Síða 1 af 3

eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 09. Okt 2018 20:24
af GuðjónR
Veit einhver hvenær þetta verður í boði á Íslandi?

eSIM is a digital SIM that lets you activate a cellular plan from a carrier without the need to use a physical SIM card.
eSIM = Embedded SIMs will help you switch providers.
eSIM needs to be supported by the network or carrier and enabled by them.

We spoke to EE to ask how it will work with eSIM on the new iPhone XS and XS Max. The network told us that if you have a physical and eSIM provisioned and are connected to two separate networks, your iPhone will display both networks on the screen at the same time.

If the handset is in standby and both the SIM and eSIM are provisioned, customers will be able to receive calls and texts on both numbers. You then choose a “default” line that you make calls on, use SMS and that iMessage and FaceTime use. The other line is just for SMS and voice.

Alternatively you can choose to Use Secondary for cellular data only - useful if you're abroad and using a local data eSIM.
You can store more than one eSIM in your iPhone, but you can use only one at a time

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 09. Okt 2018 20:33
af Baldurmar
Huawei úrin eru víst með stuðning við eSIM, spennandi tækni

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 09. Okt 2018 20:36
af Tiger
Innan árs segir Guðmundur/Ævar hjá Símanum.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 09. Okt 2018 21:32
af GuðjónR
Já mjög spennandi tækni, örugglega ekki mörg ár þangað til SIM kort verður bara að finna á þjóðminjasafninu.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 09. Okt 2018 22:23
af russi
mesta snildinn við þetta er hægt er að hafa fleiri en eitt númer á eSIM, svo auðvitað sú að þurfa ekki að ná í kort eða slíkt, færð bara QR kóða(eða annan kóða) og hann sér bara um þetta fyrir þig

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Lau 17. Ágú 2019 16:39
af donzo
er einhvað að frétta með þetta?

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Lau 17. Ágú 2019 19:12
af Viktor
Ætli það verði ekki þgar iPhone verður eSim only?

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Sun 29. Des 2019 14:57
af hfwf
hverning er staðan?

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Sun 29. Des 2019 15:00
af raggos
Væntanlegur galli við esim er að rafræn skilríki munu ekki virka á þeim enda eru þau geymd á sim kortum og nota örgjörvann í sim kortinu. Auðkenni þyrfti að koma með stuðning við þetta en það er spurning hvenær það kæmi hjá þeim.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Sun 29. Des 2019 20:13
af slapi
raggos skrifaði:Væntanlegur galli við esim er að rafræn skilríki munu ekki virka á þeim enda eru þau geymd á sim kortum og nota örgjörvann í sim kortinu. Auðkenni þyrfti að koma með stuðning við þetta en það er spurning hvenær það kæmi hjá þeim.

Enda má það bara missa sín
Ég held að stuðningurinn fyrir eSim á Íslandi sé hamlað útaf einmitt þessu
Það eru til lausnir til að auðkenna sig öðruvísi en að runna forrit á simkortinu manns sem maður hefur enga yfirsjón með því.
Galin hugmynd frá upphafi hjá Auðkenni

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Sun 29. Des 2019 23:31
af Tiger
raggos skrifaði:Væntanlegur galli við esim er að rafræn skilríki munu ekki virka á þeim enda eru þau geymd á sim kortum og nota örgjörvann í sim kortinu. Auðkenni þyrfti að koma með stuðning við þetta en það er spurning hvenær það kæmi hjá þeim.


En í flestum tilfellum (held ég) að felstir væru með E-Sim sem secondary númemr í síma, þannig að auðkennið gæti verið í aðal númmerinu á Sim kortinu, en svo auka númmer á E-Sim, semsagt þarf mín vegna ekki auðkenni.

En bæði Síminn og Vodafone hafa engin svör, fyrir 15 mánuðurm sögðu þau "innan árs", en í dag engin svör.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Mán 30. Des 2019 00:27
af Gassi
Nova segjast verða með stuðning stutt eftir áramót

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 31. Des 2019 03:20
af pegasus
Gassi skrifaði:Nova segjast verða með stuðning stutt eftir áramót

Ætli þetta séu jafn áreiðanlegar upplýsingar og þessar hér frá 9. október 2018?
Tiger skrifaði:Innan árs segir Guðmundur/Ævar hjá Símanum.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 31. Des 2019 07:10
af kjartanbj
Ekki myndi ég vilja missa auðkenni fyrir einhvern esim stuðning sem nýtist manni mjög sjaldan sem maður skiptir um síma eða númer

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 31. Des 2019 11:12
af olihar
2 factor í staðin fyrir þetta rafræna skilríkja drasl. (Og plís ekki búa til glænýtt 2 factor kerfi né nota símanúmer sem slíkt)

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 31. Des 2019 11:20
af GuðjónR
Gassi skrifaði:Nova segjast verða með stuðning stutt eftir áramót

Hvaða áramót?

Ég er sammála þessu auðkennisrugli.
En Auðkenni þarf á spenanum sínum að halda og hagsmunaklíkan sér um sína.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 31. Des 2019 12:20
af hagur
Sé ekki alveg hvaða vandamál eSim á að leysa, eða pointið með þessu yfir höfuð.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 31. Des 2019 12:30
af Revenant
olihar skrifaði:2 factor í staðin fyrir þetta rafræna skilríkja drasl. (Og plís ekki búa til glænýtt 2 factor kerfi né nota símanúmer sem slíkt)


Rafræn skilríki er tveggja þátta auðkenning sem notar ekki símanúmer per-se (á ensku heitir þetta client certificate).
Hinsvegar er símkerfið (símanúmer/sms) notað sem burðarlagið til að biðja um og svara auðkenningunni.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 31. Des 2019 14:40
af phillipseamore
hagur skrifaði:Sé ekki alveg hvaða vandamál eSim á að leysa, eða pointið með þessu yfir höfuð.


ESIM is getting very common in accessories like the Apple Watch. It's also an important design choice for waterproof devices.

It enables you to have multiple SIMs on your device and change between them in seconds, most devices allow you to have a regular SIM and an eSIM which can either be either used in standby or active. You could choose to use a regular SIM for your phone service and the eSIM just for data.

I was working in Denmark for the summer. Got a a regular SIM from "3" for the phone, went online and got sent QR codes to enable eSIM for data on my ipad and Apple watch. Both enabled and ready in a minute or two and using the same plan as my phone.

Would expect this to be great for companies, they can easily switch all their devices between providers without having every employee change physical SIM cards (and can probably do it all remotely without the users noticing if the devices are managed).

I know that in Norway they are working on supporting their personal certificate scheme on eSIM.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 04. Feb 2020 15:26
af wicket
Síminn virðist vera komin með eSIM stuðning, en bara fyrir síma í fyrstu atrennu. Ekki snjallúr enn að minnsta kosti.

https://twitter.com/siminn/status/1224690883725012994

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 04. Feb 2020 15:35
af Tiger
Snilld. Þá getur Vodafone ekki verið langt á eftir.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 04. Feb 2020 16:08
af olihar
Ekki mikið gagn í þessu ef Rafræn skilríki ætla að vera áfram eins og þau eru...

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 04. Feb 2020 21:40
af Tiger
olihar skrifaði:Ekki mikið gagn í þessu ef Rafræn skilríki ætla að vera áfram eins og þau eru...



Hellings gagn af þessu ef þú ert með persónulegt númmer og svo vinnunúmmer, þá hefuru persónulega númmerið venjulegt SIM og rafrænu skilríkin þar, og vinnu númmerið á eSIM og að sjálfsögðu tilgagnslaust að hafa rafræn skilríki á þeim.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Mán 03. Maí 2021 20:27
af zetor
Hver er staðan á eSim í dag? Er þetta komið hjá öllum símafyrirtækjum?

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Mán 03. Maí 2021 20:57
af ColdIce
Er allavega enn að bíða eftir að Síminn girði upp um sig og bjóði upp á þetta…
Held að þetta sé bara hjá nova