Síða 1 af 1

Lightning tengi á iPhone X

Sent: Þri 10. Sep 2019 23:06
af halli7
Er í vandræðum með lightning tengið (hleðslutengið) á símanum hjá mér, iPhone X
Búinn að gera allt þetta helsta sem hefur virkað í gegnum tíðina, blása úr því og hreinsa.
Snúran bara tollir ekki í, læsir sér bara öðrumegin og snúran tollir því mjög illa í.

Hvar er best að láta laga/skipta um tengið á símanum?

Re: Lightning tengi á iPhone X

Sent: Mið 11. Sep 2019 01:17
af Viktor
Ertu búinn að nota nál til að hreinsa tengið?
Hljómar eins og það sé naflakusk innst í tenginu.

Myndi líka prufa nýja snúru og annað USB tengi áður en þú ferð að láta skipta um þetta.

Re: Lightning tengi á iPhone X

Sent: Mið 11. Sep 2019 08:45
af addon
Sallarólegur skrifaði:Ertu búinn að nota nál til að hreinsa tengið?
Hljómar eins og það sé naflakusk innst í tenginu.

Myndi líka prufa nýja snúru og annað USB tengi áður en þú ferð að láta skipta um þetta.


eins og hann segir ef þú ert ekki búinn að taka það sem er í botninum myndi ég gera það, það getur blöffað því það verður mjög hart af því að vera þjappað þarna inn mörghundruð sinnum. ég veit ekki hvort það sé neitt hættulegt að troða járni þarna niður en ég hef alltaf notað tannstöngul eða ennþá betra bambus grillpinna, brít hann í sundur þannig að það er bara þunn en mjög sterk flís

Re: Lightning tengi á iPhone X

Sent: Mið 11. Sep 2019 09:19
af halli7
Var einmitt smeikur við að troða járni í þetta en lét svo vaða með örmjóu járni og náði að hreinsa restina svoleiðis. Er mikið skárri núna en tengið örugglega eitthvað farið að slitna, snúran mætti vera þéttari í.

Re: Lightning tengi á iPhone X

Sent: Mið 11. Sep 2019 10:06
af russi
Þarft bara að hreinsa þetta betur, lenti sjálfur í þessu, endaði á nota pinnan sem er notaður til að ná SIM kortum úr, náði allveg slatta með þeim pinna

Re: Lightning tengi á iPhone X

Sent: Mið 11. Sep 2019 13:08
af GuðjónR
Er ekki best að skola þetta með vatni? :guy

Re: Lightning tengi á iPhone X

Sent: Mið 11. Sep 2019 13:30
af gnarr
GuðjónR skrifaði:Er ekki best að skola þetta með vatni? :guy

Það er svona grínlaust ekki svo slæm hugmynd. Þessir símar eru IP68, svo það ætti ekki að skemma neitt að skola draslið út.

Re: Lightning tengi á iPhone X

Sent: Fim 12. Sep 2019 10:10
af Jón Ragnar
Nota alltaf tannstöngul til að gera þetta