XDRDRAM

Skjámynd

Höfundur
Castrate
spjallið.is
Póstar: 435
Skráði sig: Mið 25. Sep 2002 14:27
Reputation: 0
Staðsetning: Keflavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

XDRDRAM

Pósturaf Castrate » Fös 11. Júl 2003 14:49

Japönsku hátæknifyrirtækin Toshiba og Elpida Memory hyggjast þróa minniskubb fyrir stafræn heimilistæki sem þeir segja munu vera átta sinnum hraðvirkari en þá kubba sem nú eru hraðvirkastir. Kubburinn, sem ganga mun undir nafninu XDR DRAM, verður framleiddur með tækni sem þróuð var af bandaríska fyrirtækinu Rambus.
Búist er við að fjöldaframleiðsla kubbsins hefjist árið 2005 en tiftíðni hans verður 3,2 gígahertz á sekúndu og ræður hann því við mjög þunga myndvinnslu, til dæmis í sífellt myndrænni tölvuleikjum. Hefur tölvuleikjaframleiðandinn Sony lýst því yfir, að nýi kubburinn verði notaður í arftaka PlayStation2-leikjatölvunnar. „Það er grundvallaratriði í hönnun minniskerfa að halda í við síaukna bandbreidd,“ sagði Hidemori Inakai, markaðsstjóri Elpida Memory.


tekið af mbl.is langaði bara að vekja athygli á þessu :)


kv,
Castrate

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1992
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf GuðjónR » Fös 11. Júl 2003 18:26

snilld....