Síða 1 af 3

Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Lau 05. Jan 2019 02:17
af jardel
Haldið þið að það verði mikill munur frá 9

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Lau 05. Jan 2019 09:34
af DJOli
Ég meina. Myndavélin í S9 var downgrade úr myndavélinni á S6, svo ég bind nú ósköp litlar vonir við að S10 verði skárri.

Er enn að nota S6-una í dag.

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Lau 05. Jan 2019 14:03
af jardel
DJOli skrifaði:Ég meina. Myndavélin í S9 var downgrade úr myndavélinni á S6, svo ég bind nú ósköp litlar vonir við að S10 verði skárri.

Er enn að nota S6-una í dag.



Ég er sjálfur með s7 edge hef ekki
I farið i uppfæra sima.
Ég vill sjá meiri breytingu.
Spurning hvort maður eigi frekar að fara iphone x?

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Lau 05. Jan 2019 17:42
af rapport
Keypti s8 en ekki s9 í sumar, það var ekkert betra við s9, hefði notað minn gamla s6 áfram ef hann hefði ekki bilað örlítið, gat bara hlaðið hann þráðlaust og gaf félaga mínum í Serbíu hann sem vantaði góðan síma.

Dauðsá eftir því nokkrum vikum seinna því að skjárinn á s8 brotnaði og þessir kúptu símar brotna víst nokkuð auðveldlega.

Hjá viss.is þá kostaði 60þ. að skipta um skjá/gler og var sjálfsábyrgðin um 20þ. Viðgerðin tók um þrjár vikur því þeir sendu símann til UK.

Var með einhvern nýlegan A6 eða J6 síma á meðan og átti bara virkilega erfitt með að vera með slowmo síma, vissi ekki hversu háður ég var orðinn símanum.

Þannig að ...

Nei, S8 er á pari við bestu símana í dag, það er ekkert sem ég get ekki gert á símanum, batterýið endist virkilega vel og síminn er snarpur og góður.

iPhone, nei takk, börnin eru með þá og þeir eru ekkert betri..

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Lau 05. Jan 2019 18:00
af Glazier
DJOli skrifaði:Ég meina. Myndavélin í S9 var downgrade úr myndavélinni á S6, svo ég bind nú ósköp litlar vonir við að S10 verði skárri.

Er enn að nota S6-una í dag.

Eftir að hafa skoðað 2 samanburðar myndbönd á youtube get ég ekki tekið undir þetta.. það er áberandi í flestum tilvikum hvað S9 er með betri myndavél en S6

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Lau 05. Jan 2019 18:17
af Moldvarpan
Nei.

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Lau 05. Jan 2019 18:31
af Nördaklessa
Var að fjárfesta í Xiaomi Pocophone F1 fyrir mánuði síðan. Held ég komi til með að halda mér fjarri þessum "Gucci" vörum. Virðist vera ekkert annað en merkið :svekktur

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Lau 05. Jan 2019 18:44
af FuriousJoe
Nördaklessa skrifaði:Var að fjárfesta í Xiaomi Pocophone F1 fyrir mánuði síðan. Held ég komi til með að halda mér fjarri þessum "Gucci" vörum. Virðist vera ekkert annað en merkið :svekktur


Xiaomi er að gera frábæra hluti og eru þegar búnir að skaða apple mikið á asískum mörkuðum :)

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Lau 05. Jan 2019 18:50
af rapport
Nördaklessa skrifaði:Var að fjárfesta í Xiaomi Pocophone F1 fyrir mánuði síðan. Held ég komi til með að halda mér fjarri þessum "Gucci" vörum. Virðist vera ekkert annað en merkið :svekktur


Það er ekki hægt að minnast á þetta merki við mig, ég fer alltaf að hugsa um Diehard 1, heyri bara "Nakatomi" í hausnum á mér þegar ég les "Xiaomi" :crazy :crazy

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Lau 05. Jan 2019 18:50
af ChopTheDoggie
Nei takk, ég er góður með minn S8.

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Lau 05. Jan 2019 19:33
af Tiger
Verður 3,5mm headphone jack....... :P

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Lau 05. Jan 2019 20:08
af Sam
Ég ætla að býða eftir S40


S40.jpg
S40.jpg (30.4 KiB) Skoðað 4758 sinnum

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Lau 05. Jan 2019 20:41
af Tish
Enn að nota S6. Þangað til hann bilar/skemmist þá ætla ég ekki að uppfæra fyrr en það kemur einhver almennileg uppfærsla.
Væri til í að sjá meiri bætingu í laser lyklaborðum og hafa þannig innbyggt í símana. Þá væri maður nánast með fartölvu í vasanum.

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Lau 05. Jan 2019 21:23
af hagur
Skipti mínum Samsung Galaxy S7 Edge út fyrir Huawei Mate 20 Pro um daginn, sá sími er svakalegur.

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Lau 05. Jan 2019 21:56
af kjartanbj
Nördaklessa skrifaði:Var að fjárfesta í Xiaomi Pocophone F1 fyrir mánuði síðan. Held ég komi til með að halda mér fjarri þessum "Gucci" vörum. Virðist vera ekkert annað en merkið :svekktur



Það er eitt við Xiaomi síma amsk þennan F1 og fleiri síma frá þeim er að þeir hafa ekki NFC sem er eitthvað sem ég myndi ekki vilja vera án eftir að maður fór að nota síman til að borga með , alger dealbreaker að vera án NFC

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Sun 06. Jan 2019 03:54
af jardel
Þið sem eruð að versla þessa kínversku síma.
Hvar gerið þið það? Á aliexpress bjóða fáir upp á CE merkingar. Maður vill ekki taka einhvern CE séns.

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Sun 06. Jan 2019 12:18
af Viggi
hér er CE merktur oneplus https://www.aliexpress.com/item/Global- ... st=ae803_4 svo ef maðu velur global version af símum eiga þeir að vera CE merktir

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Sun 06. Jan 2019 16:46
af jardel
mér sýnist engin myndavél ná því að vera skýrari en á samsung 9plus er búinn að liggja yfir youtube myndböndum

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Sun 06. Jan 2019 17:27
af isr
Ég er með s9 síma, og mér finnst myndavélin lengi að smella af jafnvel í góðri birtu, var með Lg 5 áður, fannst mikið skemtilegri myndavél í honum.
Hefði fengið mér Lg síma aftur ef ég hefði ekki þurft dual sim síma. O:)

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Sun 06. Jan 2019 19:59
af IM2PRO4YOU
Ég ákvað að skella mér í OnePlus 6t 8gb + 256gb, hef alltaf verið mikið fyrir Samsung, var með s7 og fór úr honum í OnePlus í stað þess að bíða eftir S10, sé alls ekki eftir því að hafa fært mig yfir í OnePlus og er ekkert smá sáttur með hann.

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Sun 06. Jan 2019 20:26
af jardel
isr skrifaði:Ég er með s9 síma, og mér finnst myndavélin lengi að smella af jafnvel í góðri birtu, var með Lg 5 áður, fannst mikið skemtilegri myndavél í honum.
Hefði fengið mér Lg síma aftur ef ég hefði ekki þurft dual sim síma. O:)



Ha? Getur þú verið með 2 símkort í s9?

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Sun 06. Jan 2019 22:18
af isr
jardel skrifaði:
isr skrifaði:Ég er með s9 síma, og mér finnst myndavélin lengi að smella af jafnvel í góðri birtu, var með Lg 5 áður, fannst mikið skemtilegri myndavél í honum.
Hefði fengið mér Lg síma aftur ef ég hefði ekki þurft dual sim síma. O:)



Ha? Getur þú verið með 2 símkort í s9?


Jebb, er með tvö númer, vinnu sími og svo mitt númer.

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Sun 06. Jan 2019 22:22
af mummz
Nördaklessa skrifaði:Var að fjárfesta í Xiaomi Pocophone F1 fyrir mánuði síðan. Held ég komi til með að halda mér fjarri þessum "Gucci" vörum. Virðist vera ekkert annað en merkið :svekktur


Hvað var hann lengi á leiðinni til landsins? Tekur það margar vikur/mánuði?

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Mán 07. Jan 2019 00:32
af jardel
isr skrifaði:
jardel skrifaði:
isr skrifaði:Ég er með s9 síma, og mér finnst myndavélin lengi að smella af jafnvel í góðri birtu, var með Lg 5 áður, fannst mikið skemtilegri myndavél í honum.
Hefði fengið mér Lg síma aftur ef ég hefði ekki þurft dual sim síma. O:)



Ha? Getur þú verið með 2 símkort í s9?


Jebb, er með tvö númer, vinnu sími og svo mitt númer.



Hehe datt ekki í hug að orginal útgáfan væri með raufar fyrir 2 símkort :-)

Re: Eru menn orðnir spenntir fyrir samsung galaxy 10

Sent: Mán 07. Jan 2019 15:12
af BugsyB
er með NOTE9 hann er æðislegur