Endingar tími á hörðum diskum

Skjámynd

Höfundur
Farcry
spjallið.is
Póstar: 406
Skráði sig: Mið 18. Apr 2012 16:38
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf Farcry » Fös 07. Feb 2014 17:46

Hvað eru menn að ná löngum notkunartímum á diskana hjá sér. er buin að missa 2 diska núna með stuttu millibili.
Hrundi einn Seagate 2Tb st32000542as kem honum ekki í gang til að sjá tímann á honum,

Seagate Barracuda 7200.12 : Power on time : 35.214 hours (48 months 27 days 6 hours)
Þessi var keyptur á svipuðum tíma og er ég með fleiri á þessu bili,

Svo hrundi 2TB LaCie 3.5'' Minimus flakkari núna um daginn ég opnaði hann og hann er lika Seagate, get samt ekki lesið S.M.A.R.T af usb disk held að hann sé ekki nema svona 2,5 árs gamal



Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3838
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf Tiger » Fös 07. Feb 2014 18:12

Held þetta sé mjög random bara. Á mínum 15 ára og örugglega 30 diska ferli hefur aldrei diskur gefið sig ( 7,9,13). Geta farið á fyrsta degi eða dugar í fleirri ár.


Mynd

Skjámynd

Höfundur
Farcry
spjallið.is
Póstar: 406
Skráði sig: Mið 18. Apr 2012 16:38
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf Farcry » Fös 07. Feb 2014 18:34

Þetta er í fyrsta skipti sem ég missi út disk, eins og þú buin að vera í þessu í 15-20 ár og átt nokkuð marga diska.
Tiger veistu hvernig ég get séð S.M.A.R.T upplýsingar um usb disk í mac os x 10.9, Lacie diskur fer í gang enn dettur annað slagið út, spurning um að taka hann útúr hýsinguni og bein tengja hann, hef lesið að straumbreytirinn sé að fara í þessum Lacie diskum



Skjámynd

kizi86
Vaktari
Póstar: 2208
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Reputation: 166
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf kizi86 » Fös 07. Feb 2014 18:47

hef lent nokkrum sinnum í að diskar deyi eftir stuttan tíma ( 1-3 ára) en hef líka átt diska sem dugað hafa yfir áratug, sbr diskinn sem var í gömlu ibm tölvunni minni.. hann var keyrandi í 12 ár þegar hann dó, þar af straight running í 5 ár (semsé aldrei slökkt á tölvunni nema til að rykhreinsa)..


ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV


Gislinn
FanBoy
Póstar: 769
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 01:07
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf Gislinn » Fös 07. Feb 2014 19:11

Lenti í því að fjórir 1TB Seagate Barracuda diskar hrundu hjá mér sama daginn (ekki allir í sömu vélinni þ.a. þetta er ekki powersupply vandamál). Ég grét mikið. Annars voru það fyrstu diskarnir sem fara hjá mér, hef ekki lent í þessu áður. Reyndar finnst mér Barracuda diskarnir keyra mjög heitir samanborið við WD diskana sem ég er með, ég gæti trúað að það hafi áhrif á líftíma þeirra.


common sense is not so common.

Skjámynd

Höfundur
Farcry
spjallið.is
Póstar: 406
Skráði sig: Mið 18. Apr 2012 16:38
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf Farcry » Fös 07. Feb 2014 19:23

Gislinn skrifaði:Lenti í því að fjórir 1TB Seagate Barracuda diskar hrundu hjá mér sama daginn (ekki allir í sömu vélinni þ.a. þetta er ekki powersupply vandamál). Ég grét mikið. Annars voru það fyrstu diskarnir sem fara hjá mér, hef ekki lent í þessu áður. Reyndar finnst mér Barracuda diskarnir keyra mjög heitir samanborið við WD diskana sem ég er með, ég gæti trúað að það hafi áhrif á líftíma þeirra.

Ég hef verið að spá í að prófa Wd diska næst hef bara ekki góða reynslu af þeim siðan í gamla daga, legurnar biluðu yfirleitt alltaf í WD og var þá mikil hávaði í þeim. Hvaða WD disk (Red,Green,Blue)mæla menn með sem geymslu disk fyrir afrit af Dvd og Bluray myndum minum. Nýju Seagate diskarnir hafa samt verið að fá ágætis umfjöllun 3-4TB diskarnir




Gislinn
FanBoy
Póstar: 769
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 01:07
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf Gislinn » Fös 07. Feb 2014 19:27

Farcry skrifaði:Ég hef verið að spá í að prófa Wd diska næst hef bara ekki góða reynslu af þeim siðan í gamla daga, legurnar biluðu yfirleitt alltaf í WD og var þá mikil hávaði í þeim. Hvaða WD disk (Red,Green,Blue)mæla menn með sem geymslu disk fyrir afrit af Dvd og Bluray myndum minum. Nýju Seagate diskarnir hafa samt verið að fá ágætis umfjöllun 3-4TB diskarnir


Ég er með Black diska í vélinni hjá mér (sem margir kvarta undan að hafa verið að krassa), þeir hafa virkað mjög vel hjá mér. Ég væri samt alveg til í að prufa þessa nýju 4TB Seagate, það myndi spara smá pláss í kassanum allavega. :-"


common sense is not so common.


Garri
1+1=10
Póstar: 1109
Skráði sig: Lau 31. Okt 2009 21:34
Reputation: 3
Staðsetning: Akureyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf Garri » Fös 07. Feb 2014 20:16

Á öllum mínum ferli og tugir ef ekki vel nálægt hundrað diskum, þá hefur einn hrunið hjá mér. Sá hrundi þegar ég var með tölvu á gólfinu og var að afrita yfir á þann disk eða af.. man ekki hvort. Nema þar sem hann stendur upp á rönd við hliðina á tölvunni, þá fer ég frá. Þarf síðan að skjótast inn í herbergið að sækja eitthvað sparka í diskinn sem fær við það góðan skell og hætti að virka. Tikkar í honum þegar ég kveiki á honum. Þetta er 500GB 5400 diskur að ég held.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1991
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf GuðjónR » Fös 07. Feb 2014 23:01

Allir diskar deyja á endanum það er staðreynd, en það var ekki óalgengt að diskar fyrir 2009 væru með 3-5 ára ábyrgð enda bendir margt til þess að þeir hafi verið betri þá en í dag, það er ekki að ástæðulausu að Seagate fór með ábyrgðina úr 5 árum í 3 og síðan í 1 ár.
Ef framleiðandinn treystir vörunni ekki lengur en í eitt ár þá er varla hægt að ætlast til þess að kaupandinn geri það.



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5487
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1012
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf appel » Fös 07. Feb 2014 23:11

Ég á nokkra hdd í skáp, ég tengi þá sjaldan við tölvuna. Endast þeir lengur þannig?


*-*

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16267
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1991
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf GuðjónR » Fös 07. Feb 2014 23:15

appel skrifaði:Ég á nokkra hdd í skáp, ég tengi þá sjaldan við tölvuna. Endast þeir lengur þannig?

Klárlega!
Ég á nokkra IDE diska, 80-250gb sem hafa ekki verið notaðir í 8 ár amk. og þeir munu endast næstu 50 árin með þessu áframhaldi.




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6345
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf AntiTrust » Fös 07. Feb 2014 23:17

Þú færð engin concrete svör frá nokkrum aðilum. Sumir geta átt diska sem endast í áratug, aðrir (eins og ég) geta missti tugi af diskum á áratug.

Skoðaðu skýrslurnar frá Google og BackBlaze gagnaverunum, líklega einu solid tölurna sem eru til offically.



Skjámynd

Yawnk
Vaktari
Póstar: 2038
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Reputation: 10
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf Yawnk » Fös 07. Feb 2014 23:19

Það hefur aldrei neinn harður diskur klikkað hjá mér, reyndar hef ég ekki átt marga, en er þó að notast við Seagate núna og hann virkar fínt 7-9-13.
Reyndar hefur einn klikkað hjá mér eftir að ég setti skrúfjárn inn í hann meðan hann var á fleygiferð að sinna sinni vinnu alveg grunlaus :-k



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5487
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1012
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf appel » Fös 07. Feb 2014 23:31

Í vinnunni þá er skipt um marga hdd á viku í serverunum.

Þeir stoppa stutt við þar til þeir faila, nokkra mánuði, vikur....


*-*

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf KermitTheFrog » Fös 07. Feb 2014 23:46

Fer eftir aðstæðum og notkun. Vel kældur diskur í borðtölvu mun endast lengur en harður diskur í plastsjónvarpsflakkaraboxi.



Skjámynd

nidur
/dev/null
Póstar: 1362
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 192
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf nidur » Lau 08. Feb 2014 00:12

Ég hef alltaf keypt WD og verið með þá í sérhólfum með viftum og ekki misst nein gögn vegna bilana. Og aldrei notað raid fyrr en núna fyrir fileserver.


Everyone knows the phrases "time is money" and "money is power". That naturally concludes that time is also power. Time gives you the ability to learn how to do things, but people don't want the power in today's world. They want their time and money.


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6345
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf AntiTrust » Lau 08. Feb 2014 00:15

KermitTheFrog skrifaði:Fer eftir aðstæðum og notkun. Vel kældur diskur í borðtölvu mun endast lengur en harður diskur í plastsjónvarpsflakkaraboxi.


Tjah, ekki endilega. Passlega kældur diskur endist best. Ef maður rýnir í skýrsluna sem Google gaf út um harðadiskana í gagnaverunum sínum þá voru of kaldir (25-30°) diskar mikið líklegri til að bila heldur en diskar sem voru að keyra í hærri kantinum (35-40°).



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4958
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 866
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf jonsig » Lau 08. Feb 2014 00:40

Hiti hefur MJÖG mikið um þetta að segja . Spurning hvort þú fair ekki kælingu á diskana , annars hef ég aldrei á ævinni lent í harðadisk hruni [-o< og ég hef verið mikið í seagate og WD .



Skjámynd

Höfundur
Farcry
spjallið.is
Póstar: 406
Skráði sig: Mið 18. Apr 2012 16:38
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf Farcry » Lau 08. Feb 2014 00:46

Getur hafa verið eitthvað hitavandamál i gamla kassanum, nú er ég með Antec P280 með auka 2 viftur á diskana. Lacie diskurinn var nú bara upp í hillu og tók timemachine afrit og geymdi Itunes safnið ?



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5487
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1012
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf appel » Lau 08. Feb 2014 00:46

Ég lenti í því að þurfa að henda hörðum disk með öllu star trek safninu mínu :crying hef ekki náð mér síðan þá :dead


*-*


kjartanbj
Tölvutryllir
Póstar: 683
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 128
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf kjartanbj » Lau 08. Feb 2014 01:03

Server vél sem ég var með fyrir rúmum 10 árum í henni voru ca 6 WD diskar, einn 200TB og rest 80GB , svo einn Samsung 160gb , allir WD diskarnir hrundu, 200Gb diskurinn entist lengst af WD diskunum, en þó eur nokkur ár síðan hann dó, Samsung diskurinn er hinsvegar ennþá á lífi og í vél enn, hinsvegar er ekki neitt critical á honum , en hann virðist samt bara ganga og ganga



Skjámynd

hfwf
Vaktari
Póstar: 2018
Skráði sig: Sun 16. Okt 2011 20:29
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf hfwf » Lau 08. Feb 2014 12:22

kjartanbj skrifaði:Server vél sem ég var með fyrir rúmum 10 árum í henni voru ca 6 WD diskar, einn 200TB og rest 80GB , svo einn Samsung 160gb , allir WD diskarnir hrundu, 200Gb diskurinn entist lengst af WD diskunum, en þó eur nokkur ár síðan hann dó, Samsung diskurinn er hinsvegar ennþá á lífi og í vél enn, hinsvegar er ekki neitt critical á honum , en hann virðist samt bara ganga og ganga



200TB diskur :happy



Skjámynd

Stuffz
Kerfisstjóri
Póstar: 1232
Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 18:39
Reputation: 78
Staðsetning: 109 Rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf Stuffz » Lau 08. Feb 2014 12:50

ég missti 3 x 1tb fyrir nokkrum árum á stuttum tíma, það voru bæði seagate og samsung

tók mig samt smá tíma að finna út afhverju það gerðist

ég hélt upphaflega að þetta væru diskarnir sem voru vandamálið en það var bios á gigabyte móðurborðinu sem olli því, eitthver fídus sem átti að vista öryggiseintak af biosinu á harða diskinum gerði það að verkum við ákveðin skilyrði að plássið á diskinum var sýnt sem helmingur af því sem það átti að vera á sumum diskum og bara 32gb/mb á öðrum diskum, bölvuð óábyrg tilraunastarfsemi hjá Gigabyte og það sem verst er að svona tölvubúnaðar aðilar viðurkenna aldrei almennilega eða innkalla gallaðar vörur sínar, svo það þarf að líða áratugur þar til maður tekur aftur sénsinn á að kaupa eitthvað með sama merki.

fyrir utan þetta þá hef ég bara misst gamla IDE fartölvudiska, einfaldlega útaf hnjaski en þeir eru eðlilega í hærri áhættuflokki þar sem maður er á ferð og flugi með þá, maður væntir hinsvegar meiri endingar af borðtölvudiskunum.

Reyndar má laga suma diska sem gefa upp rangt capacity þ.e.a.s. 1tb þegar þeir eru 2tb o.s.f. með svona verkfæri "HDD Capacity Restore" en þá þarf kannski að keyra það með diskana á annarri vél sem er t.d. ekki með gölluð bios.


Intel NUC Hades Canyon 8Tb NVME +8Tb SSD +80Tb HDD, Nvidia Shield Android TV, Xbox Series X, Xiaomi 4K Projector
Rafskjótar: KS-16S, KS-S22, KS-S9, OW Pint. CAMS: Insta360 ONE X, X3, FLOW, GO, ACE Pro. DJI Action. Skydio 2
Búnaður: Lazyrolling Armored Jacket, Alpha Motorsport-pants, TSG Pass Pro, Fox Proframe
187 KP Wrist Guards, Leatt Dual-Axis, Kinetic DL EUC Shoes, P65 BOBLBEE Backpack

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2813
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 199
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Tengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf CendenZ » Lau 08. Feb 2014 13:01

Diskarnir sem hafa klikkað hjá mér voru maxtor og seagate. Diskar sem hafa klikkað hjá fjöldskyldumeðlimum voru maxtor og seagate.

Ég hef reynt að skipta út CB-inu án árangurs á þeim og það næsta sem ég ætla reyna er að skipta um head á þeim... geri það þegar ég hef tíma og búinn að búa til eitthvað plexibox ;)



Skjámynd

Höfundur
Farcry
spjallið.is
Póstar: 406
Skráði sig: Mið 18. Apr 2012 16:38
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: Endingar tími á hörðum diskum

Pósturaf Farcry » Lau 08. Feb 2014 13:23

CendenZ skrifaði:Diskarnir sem hafa klikkað hjá mér voru maxtor og seagate. Diskar sem hafa klikkað hjá fjöldskyldumeðlimum voru maxtor og seagate.

Ég hef reynt að skipta út CB-inu án árangurs á þeim og það næsta sem ég ætla reyna er að skipta um head á þeim... geri það þegar ég hef tíma og búinn að búa til eitthvað plexibox ;)

Þú ert sem sagt ekki seagate maður, hvernig diska ertu með