Síða 1 af 1

Nýjann síma

Sent: Fim 07. Feb 2019 23:18
af Haraldur25
Núna er Lg V10 síminn minn ónýtur svo ég er að leita af nýjum.

Hef haft augun á Xiaomi . Hefur einhverj reynslu af þeim. Sértaklega þá Mi Mix 3.

Hvað mundu þið mæla með?

Er að leita eftir síma sem er öflugur, helst ryk og höggvarinn,Stórann skjá og gott Dac sound.

Mest með augun á Xiaomi Mi mix 3 og LG V40

Ætti ég frekar kannski að bíða eftir nýju símanum sem verða tilkynntir núna í enda febrúar?

Re: Nýjann síma

Sent: Fös 08. Feb 2019 10:29
af kizi86
Hef átt 3 Xiaomi síma, 2x Mi Note Pro og svo núverandi Mi Mix2s, sem er klárlega besti sími sem ég hef átt. Langar sjúklega mikið í Mi Mix 3. Build quality og hönnun a Xiaomi símunum er bara fáránlega gott, svo skemmir verðin á þeim alls ekki fyrir.

Re: Nýjann síma

Sent: Fös 08. Feb 2019 10:45
af littli-Jake
Ég er með Mi 8 og er alveg ofboðslega sáttur.

Eina sem ég get pirrað mig á er timerinn á silent. Þú hefur val um 30 mín, klukkutíma, 2 og 8 tíma. Mundi vilja Costum það eins og vekjaraklukku. Rosa mínus maður :sleezyjoe

Re: Nýjann síma

Sent: Fös 08. Feb 2019 10:48
af asgeireg
Ég keypti Redmi 5 Plus fyrir dóttir mína, sé ekki eftir því. Hún var að fá rosalega mikinn síma fyrir peninginn miðað við ef það haefði verið farið í samsung eða LG.
Hún braut reyndar skjáinn um daginn, fékk nýjan í kína á 12$ og þreitti frumraun í að skipta um skjá, sem tókst.

Ef ég fengi ekki úthlutaðan síma í vinunni þá myndi ég fara pottþétt í þessa Xiaomi síma.

Re: Nýjann síma

Sent: Fös 08. Feb 2019 11:28
af hallizh
asgeireg skrifaði:Ég keypti Redmi 5 Plus fyrir dóttir mína, sé ekki eftir því. Hún var að fá rosalega mikinn síma fyrir peninginn miðað við ef það haefði verið farið í samsung eða LG.
Hún braut reyndar skjáinn um daginn, fékk nýjan í kína á 12$ og þreitti frumraun í að skipta um skjá, sem tókst.

Ef ég fengi ekki úthlutaðan síma í vinunni þá myndi ég fara pottþétt í þessa Xiaomi síma.



Og var það alveg högg sem er eðlilegt að sími brotni af? Ekki vitað til þess að símar séu að brotna frekar lengi.

Re: Nýjann síma

Sent: Lau 09. Feb 2019 11:05
af asgeireg
hallizh skrifaði:
asgeireg skrifaði:Ég keypti Redmi 5 Plus fyrir dóttir mína, sé ekki eftir því. Hún var að fá rosalega mikinn síma fyrir peninginn miðað við ef það haefði verið farið í samsung eða LG.
Hún braut reyndar skjáinn um daginn, fékk nýjan í kína á 12$ og þreitti frumraun í að skipta um skjá, sem tókst.

Ef ég fengi ekki úthlutaðan síma í vinunni þá myndi ég fara pottþétt í þessa Xiaomi síma.



Og var það alveg högg sem er eðlilegt að sími brotni af? Ekki vitað til þess að símar séu að brotna frekar lengi.


Ja ég held það þær eitthvað að hlaupa og taka video, var svo sem ekkert vitni að þessu.

Ef þú þekkir fólk sem á Iphone þá ætti ekki að koma á óvart brotnir skjáir ég veit ekki hvað ég er búinn að láta skipta um marga skjái á símanum sem konan átti og svo eldri dóttir mín, allavega 2-3x hvor simi :mad

Ég braut svo skjáinn á S8+ sem ég var með tvisvar, bæði skiptin datt hann á hornið niðri, samt í mjög góðu samsung hulstri sem var varði hornin mjög vel, og í bæði skiptin varð hann ónothæfur stuttu seinna.

Re: Nýjann síma

Sent: Lau 09. Feb 2019 12:47
af Haraldur25
Takk fyrir svörin.

Hvort mundiði taka Mi Mix 3 eða Mi 8 pro?

Re: Nýjann síma

Sent: Sun 10. Feb 2019 01:38
af kizi86
Haraldur25 skrifaði:Takk fyrir svörin.

Hvort mundiði taka Mi Mix 3 eða Mi 8 pro?

ég myndi taka Mix 3, bara alltof falleg hönnun á þeim síma + "full screen" screen :D