Síða 1 af 1

Lélegt farsímasamband í sveit – booster?

Sent: Sun 21. Okt 2018 20:45
af elri99
Hafiði einhverja reynslu af að bæta lélegt farsímasamband í sumarbústað?

https://www.amazon.com/cell-phone-signal-booster/b?ie=UTF8&node=2407782011

Eitthvað svona til hér heima?

Re: Lélegt farsímasamband í sveit – booster?

Sent: Sun 21. Okt 2018 21:55
af Viktor
https://vodafone.is/internet/4g-net/netbunadur/

4G loftnet - besta sambandið í bústaðinn eða bátinn
Vörunr. XPOL-A0002

Með 4G loftnetinu nærð þú enn betra netsambandi fyrir 4G eða 3G beininn og tryggir þannig að þú njótir 4G þjónustunnar til fullnustu heima fyrir eða í bústaðnum. Styður eftirfarandi tíðnir: 650–960, 1710–2170 og 2500–2700 MHz.

Verð: 19.990 kr.

Re: Lélegt farsímasamband í sveit – booster?

Sent: Sun 21. Okt 2018 22:04
af elri99
Vandamálið hjá okkur er GSM símasambandið, netið er í lagi með þráðlausum sendi.

Re: Lélegt farsímasamband í sveit – booster?

Sent: Sun 21. Okt 2018 22:21
af Viktor

Re: Lélegt farsímasamband í sveit – booster?

Sent: Sun 21. Okt 2018 22:39
af elri99
Já, hina og þessa síma hjá mismunandi þjónustuaðilum.
Bústaðurinn situr lágt í landslaginu. Betra samband ofar allt í kring.

Re: Lélegt farsímasamband í sveit – booster?

Sent: Sun 21. Okt 2018 23:01
af russi
Þú ert alltaf að fara að horfa á það að fá þér loftnet sem þú setur á husíð og sem er svo tengt við innanhúscellu(sendi) til að magna sambandið.
Hafðu það í huga, Loftnet sem þessi eru best ef þau eru stefnuvirk.

Það eru nokrrir sem selja þau hérna, þar á meðal símfyrtækin sem hafa lausnir að þessu og svo Radiómiðun, Miðbæjarradió, Icecom. Ættir að tékka á þeim hvað þau bjóða uppa og verð, þetta getur verið dýrt en þarf ekki endilega að vera það, sér í lagi ef þú ert að tala um að þið liggið lágt og smá upphækkun dugi til.