Vantar fartölvuráðleggingar


Höfundur
greenpensil
Nörd
Póstar: 116
Skráði sig: Lau 03. Apr 2010 22:52
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Vantar fartölvuráðleggingar

Pósturaf greenpensil » Þri 13. Nóv 2018 18:32

Sælir vinir

Nú er komið að því hjá mér að kaupa nýja fartölvu og hún þyrfti að geta ráðið við léttari leiki t.d. cs go. Myndi kaupa borðtölvu en þar sem ég ferðast mikið er það fremur óhentugt.
Það eru mörg ár síðan ég keypti síðast fartölvu og hef fylgst lítið með því hvaða fartölvuvörumerki eru þau flottustu/bestu í dag.

Eru Acer tölvurnar ennþá vafasamar? Hvaða tölvuvörumerkjum ætti ég að halda mér frá? Er raunhæft að kaupa fartölvu með budget uppá 150þús og búast við því að hún ráði sæmilega við cs go?

Ef þið eruð með meðmæli eða uppástungu á fartölvu til að kaupa þá væri það vel þegið þar sem ég er hálftýndur í þessari leit :baby

Kv. Hrafn




Höfundur
greenpensil
Nörd
Póstar: 116
Skráði sig: Lau 03. Apr 2010 22:52
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Vantar fartölvuráðleggingar

Pósturaf greenpensil » Mið 14. Nóv 2018 11:59

upp




Mossi__
FanBoy
Póstar: 773
Skráði sig: Þri 21. Nóv 2017 22:49
Reputation: 292
Staða: Ótengdur

Re: Vantar fartölvuráðleggingar

Pósturaf Mossi__ » Mið 14. Nóv 2018 12:40

Www.laptop.is er snilldar leitarvél.

I5 myndi ráða vel við CS (hann keyrir hvað mest á örranum).

1050M myndi duga vel, a.m.k. frekar 1050M en bara skjástýringu.

(Ég er um 4ja ára laptop, i7 4710HQ 860M.. get spilað allt sem eg vil, þ.á.m. CS:GO og Dark Souls 3 í góðu lagi.)

Asus, Dell og Lenovo eru save bets.

https://www.att.is/product/asus-fx504gd-e4148t-fartolva

Eg myndi t.d. kíkja á þessa.