Harðdiskastillingar


Höfundur
Plex
Græningi
Póstar: 34
Skráði sig: Lau 15. Feb 2003 00:15
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Harðdiskastillingar

Pósturaf Plex » Lau 15. Feb 2003 00:32

Ég var að fá gefins 20gb, harðan disk, Western Digital. Þegar að ég tengdi hann við tölvuna mína og ræsti upp, þá fæ ég vélina ekki til þess að lesa hann í réttri stærð. Tölvan les hann ekki nema eitthvað 3 gb. Ég keyri vélina á windows 2000 professional. Er einhver sem að getur leiðbeint mér í þessu máli?

Kveðja Plex



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Lau 15. Feb 2003 02:14

Ertu ekki með allt á "Auto" í IDE stillingunum í BIOS?
Hvað er hinn harðidiskurinn stór?



Skjámynd

OverClocker
spjallið.is
Póstar: 418
Skráði sig: Mið 04. Des 2002 22:30
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf OverClocker » Lau 15. Feb 2003 12:38

Þú ert með einhvern eldgamlan bios.
Finndu heimasíðu framleiðanda móðurborðsins og sæktu nýjan bios og installaðu honum...




Höfundur
Plex
Græningi
Póstar: 34
Skráði sig: Lau 15. Feb 2003 00:15
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Stillingar og Nýr Bios????

Pósturaf Plex » Lau 15. Feb 2003 20:00

Sælir og takk fyrir aðstoðina.
Biosinn minn er eldgamall, það er víst á hreinu. Móðurborðið sem að ég nota er af gerðinni Epox, og á víst að vera afskaplega stabílt og ágætt, en er að verða barn síns tíma. Málið hjá mér er bara það að ég veit ekki hvernig ég fer að því að setja upp nýjan Bios. Hinn diskurinn minn í vélinni er 20Gb Ibm diskur. Stillingarnar á honum í Biosnum eru á þá leið, að Biosinn getur sjálfur fundið og valið bestu stillingar, og eru heldur engin vandamál með þennan Ibm, primary master. Vandræðin hjá mér felast í því að láta þennan nýja western disk virka í réttri stærð.



Skjámynd

Atlinn
Ofur-Nörd
Póstar: 264
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 14:33
Reputation: 0
Staðsetning: Nordock Iceland
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Atlinn » Lau 15. Feb 2003 21:43

gæti verið að jumerarnir aftaná hddöinum séu vitlaust stilltir, sá að á mömmu hdd (8gb seagate) er jumper stilling þannig að hann er bara 3gb


hah, Davíð í herinn og herinn burt

Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Lau 15. Feb 2003 21:49

Plex: geturru sagt okkur hvaða módel ef Epox þetta móðurborð er




Höfundur
Plex
Græningi
Póstar: 34
Skráði sig: Lau 15. Feb 2003 00:15
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Plex » Lau 15. Feb 2003 23:29

Já það er séns að jömperinn sé vitlaus stilltur. Ef að ég vill að diskurinn sé secondary master, hvaða djömperstillingu á ég þá að nota?




Höfundur
Plex
Græningi
Póstar: 34
Skráði sig: Lau 15. Feb 2003 00:15
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Plex » Lau 15. Feb 2003 23:33

Epox móðurborðið heitir MVP3G2. Það er með 1mb, 3 dimm, 5 pci, 1x agp, 2 isa, atx, ata66.



Skjámynd

Voffinn
Vaktari
Póstar: 2249
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 17:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Voffinn » Sun 16. Feb 2003 00:29

Plex skrifaði:Já það er séns að jömperinn sé vitlaus stilltur. Ef að ég vill að diskurinn sé secondary master, hvaða djömperstillingu á ég þá að nota?

Þetta er venjulega svona límmiði á disknum sem er þessar stillingar...ef ekki þá bara prufa :) það geðri ég alveg...tókst í 1. tilraun! Held að það sé bara allt í lagi að gera það...


Voffinn has left the building..

Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Sun 16. Feb 2003 00:32

WD Caviar er ekki hægt að jumpera til þess að breyta um stærð en ef að diskurinn á að vera secondary master þá eiga jumperarnir að vera svona:
[::::::::::IDE::::::::::::::::][:|:][●●●●]
(flott teikning ha....)
WD Jumper Setting Information

Ég leitaði í soldinn tíma á netinu en fann ekkert BIOS update fyrir móðurborðið þitt. Ég lenti í sama vandamáli með eldgamalt Acorp móðurborð, fann bara engann BIOS




Höfundur
Plex
Græningi
Póstar: 34
Skráði sig: Lau 15. Feb 2003 00:15
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Plex » Sun 16. Feb 2003 00:55

Ég fann núna áðan einhvern Bios á heimasíðu Epox, og svo lét ég bara vaða í fyrsta skipti. Ég flassaði Biosinn í Dos mode af floppy disk, og restartaði svo vélinni og gerði einhverjar save kúnstir í Biosnum. Allavega virðist allt virka fínt með Biosinn, en ég ætla að halda áfram að þreifa mig áfram með Harða diskinn. Ég gefst nefnilega aldrei upp fyrir svona smá tækjadrasli :)



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Sun 16. Feb 2003 00:57

hehe :)
Ef að það virkar ekki þá er kannski hægt að leysa þetta með software lausn.
Kíktu hingað



Skjámynd

Voffinn
Vaktari
Póstar: 2249
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 17:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Voffinn » Mán 17. Feb 2003 15:48

MezzUp skrifaði:[::::::::::IDE::::::::::::::::][:|:][●●●●]


djöfull ertu flottur á því :wink:


Voffinn has left the building..

Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mán 17. Feb 2003 20:58

Bíddu þar til ég fer að teikna upp heilu og hálfu móðurborðin í notepad..... :)

ps. þú verður að taka af broskalla til þess að teikningin komi rétt út



Skjámynd

Voffinn
Vaktari
Póstar: 2249
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 17:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Voffinn » Mán 17. Feb 2003 21:59

lol... :lol:


Voffinn has left the building..