Síða 1 af 1

Skipta um rafhlöðu í Google Pixel síma

Sent: Mið 26. Sep 2018 12:37
af B0b4F3tt
Sælir Vaktarar

Er eitthvað fyrirtæki hérna á landi sem tekur að sér að skipta um rafhlöðu í Google Pixel síma?

Kv. Elvar

Re: Skipta um rafhlöðu í Google Pixel síma

Sent: Mið 26. Sep 2018 16:13
af gnarr
Þessir símar eru framleiddir af HTC, spurning hvort að HTC umboð geti hjálpað þér?

Re: Skipta um rafhlöðu í Google Pixel síma

Sent: Mið 26. Sep 2018 17:58
af audiophile
Getur prófað að heyra í Viss.

Re: Skipta um rafhlöðu í Google Pixel síma

Sent: Mið 26. Sep 2018 22:04
af B0b4F3tt
audiophile skrifaði:Getur prófað að heyra í Viss.


Já ég var búinn að heyra í þeim og þeir eru ekki að gera þetta.

Re: Skipta um rafhlöðu í Google Pixel síma

Sent: Fim 27. Sep 2018 00:46
af Baldurmar
Var ekki Siminn að selja svona síma ?

Re: Skipta um rafhlöðu í Google Pixel síma

Sent: Fim 27. Sep 2018 13:41
af ecoblaster
samkvæmt Elko á Viss að sjá um þetta: https://elko.is/thjonusta/vidgerdaradil ... _vidgerdir
Síminn hins vegar sendir símann út til viðgerðar aðila erlendis með tilheyrandi kostnaði og biðtíma :/

ég er í sömu sporum og þú
er með Google pixel XL síma sem er bara með 50% í battery health: https://i.imgur.com/GTbFbu5.png og maður er virkilega að velta fyrir sér hvort það er þess virði að skipta um battery eða fara í Google pixel 3

Re: Skipta um rafhlöðu í Google Pixel síma

Sent: Fim 27. Sep 2018 14:46
af B0b4F3tt
ecoblaster skrifaði:samkvæmt Elko á Viss að sjá um þetta: https://elko.is/thjonusta/vidgerdaradil ... _vidgerdir
Síminn hins vegar sendir símann út til viðgerðar aðila erlendis með tilheyrandi kostnaði og biðtíma :/

ég er í sömu sporum og þú
er með Google pixel XL síma sem er bara með 50% í battery health: https://i.imgur.com/GTbFbu5.png og maður er virkilega að velta fyrir sér hvort það er þess virði að skipta um battery eða fara í Google pixel 3


Já ég fékk bara neitun frá Viss þegar ég spurði þá út í rafhlöðuskipti á símanum. Fékk svar frá Símanum áðan og þar benda þeir mér á að koma með símann til þeirra í Ármúlann. Það var ekki nefnd nein tala í kostnaði né hversu langan tíma þetta tæki. Ef þetta er ekki eitthvað ógeðslega dýrt þá læt ég Símann græja þetta. Biðtíminn er minna vandamál þar sem ég verslaði mér Galaxy S9+ í sumar og því er minnsta stelpan með Pixel símann núna og hún getur alveg beðið :sleezyjoe

Re: Skipta um rafhlöðu í Google Pixel síma

Sent: Fim 27. Sep 2018 14:51
af Viggi
Er ekki bara málið að skipta um battery sjálfur? Eflaust hægt að fá battery replacement kit.

https://youtu.be/d4IYVueLH28