-3,35 GB


Höfundur
gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

-3,35 GB

Pósturaf gumol » Mán 07. Apr 2003 00:09

Mig langaði bara að spurja að einu:
Er það eðlilegt þegar maður kaupir 80 GB disk að hann sé bara 76,65 GB samkvæmt Windows XP?



Skjámynd

halanegri
vélbúnaðarpervert
Póstar: 955
Skráði sig: Mán 23. Sep 2002 21:17
Reputation: 0
Staðsetning: Err Vaff Ká
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf halanegri » Mán 07. Apr 2003 00:11




Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kiddi » Mán 07. Apr 2003 00:14

Ég var illa spældur þegar ég eignaðist 180GB og fékk bara 171GB út úr honum, hvernig ætli það sé að fá sér 200GB og fá bara 185GB formatted? Svekkjandi huh !

Og jú þetta er eðlilegt =)



Skjámynd

Castrate
spjallið.is
Póstar: 435
Skráði sig: Mið 25. Sep 2002 14:27
Reputation: 0
Staðsetning: Keflavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Castrate » Mán 07. Apr 2003 00:16

veit einhver afhverju þetta er? er líka svona hjá mér með mína diska.


kv,
Castrate

Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kiddi » Mán 07. Apr 2003 01:08

Harðadiskaframleiðendur styðjast við base-10 formið til að reikna út stærð á megabæti meðan stýrikerfi styðjast við base-2,

base-2 megabyte: 1,048,576 bytes
base-10 megabyte: 1,000,000 bytes

S.s. ef það eru X mörg bytes á HDD, þá túlkar stýrikerfið færri megabæt úr heildarsummunni

Dæmi tekið af Adaptec síðu:
If the raw capacity of the hard disk is 18,339,950,952 bytes, the manufacturer will advertise the drive as 18.4 gigabytes (the raw capacity divided by 1,000,000,000). However, both FDISK and the BIOS of the SCSI controller will correctly report the drive as 17.1 gigabytes (the raw capacity divided by 1,073,741,824).


Túlkun.. segjum að 80GB HDD sé 80,000,000,000 bytes, og deilum því niður á 1000, þá fáum við út: 80,000,000 kbytes (80GB),
ef við deilum 80,000,000,000 bytes niður í 1,048,576, þá fáum við út:
76,293,945 kbytes (76,2GB)

S.s. 200GB diskur yrði: 200,000,000,000 / 1,048,576 = 190,734,863 kbytes eða 190GB :)

(Eins og oft áður, þá er Binary tungumálið að rugla í kollunum á okkur ;) )



Skjámynd

kemiztry
Gúrú
Póstar: 592
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:15
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Pósturaf kemiztry » Mán 07. Apr 2003 01:22

Sölutrix! :/


kemiztry

Skjámynd

d00m
Nýliði
Póstar: 21
Skráði sig: Fim 13. Mar 2003 22:09
Reputation: 0
Staðsetning: Akureyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf d00m » Mán 07. Apr 2003 22:16

kemiztry skrifaði:Sölutrix! :/


:8)

Svo fyrir utan þetta sem kiddi réttilega benti á með base skekkjuna þá má, eftir því sem diskarnir verða stærri, reikna með enn meiri skekkju við framleiðslu sem framleiðendurnir sætta sig við.



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mið 18. Jún 2003 19:27

(*endöurvakning á gömlum þræði*)
samtkvæmt mínum útreikningum fæ maður bara 232GB úr 250GB disk, það hlýtur að sjúga..........



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kiddi » Mið 18. Jún 2003 20:39

Og 953GB út úr 1000GB disk (ef hann væri til) - En hverju munar mann um 47 GB ef maður er með 953GB ? :-) Hlutfallslega er þetta alveg það sama og við höfum alltaf þekkt. Annars gætimaður svosem skellt DriveSpace á dæmið bara. *har har*




pathfinder
Nýliði
Póstar: 13
Skráði sig: Þri 24. Jún 2003 01:00
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Pósturaf pathfinder » Þri 24. Jún 2003 02:45

kiddi skrifaði:Túlkun.. segjum að 80GB HDD sé 80,000,000,000 bytes, og deilum því niður á 1000, þá fáum við út: 80,000,000 kbytes (80GB),
ef við deilum 80,000,000,000 bytes niður í 1,048,576, þá fáum við út:
76,293,945 kbytes (76,2GB)

S.s. 200GB diskur yrði: 200,000,000,000 / 1,048,576 = 190,734,863 kbytes eða 190GB :)

(Eins og oft áður, þá er Binary tungumálið að rugla í kollunum á okkur ;) )

Þetta er ekki alveg rétt hjá þér.
Þarna ertu að deila GB með MB og hefðir átt að fá út 190.734 MB eða 186 GB. 200 GB diskur er því í raun 186 GB.
Sjáum að þetta er 7% "tap" en það á við um alla diska þegar reiknað er GB -> GB.

1000 GB HD væri þá 930 GB í raun.