Síða 1 af 2

Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Fös 06. Des 2024 12:50
af kbg
Ég var í þessu að fá símtal úr íslensku númeri (7765829) sem var augljóslega eitthvað scam center í Indlandi að bjóða mér eitthvað crypto rugl. Getur einhver útskýrt fyrir mér af hverju íslensku símafyrirtækin eru að leyfa þetta? Augljóslega er ekkert mál að stöðva þetta en af einhverjum ástæðum leyfa þeir þetta?

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Fös 06. Des 2024 12:57
af wicket
Ég held að fjarskiptalög leyfi ekki að hreyft sé við fjarskiptaumferð að því marki sem þurfi.

Finnar stoppuðu þetta en til þess þurfti samstarf símafyrirtækja og yfirvalda og breytingu á lögum

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Fös 06. Des 2024 15:30
af kbg
wicket skrifaði:Ég held að fjarskiptalög leyfi ekki að hreyft sé við fjarskiptaumferð að því marki sem þurfi.

Finnar stoppuðu þetta en til þess þurfti samstarf símafyrirtækja og yfirvalda og breytingu á lögum

Já Bretar eru líka búinn að stoppa þetta. Þurfti bara einfalst samstarf á milli símafyrirtækja og samskiptaráðuneytis. Eins og venjulega þá er Ísland alltaf jafn mikið eftir á og lifir ennþá í torfkofunum. Hún Áslaug Arna ætti að geta stoppað þetta en virðist ekki hafa gert mikið af viti í embætti.

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Fös 06. Des 2024 16:02
af dori
kbg skrifaði:Augljóslega er ekkert mál að stöðva þetta en af einhverjum ástæðum leyfa þeir þetta?
Ertu viss?

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Fös 06. Des 2024 16:24
af kbg
dori skrifaði:
kbg skrifaði:Augljóslega er ekkert mál að stöðva þetta en af einhverjum ástæðum leyfa þeir þetta?
Ertu viss?


Já því Finnar
https://www.traficom.fi/en/news/obligat ... vented-day

og Bretar
https://www.standard.co.uk/business/bus ... 73407.html

geta auðveldlega gert þetta. Ertu að segja að íslenskir síma tæknimenn hafi ekki þekkinguna til að gera sambærilegt?

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Fös 06. Des 2024 16:46
af chaplin
Fólk hefur verið að hringja í mig því það var "missed call" frá mínu númeri.

Ég hef látið Nova vita þegar þetta hefur verið að gerast en þetta er víst bara classískt number spoof og ekkert hægt að gera í því.

Af því sem ég best veit hefur þetta ekki verið að gerast sl. 2 mánuði, það hefur amk. enginn hringt "til baka".

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Fös 06. Des 2024 17:15
af dori
kbg skrifaði:
dori skrifaði:
kbg skrifaði:Augljóslega er ekkert mál að stöðva þetta en af einhverjum ástæðum leyfa þeir þetta?
Ertu viss?


Já því Finnar
https://www.traficom.fi/en/news/obligat ... vented-day

og Bretar
https://www.standard.co.uk/business/bus ... 73407.html

geta auðveldlega gert þetta. Ertu að segja að íslenskir síma tæknimenn hafi ekki þekkinguna til að gera sambærilegt?

Ég er ekki að draga í efa að það sé hægt að droppa símtölum. Ég er að draga í efa að það sé "auðvelt" eða "ekkert mál" (og að Finnar hafi bara tapað €600 í customer support scam árið 2022).

En það ætti klárlega að útfæra eitthvað til að koma í veg fyrir að það sé verið að spoofa íslensk símanúmer til að keyra einhver svona scam. Þetta er samt whack a mole leikur. Ef það er gróðavon þá finna scammerar nýjar leiðir í þessu eins og öðru.

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Fös 06. Des 2024 18:51
af Hizzman
símstöðin sem hefur eða byrjar símtalið getur sent caller id, það er engin leið að sannreyna að það sé rétt númer

https://en.wikipedia.org/wiki/Public_switched_telephone_network

símtal sem endar á Íslandi getur komið frá hvaða símstöð í veröldinni sem er. Þetta keyrir allt á áratuga gömlum prótókólum.

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Fös 06. Des 2024 19:14
af kbg
Hizzman skrifaði:símstöðin sem hefur eða byrjar símtalið getur sent caller id, það er engin leið að sannreyna að það sé rétt númer

https://en.wikipedia.org/wiki/Public_switched_telephone_network

símtal sem endar á Íslandi getur komið frá hvaða símstöð í veröldinni sem er. Þetta keyrir allt á áratuga gömlum prótókólum.


Þú kannski segir það við Finnana og Bretana því þeir eru búnir að útfæra þetta.

Ég get ekki séð að það sé eitthvað flóknara en að þú getur hringt hvaðan sem er úr heiminum í hvaða þriðja flokks landi sem er og alltaf er hægt að rukka þig af öllum símafyrirtækjum alveg sama í hvaða flókið símanet þú ert að fara í gegnum. Ef hægt er að rukka alla aðila í símtalinu 100% rétt þá eru nógar upplýsingar til að hægt sé að finna þetta út.

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Fös 06. Des 2024 19:21
af falcon1
Þetta er algjörlega óþolandi!!! Ég skelli á um leið og ég heyri í einhverju fjandans erlendu tungumáli í símanum enda er engin útlendingur sem á erindi við mig ef hann er ekki á contact listanum mínum.
Þetta var aðeins skárra þegar maður sá erlendu númerin birtast en núna treystir maður ekki einu sinni íslenskum númerum.

Það hlýtur að vera leið til að blokka þetta rugl!

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Fös 06. Des 2024 19:38
af nonesenze
bara skella á ef þú hefur ekki tíma, annars bara vera eins heimskur of þú getur og pirrandi og taka þetta eins langt og þú nennir haha og hafa gaman af þessu

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Fös 06. Des 2024 21:03
af Hizzman
kbg skrifaði:
Hizzman skrifaði:símstöðin sem hefur eða byrjar símtalið getur sent caller id, það er engin leið að sannreyna að það sé rétt númer

https://en.wikipedia.org/wiki/Public_switched_telephone_network

símtal sem endar á Íslandi getur komið frá hvaða símstöð í veröldinni sem er. Þetta keyrir allt á áratuga gömlum prótókólum.


Þú kannski segir það við Finnana og Bretana því þeir eru búnir að útfæra þetta.

Ég get ekki séð að það sé eitthvað flóknara en að þú getur hringt hvaðan sem er úr heiminum í hvaða þriðja flokks landi sem er og alltaf er hægt að rukka þig af öllum símafyrirtækjum alveg sama í hvaða flókið símanet þú ert að fara í gegnum. Ef hægt er að rukka alla aðila í símtalinu 100% rétt þá eru nógar upplýsingar til að hægt sé að finna þetta út.


það er amk fróðlegt að gúgla 'ss7 vulnerability'

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Fös 06. Des 2024 22:24
af svanur08
Finnst bara skrítið ákkuru þessir menn sem scam-a verða aldrei handteknir í þessum löndum.

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Fös 06. Des 2024 23:34
af Moldvarpan
Þetta símkerfi er svo úrelt. Ekkert dulkóðað. Ef þú ert með tölvu tengda inn á kerfið, þá geturu ráðið hvaða númer birtist á skjánum.

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Lau 07. Des 2024 13:38
af Hizzman
held að eina leiðin til að blokka svona símtöl sé að kanna/meta hvort númer sem koma inn um erlenda gátt séu staðsett erlendis, auðvelt með fastlínunúmer en flóknara með farsíma, þá þarf að kanna hjá viðkomandi símafélagi hvort síminn er tengdur á íslenskt kerfi eða ekki.

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Þri 14. Jan 2025 14:13
af Climbatiz
hafði lengi lesið um þessi scam phone calls með íslenskum númerum en fékk einmitt tvö þannig áðan, þekkti ekki fyrsta númerið en svaraði vegna var innlent númer en það skrítna við það var að þau notuðu fake net nafnið mitt, býst við að þeir séu að leita upp nöfnin með því að stimpla símanúmer á fb

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Þri 14. Jan 2025 15:43
af halipuz1
nonesenze skrifaði:bara skella á ef þú hefur ekki tíma, annars bara vera eins heimskur of þú getur og pirrandi og taka þetta eins langt og þú nennir haha og hafa gaman af þessu


Ég lagði einn nú bara í einelti, var alltaf að segja að já ég væri til í þetta og talaði hann í rot með einhverri vitleysu, svo endurbókaði ég alltaf aðra hringingu því ég væri búinn að tala svo lengi að ég hefði síðan ekki tíma í þetta. :D

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Mán 10. Mar 2025 11:26
af aether
Note að ég kann ekkert á símstöðvar, en er ekki hægt að gera basic:

IF símanúmer er innlent AND source tengingar á símkerfi er erlendis THEN drop?

t.d. símtal frá (+354) 7765829 en source ip talan á tengingunni á símstöðina er ekki innlend? Nota símstöðvar ekki IP fyrir samskipti? Þekki það ekki...

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Mán 10. Mar 2025 11:58
af TheAdder
aether skrifaði:Note að ég kann ekkert á símstöðvar, en er ekki hægt að gera basic:

IF símanúmer er innlent AND source tengingar á símkerfi er erlendis THEN drop?

t.d. símtal frá (+354) 7765829 en source ip talan á tengingunni á símstöðina er ekki innlend? Nota símstöðvar ekki IP fyrir samskipti? Þekki það ekki...

Verða þá ekki allir sem fara erlendis í frí ófærir um að hringja heim?

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Mán 10. Mar 2025 12:01
af aether
TheAdder skrifaði:Verða þá ekki allir sem fara erlendis í frí ófærir um að hringja heim?


Ég veit ekki alveg, ef íslendingur er erlendis með síma, þá er sá sími með íslenskt SIM/eSIM, right?

Fer símtalið ekki gegnum netveitu hanns? sem getur auðkennt tenginguna? og svo framsent frá sínum kerfum?

Again, no idea hvernig símkerfi virka.

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Mán 10. Mar 2025 15:45
af Hizzman
SIM kortið hefur aðallega það hlutverk að vera rafrænt auðkenni til að staðfesta virka þjónustu hjá notandanum og að símafélagið sem gefur út kortið greiði fyrir notkun til aðilans sem farsíminn er tengdur við hverju sinni.

Það getur hvaða símstöð í veröldini sem er, sent símtal í hvaða númer sem er og sent hvaða callerID sem er! Já, hrein forneskja.

Það er alveg massívt verkefni að koma í veg fyrir þetta að öllu leyti.

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Mán 10. Mar 2025 15:59
af kbg
Hizzman skrifaði:SIM kortið hefur aðallega það hlutverk að vera rafrænt auðkenni til að staðfesta virka þjónustu hjá notandanum og að símafélagið sem gefur út kortið greiði fyrir notkun til aðilans sem farsíminn er tengdur við hverju sinni.

Það getur hvaða símstöð í veröldini sem er, sent símtal í hvaða númer sem er og sent hvaða callerID sem er! Já, hrein forneskja.

Það er alveg massívt verkefni að koma í veg fyrir þetta að öllu leyti.


Þetta er nú ekki flókið. Bara bæta þessum kóða við í símstöðina hérna heima: "Ef númer=útlenskt og callerId=íslenskt þá blokka númer" og málið er dautt.

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Mán 10. Mar 2025 20:03
af Hizzman
kbg skrifaði:
Þetta er nú ekki flókið. Bara bæta þessum kóða við í símstöðina hérna heima: "Ef númer=útlenskt og callerId=íslenskt þá blokka númer" og málið er dautt.


Vandamálið er að það er ekkert númer, nema það sem símstöðinni erlendu dettur í hug að senda sem callerID

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Mán 10. Mar 2025 22:10
af aether
Hizzman skrifaði:Vandamálið er að það er ekkert númer, nema það sem símstöðinni erlendu dettur í hug að senda sem callerID


Það sem ég meina, ef þú ert með vefþjón með TCP/IP, þá er alltaf hægt að sjá remote address á tengingum, sure þú getur lesið x-forwarded-for eða x-client-ip header en source ip er alltaf source ip tcp tengingarinnar, alveg sama hvað stendur í þessum attacker provided header...

Er þetta símdót ekki með similar concept?
IP based samskipti hafa það, en ég veit ekki hvort þetta sé IP based.

Re: Af hverju leyfa íslensk símafyrirtæki fake símanúmer?

Sent: Mán 10. Mar 2025 23:39
af kbg
Hizzman skrifaði:
kbg skrifaði:
Þetta er nú ekki flókið. Bara bæta þessum kóða við í símstöðina hérna heima: "Ef númer=útlenskt og callerId=íslenskt þá blokka númer" og málið er dautt.


Vandamálið er að það er ekkert númer, nema það sem símstöðinni erlendu dettur í hug að senda sem callerID


Ég á bágt með að trúa að íslenska símstöðin sem móttekur fái engar aðrar upplýsingar en callerid. Einhvern veginn geta allir aðilar hjá öllum símafyrirtækjum rukkað alla aðila í símtalinu um réttar upphæðir eftir því hvaðan er hringt og hver móttekur.