Thinkpad X, T og * módel. Spurning til reynslubolta


Höfundur
Sporður
has spoken...
Póstar: 199
Skráði sig: Mán 22. Okt 2018 09:06
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Thinkpad X, T og * módel. Spurning til reynslubolta

Pósturaf Sporður » Lau 07. Sep 2019 19:29

Sæl verið þið.

Langar að koma með spurningu til ykkar sem hafið reynslu af einu eða mörgum módelum af Thinkpad.

Ég er í augnablikinu með gamla T410s sem er farin að gefa merki um það að hún sé að nálgast enda lífs síns. Ég stefni á að halda mig við thinkpad þar sem ég er mjög hrifinn af lyklaborðinu og sú gamla hefur reynst mér vel. Ég hef hinsvegar verið að velta því fyrir mér hvort ég eigi að prufa x módel (líklegast 250 eða 260) en er ekki alveg viss hvort 12.5" mun reynast mér of lítil.

Ég ferðast á milli skóla, vinnu og heimilis með fartölvuna þannig að það er sá þáttur sem ég er að horfa á varðandi stærðina/þyngdina en á sama tíma mögulega skerðingu á notagildi vegna minni skjás.

Þess vegna beini ég þeirri spurningu til ykkar sem hafið reynslu af þessum vélum. Hversu mikil viðbrigði voru það fyrir ykkur að vinna á x-módel samanborið við t-módel (eða sambærilegt). Fannst ykkur lyklaborðið áberandi öðruvísi? Skjárinn áberandi minni? Áberandi léttari eða meðfærilegri?



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3106
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 526
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Thinkpad X, T og * módel. Spurning til reynslubolta

Pósturaf Hjaltiatla » Sun 08. Sep 2019 11:41

Sjálfur hef ég átt all nokkrar Thinkpad úr T línunni og þær eru flestar með frábæru lyklaborði (touchpadinn hins vegar ekki alltaf uppá 10 að mínu mati),
Sjálfur hef ég verið að kynna mér X línuna og hef heyrt að x230 og x1 carbon (1st eða second gen) séu þær vélar sem eru að koma vel út. En ég er að skoða að versla mér notaða vél sem ég get haft á flakkinu (reikna með að versla af ebay UK). En það er einnig vegna þess að þær eru með mjög gott support ef maður setur upp Linux á vélanar. Þessar vélar eru með gott lyklaborð bara svo það komi fram.Er sjálfur með aðra fartölvu sem ég er með heima sem er með 17" skjá þannig að ég er ekki að leita að vél fyrir alla mína notkun (hefði þá eflaust verið að skoða x1 carbon vélanar ef það væri tilfellið). Ef ég væri þú þá myndi ég einfaldlega mæta niðrí Origo og prófa vélanar.


Just do IT
  √