Síða 1 af 1

Símahugleiðingar

Sent: Þri 22. Jún 2021 17:24
af agnarkb
Minn S10+ er orðinn þreyttur og lúinn og með allskonar vandræði af og til. Ég er því byrjaður í símahugleiðingum. Hef engin not fyrir að kaupa svona dýran síma aftur og er þessvegna að skoða mig um á miðlungs markaðinum sem virðist vera alveg pakkaður af allskonar tækjum. Er að skoða í svona kringum 60-90 kall, er með engar rosa kröfur en myndi vilja 5G (næ því einimtt svo svakalega vel núna eftir bólusetningu) , góða myndavél og ágætt build quality með þokkalegum og björtum skjá. Notast mikið við wireless charging en ég sé að það er ekki á flestum þessara miðlungssíma og er enginn dealbreaker.
Hef lítið fylgst með þróun síðustu ára í snjallsímaheiminum þannig að ég spyr, hvað eru konur og karlar (og allt þar á milli) að versla sér í dag í þessum verðflokki?

Tek það fram að ég nenni ekki að standa í því að flytja inn síma.

EDIT: Innsláttarvilla, átti að vera 90, ekki 80

Re: Símahugleiðingar

Sent: Þri 22. Jún 2021 17:29
af J1nX
mæli með að þú kíkir á mii.is eða tunglskin.is (tunglskin virðist reyndar vera niðri þegar ég skrifa þetta), þrusu símar á góðu verði. þessi gæti verið fullkominn fyrir þig: https://www.mii.is/vara/mi-11-lite/

Re: Símahugleiðingar

Sent: Þri 22. Jún 2021 21:52
af agnarkb
Hef einmitt verið að skoða þessa Mi síma. Einhverjir með reynslusögur af þeim?

Re: Símahugleiðingar

Sent: Þri 22. Jún 2021 22:19
af Viggi
Keypti mér þennan af þessari síðu. Alveg rugl góður sími eftir að ég er búinn að hreinsa allt kínadótið úr. Frábær á alla kanta

https://tradingshenzhen.com/en/mi-11-mi ... gn2-kamera

Re: Símahugleiðingar

Sent: Þri 22. Jún 2021 22:29
af einarhr
agnarkb skrifaði:Hef einmitt verið að skoða þessa Mi síma. Einhverjir með reynslusögur af þeim?


Ég á Poco X3, hann er frábær sími fyrir 50k

Re: Símahugleiðingar

Sent: Mið 23. Jún 2021 08:23
af fhrafnsson
Er ekkert mál að panta af þessari shenzhen síðu? Hvaða firmware valdirðu og var mikið mál að hreinsa kínadótið?

Re: Símahugleiðingar

Sent: Mið 23. Jún 2021 08:30
af brynjarbergs
Ég er biased sem verkefnastjóri hjá Mi Iceland, en þetta eru frábærir símar.
Mi 11i er hugsanlega aðeins yfir budget hjá þér í 109.990kr.- https://www.mii.is/vara/mi-11i/
En Mi 11 Lite 5G hljómar bara eins og akkúrat tækið sem þú ert að leitast eftir :happy https://www.mii.is/vara/mi-11-lite/

Re: Símahugleiðingar

Sent: Mið 23. Jún 2021 10:42
af Viggi
fhrafnsson skrifaði:Er ekkert mál að panta af þessari shenzhen síðu? Hvaða firmware valdirðu og var mikið mál að hreinsa kínadótið?


Fékk hann með cn firmware þar sem ég fékk hann svo snemma og þetta var soldið mikil handavinna að setja upp google dótið. Það var ekkert mál að fá hann hingað. myndi 100% setja á hann EU firmware og þá er ekkert kínadót og allt google dótið preinstalled. Átt ekki eftir að lenda í neinum vandræðum með 4g/5g. verður komin með síma á pari við s21 ultra á 130k hingað komnn :)

Re: Símahugleiðingar

Sent: Mið 23. Jún 2021 11:54
af agnarkb
brynjarbergs skrifaði:Ég er biased sem verkefnastjóri hjá Mi Iceland, en þetta eru frábærir símar.
Mi 11i er hugsanlega aðeins yfir budget hjá þér í 109.990kr.- https://www.mii.is/vara/mi-11i/
En Mi 11 Lite 5G hljómar bara eins og akkúrat tækið sem þú ert að leitast eftir :happy https://www.mii.is/vara/mi-11-lite/


Mi 11 Lite 5G er á listanum yfir möguleg kaup. En ég fann svo inn á emobi 10T Pro sem er hærra speccaður og virðist vera með betri myndavél (með image stabilization) en samt með ögn lakari skjá, á pappírum allaveganna.

https://emobi.is/index.php?route=produc ... uct_id=516

Re: Símahugleiðingar

Sent: Mið 23. Jún 2021 14:43
af Moldvarpan
Afhverju ekki Samsung A52 5G?

Hann er á 75k í elko.

https://elko.is/samsung-galaxy-a52-5g-snjallsimi-svartur-sma526bla

Re: Símahugleiðingar

Sent: Mið 23. Jún 2021 15:00
af Televisionary
Ég fékk OnePlus 8T 12GB módelið í liðinni viku hjá Emobi:

https://emobi.is/index.php?route=produc ... uct_id=648

Þetta er þriðji OnePlus síminn minn. Þeir hafa reynst mér vel.

Re: Símahugleiðingar

Sent: Mið 23. Jún 2021 15:21
af agnarkb
Moldvarpan skrifaði:Afhverju ekki Samsung A52 5G?

Hann er á 75k í elko.

https://elko.is/samsung-galaxy-a52-5g-snjallsimi-svartur-sma526bla


Skoðaði hann líka. Systir mín er með einhverja A týpuna og er sátt en mig langar að prófa eitthvað annað en Samsung í þetta skiptið.

Re: Símahugleiðingar

Sent: Mið 23. Jún 2021 19:09
af kizi86
agnarkb skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Afhverju ekki Samsung A52 5G?

Hann er á 75k í elko.

https://elko.is/samsung-galaxy-a52-5g-snjallsimi-svartur-sma526bla


Skoðaði hann líka. Systir mín er með einhverja A týpuna og er sátt en mig langar að prófa eitthvað annað en Samsung í þetta skiptið.


myndi aaaaaaaaldreiiiiiiiii fara í midrange samsung síma, algjört peningaplokk miðað við hvað færð fyrir peninginn... alls ekki auranna virði, Xiaomi eru klárlega með besta bang for the buck, bæði með vélbúnað og build quality

Re: Símahugleiðingar

Sent: Mið 23. Jún 2021 22:39
af fhrafnsson
Viggi skrifaði:Keypti mér þennan af þessari síðu. Alveg rugl góður sími eftir að ég er búinn að hreinsa allt kínadótið úr. Frábær á alla kanta

https://tradingshenzhen.com/en/mi-11-mi ... gn2-kamera


Þegar ég reyni að panta er ekki hægt að velja Ísland í dropdown menu yfir lönd. Var eitthvað trick við að panta þetta?

Re: Símahugleiðingar

Sent: Mið 23. Jún 2021 23:02
af Viggi
fhrafnsson skrifaði:
Viggi skrifaði:Keypti mér þennan af þessari síðu. Alveg rugl góður sími eftir að ég er búinn að hreinsa allt kínadótið úr. Frábær á alla kanta

https://tradingshenzhen.com/en/mi-11-mi ... gn2-kamera


Þegar ég reyni að panta er ekki hægt að velja Ísland í dropdown menu yfir lönd. Var eitthvað trick við að panta þetta?


Það er eitthvað nýtt. Gat valið Ísland þegar ég keypti hann :(