Síða 1 af 1

Librem 5 - The only modern smartphone you can (truly) own

Sent: Mán 06. Maí 2019 19:57
af Hjaltiatla
Mynduð þið versla þennan síma ef hann virkar eins og hann er auglýstur?
Keyrir á PureOS og á að virða privacy hjá notendum.
https://puri.sm/products/librem-5/

Re: Librem 5 - The only modern smartphone you can (truly) own

Sent: Mán 06. Maí 2019 20:48
af zurien
Algerlega

Re: Librem 5 - The only modern smartphone you can (truly) own

Sent: Mán 06. Maí 2019 21:38
af Hjaltiatla
Væri sweet ef maður gæti losnað við þetta Java runtime environment (sem Android bíður uppá ofan á linux kernelinn) og losnað við allt þetta tracking og fínerí sem framleiðendur troða inní Android stýrikerfið. Þannig að ég innilega vona að þetta project gangi upp.

Re: Librem 5 - The only modern smartphone you can (truly) own

Sent: Mán 06. Maí 2019 22:16
af einarn
Eg væri til i seinna gen af þessum síma. Allavegna sja reviews áður enn ég kaupi.

Re: Librem 5 - The only modern smartphone you can (truly) own

Sent: Mán 06. Maí 2019 22:21
af Hjaltiatla
einarn skrifaði:Eg væri til i seinna gen af þessum síma. Allavegna sja reviews áður enn ég kaupi.


Purism (sem eru að framleiða þessa síma) hafa verið soldið að drulla uppá bak með Fartölvunar og lofað aðeins uppí ermina á sér (þ.e speccanir ekki alveg í takt við það sem þeir upprunalega auglýstu) en hafa alltaf deliver-að samt sem áður.Hafa fengið skammir fyrir lélegt marketing og ég var að spotta að Bryan Lunduke (starfaði áður í marketing málum hjá Open Suse) er að fara aðstoða Purism í þeim málum skv Youtube video-i sem hann postaði.

Re: Librem 5 - The only modern smartphone you can (truly) own

Sent: Mán 06. Maí 2019 22:32
af Viktor
Afhverju gera þau ekki bara Android fork með meira privacy?

Get ekki ímyndað mér að fólk sé spennt að kaupa dýran síma með engum öppum, fyrir utan þessi sem fylgja með.

Upon initial shipment of the Librem 5 in 2019, it will offer the essentials: phone functionality, email, messaging, voice, camera, browsing.

Re: Librem 5 - The only modern smartphone you can (truly) own

Sent: Mán 06. Maí 2019 22:42
af Hjaltiatla
Sallarólegur skrifaði:Afhverju gera þau ekki bara Android fork með meira privacy?

Get ekki ímyndað mér að fólk sé spennt að kaupa dýran síma með engum öppum, fyrir utan þessi sem fylgja með.


Já það er alltaf markaður samt fyrir svona stöff, get alveg sagt að ég myndi persónulega vilja svona síma ef hann virkar þ.e rafræn skilríki og ég get notað,sandboxed HTML5 app í staðinn fyrir öppin í Android Play store. Sjálfur nota ég Android síma í dag þar þar sem það er ekkert annað í boði sem virkar almennilega.Sjálfur reyni ég að forðast að vera markaðsvara ef ég mögulega get það (þ.e að ég geti gefið mér það að það sé ekki verið að nota metadata um mínar kaupvenjur eða annað í þá áttina).

Edit: Dæmi , Youtube appið t.d í Android er alveg hræðilegt og þarf ég að nota sérstakan Adblock browser til að geta horft á Youtube til að losna við óþolandi auglýsingar í appinu.

Re: Librem 5 - The only modern smartphone you can (truly) own

Sent: Mán 06. Maí 2019 23:09
af Viktor
Það er hvergi minnst á að þessi sími verði með adblock :)

Re: Librem 5 - The only modern smartphone you can (truly) own

Sent: Mán 06. Maí 2019 23:36
af Hjaltiatla
Sallarólegur skrifaði:Það er hvergi minnst á að þessi sími verði með adblock :)


Reyndar :-k , ég ætla að gefa mér það að það verði í boði og mun pönkast í þeim ef það verður ekki :) En allavegana getur maður gefið sér það að það verði ekki targeted auglýsingar í neinum öppum.ublock origin er besti vinur minn á PC og sjálfur nota ég ekki Facebook eða neinn social media (fyrir utan linkedin þar sem ég actually sé eitthvað value í því að nota þann platform).Hætti að nota Windows 10 þegar auglýsingar og tracking var orðið of yfirþyrmandi inní stýrikerfinu. Bara prinsipp að nota ekki vöru ef eitthvað betra er í boði eða vara/hugbúnaður bíður uppá eitthvað mjög spennandi að ég sætti mig einfaldlega við stöðuna ef það er verið að safna um mig upplýsingum og þess háttar.

Edit: Purism hefur btw verið einmitt gagnrýndir fyrir að hafa ekki aðgengilega GDPR Policy-u etc... Þannig að ég vona að Bryan Lunduke nái að aðstoða við framsetninguna á þessari vöru :)