Síða 1 af 1

Einfalt backup á iPhone yfir á PC

Sent: Mið 13. Júl 2022 17:07
af DoofuZ
Ég er að leita að einfaldri leið til að flytja myndir og myndbönd úr iPhone yfir á PC tölvu, helst bara í gegnum wifi þar sem ég hef prófað að tengja símann með snúru við tölvuna og mér finnst tengingin ekki vera alveg nógu stöðug. Er búinn að leita að appi og hef fundið nokkur sem gætu gert þetta en þar kosta fídusarnir sem ég vil nota eða þá að það eru einhver leiðinleg takmörk í fríum útgáfum. Fann t.d. PhotoSync en það afritar bara í low quality nema maður borgi fyrir pro útgáfuna.

Hefur einhver hér reynslu af svona? :-k Vil helst ekki þurfa að borga neitt fyrir app. Ég er með Android síma þar sem ég nota SMBSync2 en það app er ekki til fyrir iPhone.

Re: Einfalt backup á iPhone yfir á PC

Sent: Mið 13. Júl 2022 17:43
af TheAdder
Ef þú ert með iCloud, geturðu ekki farið inn á iCloud og náð í efnið þar?

Re: Einfalt backup á iPhone yfir á PC

Sent: Fim 14. Júl 2022 16:41
af netkaffi
Alveg virði að borga nokkra dollara fyrir þjónustu. Ég var svona áður líka, vildi allt frítt eða piratað og það gerði lífið mitt ekkert betra.

Re: Einfalt backup á iPhone yfir á PC

Sent: Fim 14. Júl 2022 16:48
af Predator
Mæli með að nota bara iCloud, borgar eitthvað klink á mánuði fyrir 200GB og getur downloadað öllu þaðan á þægilegan máta.

Re: Einfalt backup á iPhone yfir á PC

Sent: Fim 14. Júl 2022 18:39
af Minuz1
Thunderbolt tengi frá síma yfir í tölvu?

Re: Einfalt backup á iPhone yfir á PC

Sent: Fös 15. Júl 2022 02:11
af DoofuZ
TheAdder skrifaði:Ef þú ert með iCloud, geturðu ekki farið inn á iCloud og náð í efnið þar?

Jújú, eflaust get ég það. Get ég þá kannski sett upp eitthvað á tölvunni sem nær í allt af iCloud inná tölvuna og eyðir svo útaf iCloud? Það væri góð lausn, ætla að skoða það.

Minuz1 skrifaði:Thunderbolt tengi frá síma yfir í tölvu?

Eins og ég sagði í upphafspóstinum þá get ég einmitt tengt símann við tölvuna með snúru en mér finnst það vera eitthvað óstöðugt. Væri líka til í að þurfa ekki alltaf að tengja með snúru við tölvuna.

Svo er spurning hvort ég geti keypt bara svona backup flakkara sem er auglýstur að virki fyrir Apple tæki, hef séð nokkra þannig, bara spurning hvernig það virkar. Er þá bara tengt við síma og ýtt bara á takka í appi eða?

Ég vil bara geta tæmt útaf símanum reglulega inná local vél, nenni ekki svona cloud service nema ég geti einmitt notað það sem milligöngu. Hef verið að taka afrit af Android símanum mínum reglulega inná tölvuna og fíla það vel að vera með þetta local.

Er að fara í smá ferðalag svo ég held ég skoði þetta með iCloud betur eftir það :-k