Áreiðanleiki SSD diska

Skjámynd

Höfundur
C2H5OH
Ofur-Nörd
Póstar: 269
Skráði sig: Mið 08. Des 2010 14:30
Reputation: 24
Staðsetning: Rannsóknarstofan
Staða: Ótengdur

Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf C2H5OH » Þri 14. Ágú 2012 12:29

Mig langaði að forvitnast hversu áreiðanlegir eru þessir diskar, hljóta að bila minna en venjulegir harðir diskar :)
Er neflilega með 100 gb+ af fjölskyldumyndum sem mig langar að koma afriti af á öruggan stað.

Er nánast hægt að segja að þeir bili ekki, eða hafið þið lent í veseni með ykkar?




playman
Of mikill frítími
Póstar: 1998
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 71
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf playman » Þri 14. Ágú 2012 12:34

Ef að þetta eru myndir sem að þú vilt alls ekki tína, þá er best að vera með öriggisafrit af öriggisafritinu, hvort sem að þú værir að nota SSD eða HDD
En SSD eiga að vera áræðanlegri en HDD.

Svo er líka alltaf möguleiki á að skoða Cloud geymslu, en þær eru nánast 99.9999% öruggar.


CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9

Skjámynd

beggi90
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mið 15. Okt 2008 21:02
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf beggi90 » Þri 14. Ágú 2012 12:47

Þeir bila minna en venjulegir HDD en bila þó stundum.

Alltaf eiga nokkur afrit af mikilvægum gögnum. (á mismunandi stöðum auðvitað)



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf Viktor » Þri 14. Ágú 2012 15:32



I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3838
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf Tiger » Þri 14. Ágú 2012 15:46

Ég myndi aldrei treysta eingöngu á einn SSD disk ofan í skúffu með mikilvægum myndum.

Ég nota offsite backup hjá Crashplan fyrir allar mínar ljósmyndir og sef mjög rólegur. Hef notað þetta í 2 ár og líkar vel.


Mynd

Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1031
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 132
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf Revenant » Þri 14. Ágú 2012 16:07

Gleymdu ekki að það kostar líka að restora gögnum úr cloud geymslum (þ.e. gagnamagnið á nettengingunni).

Ef þú þarft að kaupa auka gagnapakka þá kostar það ca. 100 kr /GB. Sem dæmi þá kostar það um 15.000 kr að restora 150GB fyrir utan þann tíma sem það tekur.

Síminn: 50 GB stækkun erlends gagnamagns: 5.040 kr.
Vodafone: 30 GB erlent niðurhal: 3.300 kr.

Líka annað er tíminn:

Gerum ráð fyrir 10 mbit/s (1.2MB/s) föstum download hraða fyrir 150 GB sem gera um 34 klst download að restora gögnunum.



Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3838
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf Tiger » Þri 14. Ágú 2012 16:30

Revenant skrifaði:Gleymdu ekki að það kostar líka að restora gögnum úr cloud geymslum (þ.e. gagnamagnið á nettengingunni).

Ef þú þarft að kaupa auka gagnapakka þá kostar það ca. 100 kr /GB. Sem dæmi þá kostar það um 15.000 kr að restora 150GB fyrir utan þann tíma sem það tekur.

Síminn: 50 GB stækkun erlends gagnamagns: 5.040 kr.
Vodafone: 30 GB erlent niðurhal: 3.300 kr.

Líka annað er tíminn:

Gerum ráð fyrir 10 mbit/s (1.2MB/s) föstum download hraða fyrir 150 GB sem gera um 34 klst download að restora gögnunum.


Rétt, fer líka langur tími í að uploada þeim í fyrsta sinn. En ef þú þekkir einhvern í USA þá sendir Crashplan harðan disk á vin þinn sem sendir á þig.

Getur maður ekki bara stækkað áskriftina í 140GB í 1-2 mánuði, það er mun minni aukakostnaður(3000kr).


Mynd

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf Gúrú » Þri 14. Ágú 2012 16:44

Tiger skrifaði:En ef þú þekkir einhvern í USA þá sendir Crashplan harðan disk á vin þinn sem sendir á þig.


Harður diskur + sendingarkostnaður er ekkert ódýrari en 15 000 samt. :roll:


Modus ponens

Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3838
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf Tiger » Þri 14. Ágú 2012 16:57

Gúrú skrifaði:
Tiger skrifaði:En ef þú þekkir einhvern í USA þá sendir Crashplan harðan disk á vin þinn sem sendir á þig.


Harður diskur + sendingarkostnaður er ekkert ódýrari en 15 000 samt. :roll:


Maður borgar ekki fyrri diskinn, bara trygginu sem maður fær til baka þegar maður skilar honum. En samt eins og ég með tæpt TB þá væri það ódýara að senda það fram og til baka með ódýrasta hætti. Veit ekki hvernig er með tolla í svona, en örugglega svipað og með að senda hluti í viðgerð.


Mynd

Skjámynd

CurlyWurly
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 394
Skráði sig: Fös 01. Jún 2012 03:29
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf CurlyWurly » Þri 14. Ágú 2012 17:10

Held það væri ódýrast/sniðugast að kaupa bara 1 eða jafnvel 2 harða diska í viðbót og setja í tölvuna og hafa bara backup af myndunum á hverjum einasta diski.. annars eru þetta nú snillingar að tala hérna þannig þú hefur verið að fá góð ráð nú þegar.


CM 690 II Adv | i5 2500K @ 3,3 Ghz | GA-Z68XP-UD4 | GTX 560 Ti Twin Frozr II | 2x4 GB Corsair Vengeance | Corsair HX750 |128GB Samsung 830 SSD | 500GB HDD
- CurlyWurly//HB

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf Gúrú » Þri 14. Ágú 2012 17:12

CurlyWurly skrifaði:Held það væri ódýrast/sniðugast að kaupa bara 1 eða jafnvel 2 harða diska í viðbót og setja í tölvuna og hafa bara backup af myndunum á hverjum einasta diski.. annars eru þetta nú snillingar að tala hérna þannig þú hefur verið að fá góð ráð nú þegar.


Hættan við það plan:

Þjófnaður - glatar öllum gögnunum.
Aflgjafaslys - glatar öllum gögnunum.
Bruni - glatar öllum gögnunum.
Og þannig mætti í nokkrar línur í viðbót halda áfram.


Modus ponens

Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1031
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 132
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf Revenant » Þri 14. Ágú 2012 17:22

Ein lausn sem margir nota er að hafa 1-2 flakkara (2,5") sem er geymdur hjá ættingja.

Hægt væri að hafa eitt off-site afrit og eitt on-site afrit og víxla á diskum á mánaðar fresti. Þá væriru með eitt "warm" afrit og síðan eitt "cold" afrit sem væri í mesta lagi eins mánaðar gamalt.



Skjámynd

CurlyWurly
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 394
Skráði sig: Fös 01. Jún 2012 03:29
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf CurlyWurly » Þri 14. Ágú 2012 17:28

Gúrú skrifaði:
CurlyWurly skrifaði:Held það væri ódýrast/sniðugast að kaupa bara 1 eða jafnvel 2 harða diska í viðbót og setja í tölvuna og hafa bara backup af myndunum á hverjum einasta diski.. annars eru þetta nú snillingar að tala hérna þannig þú hefur verið að fá góð ráð nú þegar.


Hættan við það plan:

Þjófnaður - glatar öllum gögnunum.
Aflgjafaslys - glatar öllum gögnunum.
Bruni - glatar öllum gögnunum.
Og þannig mætti í nokkrar línur í viðbót halda áfram.

Jæja, ég hugsaði þetta augljóslega ekki alveg í gegn...


CM 690 II Adv | i5 2500K @ 3,3 Ghz | GA-Z68XP-UD4 | GTX 560 Ti Twin Frozr II | 2x4 GB Corsair Vengeance | Corsair HX750 |128GB Samsung 830 SSD | 500GB HDD
- CurlyWurly//HB

Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf tdog » Þri 14. Ágú 2012 17:35

Bankahólf kosta líka ekki mikið og þar ertu í raun gulltryggður fyrir flestum óhöppum.



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf dori » Þri 14. Ágú 2012 17:41

Revenant skrifaði:Ein lausn sem margir nota er að hafa 1-2 flakkara (2,5") sem er geymdur hjá ættingja.

Hægt væri að hafa eitt off-site afrit og eitt on-site afrit og víxla á diskum á mánaðar fresti. Þá væriru með eitt "warm" afrit og síðan eitt "cold" afrit sem væri í mesta lagi eins mánaðar gamalt.

Líka ef þú ert með einhvern nördavin þá er hægt að setja upp backup fyrir hvorn annan með einhverjum af þessum forritum sem eru í boði fyrir slíka hluti. Virkar svipað og þessi cloud dæmi nema hvað þú hefur meiri stjórn (og ábyrgð). Það tekur á þessu þjófnaðar-/brunaveseni. Ódýrara að fá afrit til baka en með því að geyma í cloud. Aðeins dýrari rekstarkostnaður kannski.

Það eru alltaf kostir og gallar við svona hluti. En allt er betra en ekkert og oftast er betra að vera með aðeins of margar backup leiðir virkar en of fáar. Ég held annars að SSD sem liggur í skúffu einhversstaðar sé ólíklegur til að bila svo að við komum að spurningu þráðarhöfundar. Harðir diskar hafa náttúrulega þennan galla að geta bilað þó svo að þeir séu ekki í notkun en ég er nokkuð viss um að það er mjög ólíklegt hjá SSD diskum.



Skjámynd

Saber
FanBoy
Póstar: 744
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:29
Reputation: 7
Staðsetning: 104
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf Saber » Þri 14. Ágú 2012 17:56

Varðandi reliability á SSDum, þá hafa controllerarnir verið að klikka svolítið í þeim.


Intel Core i5 4690K @ ? GHz Custom water cooling Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=53292

Skjámynd

Höfundur
C2H5OH
Ofur-Nörd
Póstar: 269
Skráði sig: Mið 08. Des 2010 14:30
Reputation: 24
Staðsetning: Rannsóknarstofan
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf C2H5OH » Þri 14. Ágú 2012 21:54

Ég þakka fyrir frábær svör, ég fór og splæsti í einn cronos disk og ætla líka að skoða þetta cloud system :)




Mr. President
Nýliði
Póstar: 14
Skráði sig: Fim 01. Apr 2010 20:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf Mr. President » Fim 16. Ágú 2012 19:29

Hafðu bak við eyrað að öryggi gagna og bilanatíðni á disk eru tvennt gjörólíkt og ótengt. SSD eru kannski ólíklegri til að bila en mér dytti seint í hug að treysta flash minni fyrir krítískum gögnum. Gagnabjörgun er t.d. mun erfiðari ef skráarkerfið corruptast og það er líklegra til að gerast á SSD en HDD (þó það sé misjafnt eftir framleiðendum).

Ef þú vilt gagnaöryggi þá er mæli ég frekar með NAS boxi og 2 HDD speglaða í RAID. Heimanotendur þurfa í raun litlu meira og 5400rpm diskar eru svo til hljóðlausir.



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf Gúrú » Fim 16. Ágú 2012 19:34

Mr. President skrifaði:Ef þú vilt gagnaöryggi þá er mæli ég frekar með NAS boxi og 2 HDD speglaða í RAID. Heimanotendur þurfa í raun litlu meira og 5400rpm diskar eru svo til hljóðlausir.


Gúrú skrifaði:Þjófnaður - glatar öllum gögnunum.
Aflgjafaslys - glatar öllum gögnunum.
Bruni - glatar öllum gögnunum.
Og þannig mætti í nokkrar línur í viðbót halda áfram.


NAS box með 2 HDD speglaða í RAID er andstæðan við gott gagnaöryggi.


Modus ponens


Mr. President
Nýliði
Póstar: 14
Skráði sig: Fim 01. Apr 2010 20:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf Mr. President » Fim 16. Ágú 2012 21:20

Það er þvæla en ég var samt bara að tala um SSD.

Cloud geymsla er fjarri því slæm hugmynd en við þurfum varla að gera ráð fyrir flóðum og jarðskjálftum hérna. Líkurnar á að tveir (eða fleiri) speglaðir diskar deyji á sama tíma eru vel nógu litlar til að kalla megi "öruggt". Paranoia og varkárni eru ekki sami hluturinn og sumir myndu eins segja að Microsoft/Dropbox/Google/Facebook sé ekki treystandi fyrir viðkvæmum gögnum (íslenska ríkið, til dæmis). Það er endalaust hægt að segja 'hvað ef?' en OP virðist bara meðaljón í leit að praktískri og einfaldri lausn. Og NAS box eru fín sem slík fyrir heimanotendur.



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf Gúrú » Fim 16. Ágú 2012 21:27

Mr. President skrifaði:Líkurnar á að tveir (eða fleiri) speglaðir diskar deyji á sama tíma eru vel nógu litlar til að kalla megi "öruggt". Paranoia og varkárni eru ekki sami hluturinn


1. Hvergi í póstinum mínum sagði ég neitt um þær líkur.
2. Finnst þér það paranoia að vilja ekki glata öllum gögnunum sínum í innbroti? Það eru yfir 9000 auðgunarbrot á ári hérna á Íslandi.
Mörg þeirra eru innbrot og í innbrotum leggja þjófar sérstaka áherslu á tæknivörur - og NAS samstæða er líklegt fórnarlamb. :catgotmyballs

Bara á árinu er búið að skrá vel fleiri en 1000 innbrot á Íslandi. :!:


Modus ponens


Mr. President
Nýliði
Póstar: 14
Skráði sig: Fim 01. Apr 2010 20:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf Mr. President » Fim 16. Ágú 2012 21:41

Jú, það er rétt. Innbrot eru framin.

OP var samt bara að spyrja hvort SSD væri nógu solid tækni fyrir backup...



Skjámynd

pattzi
Bara að hanga
Póstar: 1503
Skráði sig: Þri 07. Des 2010 00:54
Reputation: 38
Staðsetning: Akranes
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf pattzi » Sun 19. Ágú 2012 00:14

Revenant skrifaði:Gleymdu ekki að það kostar líka að restora gögnum úr cloud geymslum (þ.e. gagnamagnið á nettengingunni).

Ef þú þarft að kaupa auka gagnapakka þá kostar það ca. 100 kr /GB. Sem dæmi þá kostar það um 15.000 kr að restora 150GB fyrir utan þann tíma sem það tekur.

Síminn: 50 GB stækkun erlends gagnamagns: 5.040 kr.
Vodafone: 30 GB erlent niðurhal: 3.300 kr.

Líka annað er tíminn:

Gerum ráð fyrir 10 mbit/s (1.2MB/s) föstum download hraða fyrir 150 GB sem gera um 34 klst download að restora gögnunum.

Kostar mikið minna en það allavega hjá hringdu.

Sent from my XT910 using Tapatalk 2




Einsinn
Ofur-Nörd
Póstar: 212
Skráði sig: Fim 19. Feb 2004 08:09
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf Einsinn » Sun 19. Ágú 2012 10:44

Skil ekki einhvað væl og tal um erlent niðurhal þegar þarf að ná í gögn af erlendu cloudi, er viss um að flestir sem hafa tapað ljósmyndasöfnum / tónlistargögnum etc etc í innbrotum myndu glaðir velja að geta bara borgað auka 200gig eða svo til að fá gögnin sín aftur.



Skjámynd

kubbur
/dev/null
Póstar: 1394
Skráði sig: Sun 14. Sep 2003 01:36
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Áreiðanleiki SSD diska

Pósturaf kubbur » Sun 19. Ágú 2012 13:07

Ég er voðalegt meðaljon þegar kemur að.gagnaoryggi, læt mer nægja að eiga gömlu myndirnar i 2 afritum a sitthvorum disknum, allar nýjar myndir eru teknar a símann og fara beint a facebook


Kubbur.Digital