar smátölvur gera (er með eina slíka) og það byrjar að bila.

Leitaði smá að öðrum stýrikerfum, fann ekki neitt fyrir Makkann því miður (og reyndar gefur þetta svar á stackexchange góða bendingu til þess að þetta sé ekki hægt yfir höfuð á Makkanum: https://apple.stackexchange.com/questio ... -retina-13 er að vísu 2 ára gamalt svar en er ekki vongóður um að mikið hafi breyst) en Linux er með stuðning fyrir þessu. Það fer eftir því hvaða aðferð maður notar til að keyra stýrikerfið upp hvernig maður segir kjarnanum að nota ekki ákveðin minnissvæði en þar sem GRUB 2 er orðið lang algengast þá vísa ég á þessa vefsíðu sem útskýrir málið: https://help.ubuntu.com/community/BadRA ... g_in_Grub2

Re: Laga minnisvillu(r) innan úr Windows (mögulegt workaround)

Sent: Þri 17. Okt 2017 18:24
af Revenant
Smá viðbót en við stórar Windows uppfærslur (t.d. úr 1703 -> 1709) þá detta þessar stillingar út.
Eftir uppfærsluna þarf því að keyra þetta aftur inn.