Síða 1 af 3

Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Mið 30. Okt 2019 18:32
af appel
Ég þarf að endurnýja símann, er með galaxy s6+, þar á undan galaxy s2. Uppfæri ekki oft, þannig að ég er ekki svona poweruser í farsíma, er meiri desktop user.
Ekkert að kvarta yfir vegna samsung galaxy, er að hugsa um s10+ þá. Reyndar hefur mér alltaf fundist interfaceið í android vera svolítið óþarflega flókið, allskonar skjámyndir og icon scatteruð út um allt hér og þar.

En svo finnst mér iPhone líka bara flottur, betur organizað ui. En aldrei verið með iPhone þannig að ég veit ekki hver reynslan er þar í samanburði við android.

Einhver ástæða önnur að skipta í iPhone?

Svo er ég ekki viss um að ég vilji fórna minijack, sem iPhone er ekki með.

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Mið 30. Okt 2019 18:42
af agust1337
Ef þú vilt að eitthvað virki, og heldur áfram að virka lengi og þér er alveg sama um hvernig stýrikerfið lítur út > iPhone
Ef þú vilt leikja þér við stýrikerfið og sérsníða það > Android

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Mið 30. Okt 2019 18:48
af audiophile
Ég er Samsung maður en nýju Iphone 11 Pro símarnir virðast vera mjög flottir og frábærar myndavélar. Ég fíla Android betur og hef ekki hugsað mér að skipta en skil alveg fólk sem freistast í eplin.

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Mið 30. Okt 2019 20:01
af Hauxon
Bæði Galaxy 10+ og iPhone 11 eru geggjað flottir símar, en þeir eru líka geggjað dýrir. Ég ákvað fyrir rúmu ári að kaupa ódýran en sæmilega spekkaðan kínasíma til prufu. Ég keypti Xiaomi Mi A2 á rúmlega 30 þúsund. Skjárinn er fínn, hraðinn er fínn, myndvélin er fín, batteríið er gott og hann er svo svipaður iPhone X plus að ég og dóttir mín erum hvað eftir annað að ruglast á símum. Hann er það góður að ég sé ekki tilgang í að kaupa síma á 100-200 þúsund, get notað peninginn í eitthvað annað. Það eru til betri kínasímar ef mann langar í fjarhleðslu, betri vatnsvörn ofl. Dýrasti Xiaomi síminn kostar 80þ. vs ...250..300? fyrir iPhone. Ef vinnan borgar þá skiptir þetta auðvitað minna máli ;)

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Mið 30. Okt 2019 20:12
af Njall_L
Ég var dolfallinn Android maður en skipti úr Galaxy S7 í iPhone 7 Plus þegar hann kom út og er með iPhone XS Max í dag, gæti ekki verið sáttari. Stýrikerfið er að mínu mati einfaldara og þau öpp sem ég er að nota eru meira responsive á iPhone. Hvet þig því eindregið til að prófa eplið. Í versta falli mætti selja það ef þér finnst þetta alveg hræðilegt en eplin virðast halda verði betur á notuðum markað.

Ef ég þyrfti að kaupa mér Android síma í dag myndi ég þó sennilega kaupa OnePlus. 90Hz skjár, flottir spekkar og gott stýrikerfi sem fæst á góðu verði.

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Mið 30. Okt 2019 20:46
af Frost
Ég var alltaf með Android. Skipti frá Galaxy S7 yfir í iPhone 8 og næsti sími mun vera iPhone. iPhone uppfyllir allar þær kröfur sem ég geri til síma, Android bíður upp á miklu fleiri möguleika með margt en ég endaði yfirleitt á því að "skemma" símana því ég fiktaði svo mikið í Android.

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Mið 30. Okt 2019 21:19
af elri99
Sammála með að bæði OnePlus og Xiaomi séu flottir símar. Keypti Xiaomi MI 9 af GearBest um daginn. Hingað kominn á innan við 60.000. Frábær sími.

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Fim 31. Okt 2019 08:27
af Jón Ragnar
Fólk segir oft þegar það er borið saman iPhone og Android, að þú getir "fiktað" meira i android.


Málið er að ég held að langflestir vilji bara síma sem VIRKI án þess að fikta eitthvað.

iPhone er svo algjörlega málið þegar kemur að bara að virka. Skiptir ekki máli hvað er í gangi, þá bara virkar hann

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Fim 31. Okt 2019 08:40
af kjartanbj
Hauxon skrifaði:Bæði Galaxy 10+ og iPhone 11 eru geggjað flottir símar, en þeir eru líka geggjað dýrir. Ég ákvað fyrir rúmu ári að kaupa ódýran en sæmilega spekkaðan kínasíma til prufu. Ég keypti Xiaomi Mi A2 á rúmlega 30 þúsund. Skjárinn er fínn, hraðinn er fínn, myndvélin er fín, batteríið er gott og hann er svo svipaður iPhone X plus að ég og dóttir mín erum hvað eftir annað að ruglast á símum. Hann er það góður að ég sé ekki tilgang í að kaupa síma á 100-200 þúsund, get notað peninginn í eitthvað annað. Það eru til betri kínasímar ef mann langar í fjarhleðslu, betri vatnsvörn ofl. Dýrasti Xiaomi síminn kostar 80þ. vs ...250..300? fyrir iPhone. Ef vinnan borgar þá skiptir þetta auðvitað minna máli ;)


Það sem gerir sig ekki fyrir mig í þessum kínasímum er að í þeim flestum þá vantar einhvern fídus, eins og NFC og þráðlausu hleðsluna , ég borga td einungis með símanum mínum í dag, hef ekki borgað með korti í marga mánuði , og ég nota mikið þráðlausa hleðslu , yfirleitt með símann í dokku í glugganum þegar ég er að keyra í vinnuni og hann hleðst á meðan

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Fim 31. Okt 2019 08:50
af Jón Ragnar
Hauxon skrifaði: Dýrasti Xiaomi síminn kostar 80þ. vs ...250..300? fyrir iPhone. Ef vinnan borgar þá skiptir þetta auðvitað minna máli ;)



Hvar finnur þú 300k iphone?

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Fim 31. Okt 2019 09:03
af brynjarbergs
Jón Ragnar skrifaði:
Hauxon skrifaði: Dýrasti Xiaomi síminn kostar 80þ. vs ...250..300? fyrir iPhone. Ef vinnan borgar þá skiptir þetta auðvitað minna máli ;)



Hvar finnur þú 300k iphone?


https://www.epli.is/iphone/iphone-11-pro-max-512-space.html

Þessi er ekkert langt frá 300k :-k

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Fim 31. Okt 2019 09:10
af Jón Ragnar
brynjarbergs skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:
Hauxon skrifaði: Dýrasti Xiaomi síminn kostar 80þ. vs ...250..300? fyrir iPhone. Ef vinnan borgar þá skiptir þetta auðvitað minna máli ;)



Hvar finnur þú 300k iphone?


https://www.epli.is/iphone/iphone-11-pro-max-512-space.html

Þessi er ekkert langt frá 300k :-k



Dýrasta týpan er ekki sambærilegt við ódýran kínasíma?

Færð iPhone 11 Pro á talsvert minna en þetta

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Fim 31. Okt 2019 09:18
af brynjarbergs
Jón Ragnar skrifaði:
brynjarbergs skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:
Hauxon skrifaði: Dýrasti Xiaomi síminn kostar 80þ. vs ...250..300? fyrir iPhone. Ef vinnan borgar þá skiptir þetta auðvitað minna máli ;)



Hvar finnur þú 300k iphone?


https://www.epli.is/iphone/iphone-11-pro-max-512-space.html

Þessi er ekkert langt frá 300k :-k



Dýrasta týpan er ekki sambærilegt við ódýran kínasíma?

Færð iPhone 11 Pro á talsvert minna en þetta


Alveg kórrétt hjá þér! Xiaomi eru vaxandi í áliti hjá mér eftir að ég eignaðist nokkur tæki frá þeim.
Ég hef verið mjög fastur Samsung Note aðdáandi en myh gawd hvað nýju Xiaomi líta vel út!

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Fim 31. Okt 2019 09:26
af GullMoli
Ég var í Android; var alltaf að fikta, skemma, laga, öppin að crash, bloatware, frjósa, og stöku lagg.

Skipti yfir í WIndows Phone; geggjaðar myndavélar og aldrei hik, lagg eða vesen. Hinsvegar app skortur.

Skipti yfir í iPhone; allir kostir Windows Phone plús besta app support. Byrjaði á notuðum 5s sem ég keypti á 20þús, líkaði svo vel að ég keypti nýjan iPhone 7 sem ég nota enn. Hef ekki litið við síðan.

Apps í iPhone virka alltaf súper vel. Til nokkrar greinar sem tala um að það sé meira incentive fyrir forrita að þróa apps fyrir iPhone þar sem að það sé meiri gróði í boði á þeim markaði (fólk líklegra til þess að eyða pening). Ég hef verslað eitt og annað app, enda kominn yfir nískuna að tíma ekki andvirði gosflösku í gæða app án auglýsinga.

Ég vil bara síma sem virkar mjög vel þar sem ég nota tækið mjög mikið (og Apple Pay er snilld), umtalsvert meira en far-/borðtölvuna, sé litið framhjá vinnunni. Er einmitt að íhuga að uppfæra í iPhone 11 .. :)

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Fim 31. Okt 2019 12:46
af ChopTheDoggie
Mér finnst persónulega iPhone vera alveg flottir símar en þeir eru alltof dýrir svo sé ég sjálfur enga ástæðu fyrir mig að færa yfir í iPhone frá Samsung Note seríuni

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Fim 31. Okt 2019 13:22
af darkppl
Var persónlega alltaf í android(S4, S5, S6, S7.) og ákvað að prófa iphone eftir að hafa verið svona lengi í android og sé eiginlega ekki eftir því myndavélin frábær stýrikerfið er solid gestures geggjað þæginlegt faceid mjög þæginleg (enginn fingrafaraskanni en böggar mig ekki því faceid er frekar hratt) varðandi verð þá hafa símar almennt hækkað í verði bæði android og iphone símar.

Apple pay er æðislega þægilegt og allt apple ecosystemið sumt sem er smá böggandi en annars er það frekar solid.

Er með Iphone XS Max 256GB og það er meira en nóg og ef 128GB hefði verið valmöguleiki hefði ég örugglega tekið það.

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Fim 31. Okt 2019 15:16
af Hallipalli
Fékk mér s10+ aldrei verið jafn svekktur með síma. Reyndar geggjuð myndavél á honum.

Var með iPhone áður (iphone 6 plus mjög ánægður með hann en gaf upp öndina).

Fékk að skipta símanum og fékk mér iPhone aftur.

Lexía: Maður endar alltaf aftur í iPhone, þeir bara virka og ekkert vesen!

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Fim 31. Okt 2019 15:26
af Aimar
hvað með þetta fræga rafhlöðuvesen i iphone? er ekki fljótt að dragast úr styrknum a þeim? munur á innan við ári?

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Fim 31. Okt 2019 15:37
af Njall_L
Aimar skrifaði:hvað með þetta fræga rafhlöðuvesen i iphone? er ekki fljótt að dragast úr styrknum a þeim? munur á innan við ári?

Þetta var eitt sem ég pældi mikið í áður en ég fékk mér iPhone en hef aldrei fundið fyrir eftir að ég fékk mér þannig. Mér fannst allir Android símar sem ég hef átt verða með augljóslega verri rafhlöðuendingu í þeirri notkun sem ég er í þrátt fyrir að vera með miklu stærri rafhlöðu í mAh. Hvað endinguna varðar þá hef ég aldrei átt síma nægilega lengi til þess að það hafi orðið vandamál en núna er ég með rúmlega eins árs iPhone XS Max og rafhlaðan í honum getur haldið 99% af upprunalegri rýmd samkvæmt Settings appinu.

Ef ég mun eiga þennan síma nægilega lengi til að rafhlaðan í honum sé orðin augljóslega léleg, geri ráð fyrir 2-3 árum, þá þykir mér heldur ekki mikið að borga 8.990kr fyrir að fá nýja OEM rafhlöðu frá viðurkenndum þjónustuaðila Apple: https://www.epli.is/thjonusta/verdlisti.html

Það er meira að segja dýrara að fá nýja Samsung rafhlöðu í flaggskip frá þeim frá viðurkenndum þjónustuaðila. Get ekki betur séð en að rafhlöðuútskipti á S8-S10 séu á bilinu 14-15 þúsund: https://samsungmobile.is/thjonusta/verd ... y-s10plus/

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Fim 31. Okt 2019 15:44
af Frost
Aimar skrifaði:hvað með þetta fræga rafhlöðuvesen i iphone? er ekki fljótt að dragast úr styrknum a þeim? munur á innan við ári?


Minn sími er orðinn 18 mánaða gamall og maximum capacity er 85%.
Hef ekki enn fundið fyrir þessum mun þar sem ég nota símann tiltölulega lítið. Hef þó þurft að hlaða símann 1-2x á heavy use dögum.

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Fim 31. Okt 2019 16:13
af Gustaf
Aimar skrifaði:hvað með þetta fræga rafhlöðuvesen i iphone? er ekki fljótt að dragast úr styrknum a þeim? munur á innan við ári?



Ég var með Iphone 6s+ sem rétt var orðinn 4 ára þegar að ég skipti yfir í Iphone 11. Batteríið var komið í 77-79% sem mér finnst alveg ásættanlegt miðað við daglega notkun í 4 ár. Ég hefði í raun getað látið gamla símann endast lengur með því að skipta um batterý en ég sé ekki eftir uppfærslunni í Iphone 11.

Helstu kostirnir við Apple finnst mér er að tækin tala saman, ég er ekki með tölvu en ég hef Ipad pro, Iphone og apple úrið og það er svaka þægilegt að allt “syncast” á milli. Allar ljósmyndir, glósur, forrit og gögn fara sjálfkrafa á milli.

Mér persónulega finnst Iphone 11 Pro vera of dýr miðað við muninn á 11 og 11 pro. Myndavélin er sú saman fyrir utan aðdráttarlinsuna, og batterýlíftíminn er svipaður, það er munur á skjánum en mér finnst uppfærslan frá 11 yfir í 11 pro ekki vera 50.000kr virði.

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Fim 31. Okt 2019 16:24
af appel
Ákvað að fara í galaxy s10+. Er ekki í þessu Apple eco systemi, líkar vel við núverandi galaxy, og langar að hafa mic jack.

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Sun 03. Nóv 2019 03:42
af netkaffi
Er búið að langa skipta í iPhone í nokkur ár síðan ég prófaði einn hjá vinkonu minni fyrir tilviljun. Ég hef ekki prófað iPhone fyrr eða síðar, en tók strax eftir að hann var 100% mikið meira responsive. Alveg 0% lagg m.v. ég hef prófað marga Android of það hefur alltaf verið eitthvað lagg á mismunadi stigum, annað hvort 1% eða 0,01% svo ég komi þessu einhvernvegin í orð -- veit ekki hversu margar miliseconds (ms) og prósenturnar eru bull en allt lagg böggar mig! Ef einhver gamall iPhone sem hún fékk gefins er meira responsive heldur en glænýr Samsung Note 8 á sínum tíma, þá er ég að fara fá mér iPhone þegar ég endurnýja (er einhver að selja?).

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Sun 03. Nóv 2019 12:41
af kjartanbj
Einn stærsti gallinn við Iphone að mínu mati er þessi árátta hjá þeim að vera með allt proprietary , hleðslusnúra öðruvísi en allir aðrir er alveg mega bögg , síðan þetta one button dæmi er eitthvað sem er rosalega erfitt að venjast, vill hafa back takkann td alltaf á sama stað en ekki þurfa leita að honum eftir í hvaða appi maður er í

Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?

Sent: Sun 03. Nóv 2019 18:22
af osek27
Oneplus 7T Pro. Ódyr, geggjuð features eins og putta skanni undir skjá, geðveikur skjár og flottur