Flakkari virkar í sjónvarpi en ekki í tölvu


Höfundur
Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Flakkari virkar í sjónvarpi en ekki í tölvu

Pósturaf Veit Ekki » Mán 29. Nóv 2010 21:35

Á í smá vandræðum með flakkarann minn, hann er eflaust um 4 ára gamall og heitir Dvico Tvix M3100u - http://www.kjglobal.co.uk/acatalog/TVIX_M3100U.html.

Þannig er mál með vexti að þegar ég tengi hann í tölvuna hjá mér, hef bæði prófað borðtölvuna og fartölvuna, þá annaðhvort finnst diskurinn ekki eða hann finnst en tölvan spyr hvort ég vilji formatta hann. Það virðist þannig ekkert vera á honum þegar ég tengi hann í tölvuna. En þegar ég tengi hann svo í sjónvarpið þá kemur hann bara smooth upp og allt efnið mitt er þar að finna og virkar eins og það á að gera.

Það hefur verið dálítið vesen á einu usb-tenginu mínu svo hann á það til að detta út öðru hverju, sem ætti nú ekkert að fara alltof vel með hann, ekkert safely remove hardware. Er með firmware 1.9.5, sem er btw alls ekki það nýjasta en ég get ekki update-að spilarann nema ég nái að tengja hann við tölvuna.

Hvað er til ráða?



Skjámynd

johnnyb
Nörd
Póstar: 100
Skráði sig: Fös 12. Jún 2009 11:49
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Flakkari virkar í sjónvarpi en ekki í tölvu

Pósturaf johnnyb » Þri 30. Nóv 2010 17:09

Sæll

umm sko í stuttu máli og útskýrt á mínu máli fyrir aðra.

Þá hefur skráarkerfistaflan á harðadiskinum ruglast (annað hvort er hún FAT32 eða NTFS) og gerist oftast þegar flutningar eru í gangi á milli flakkara og tölvu eða sjónvarps og eitthvað kemur uppá hann missir straum eða samband rofnar.

þú getur formatað diskinn uppá nýtt og misst allt efnið

eða googlað vandamálið og fundið einhverja töfralausn


CIO með ofvirkni

Skjámynd

Zpand3x
spjallið.is
Póstar: 401
Skráði sig: Lau 12. Des 2009 22:48
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Flakkari virkar í sjónvarpi en ekki í tölvu

Pósturaf Zpand3x » Þri 30. Nóv 2010 17:29

Gætir prufað að taka harðadiskinn úr og setja í aðra hýsingu eða beint í tölvuna?


i7 4770k, MSI H97M-G43, 4x8GB, Corsair TX650W, CM silencio 550
Ryzen 3600, MSI B550I Gaming Edge Wifi, GTX 1660 Super, 2x16GB, DAN Cases A4-SFX V4.1


Höfundur
Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Flakkari virkar í sjónvarpi en ekki í tölvu

Pósturaf Veit Ekki » Sun 05. Des 2010 19:54

Takk fyrir þetta, skoða þetta við tækifæri.