Er að leita mér að úti Öryggismyndavél. Ekki barterí.


Höfundur
jardel
Of mikill frítími
Póstar: 1715
Skráði sig: Þri 26. Jan 2010 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Er að leita mér að úti Öryggismyndavél. Ekki barterí.

Pósturaf jardel » Fim 14. Des 2023 00:14

Er að leita mér að úti Öryggismyndavél. Ekki barterí.

Hvernig er það ef maður vill vera með með hana þráðlausa og langt er í router. Er það þá engin möguleiki?




Höfundur
jardel
Of mikill frítími
Póstar: 1715
Skráði sig: Þri 26. Jan 2010 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Er að leita mér að úti Öryggismyndavél. Ekki barterí.

Pósturaf jardel » Fim 14. Des 2023 10:52

Er engin hérna sem þekkir þetta



Skjámynd

Langeygður
Fiktari
Póstar: 67
Skráði sig: Fim 12. Des 2019 00:04
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Er að leita mér að úti Öryggismyndavél. Ekki barterí.

Pósturaf Langeygður » Fim 14. Des 2023 11:43

Hérna eru nokkrar sem gætu virkað, prófaðu að fara þar sem þú ætlar að setja myndavélina og hafa símann þinn með þér. Ef að síminn nær sambandi ættu þessar vélar að virka líka. Hvernig þær eru tengdar verður þú svo að leysa.

https://elko.is/vorur/d-link-mydlink-or ... /DCS8620LH
https://media.dlink.eu/support/products ... 220622.pdf

https://elko.is/vorur/tp-link-c320ws-or ... 171/C320WS
https://www.tp-link.com/us/support/down ... 0ws/#video
Síðast breytt af Langeygður á Fim 14. Des 2023 11:45, breytt samtals 2 sinnum.


Fractal Design Pop Air - Intel I9-9900K - 32GB DDR4 3600Mhz - ASUS TUF Z390M-PRO GAMING - Asus TUF RTX4080 OC 16GB Gaming - Samsung 970 PRO 500GB M.2 - Samsung 990 EVO 2TB M.2 - Samsung 870 EVO 4TB SSD - Seagate 4TB HDD

Skjámynd

g0tlife
1+1=10
Póstar: 1167
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Reputation: 155
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: Er að leita mér að úti Öryggismyndavél. Ekki barterí.

Pósturaf g0tlife » Fim 14. Des 2023 13:52

Ég var að fá tvær vélar frá Vörn https://vorn.is/

Komu tveir menn og boruðu í gegnum veggi til þess að hafa þetta beintengt, mjög snyrtilega gert hjá þeim. Síðan settu þeir upp tölvu sem geymir myndefnið í X tíma. Til þess að spara kostnað og vesen þar sem það var mjög langt í router þá keypti ég annan router bara fyrir þetta kerfi og þeir hringdu í Símann og græjuðu eitthvað til þess að tengja hann í ljósleiðaraboxið. Tók búnað hjá þeim fyrir fjórar vélar og mun eflaust bæta tveimur við seinna þegar buddan leyfir.

Ég á svo þetta kerfi og vélar og ekkert mánaðargjald en get heyrt í þeim ef mig vantar aðstoð. Get opnað vélarnar í síma, tölvu og gefið fólki aðgang að þeim ef ég vill.

Ég var allavega mjög sáttur og já þetta kostar aðeins meira en er allavega gert 100%.


Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''

My CPU's Hot But My Core Runs Cold