Ég hallast aðeins að Samsung símanum, hann er örlítið stærri og með betra batterí en ég er samt svoldið óákveðinn, hef átt bæði Samsung og LG og kann vel við bæði merkin. Ætla að skoða báða símana í verslun á morgun, en hvað segið þið?

Viggi skrifaði:Myndi taka galaxy allan daginn. Lg hafa verið þektir fyrir að vera með frekar slæmt software support
ÓmarSmith skrifaði:Hef bæði notað LG GX línuna og Galaxy línuna.
Mjög svipaðir símar í nær öllu, mesti munurinn er líklegast hvernig þeir nota Android.
Þá finnst mér Samsung áberandi verri þar sem síminn er TROÐINN af rusli frá Samsung sem ég amk hef 0 áhuga á að nota. Og maður virðist engan veginn geta losnað almennilega við.
Held að mér hafi fundist LGG2 og LGG4 vera þæginlegustu símarnir sem ég hef notað, ásamt iphone 4 þegar hann var nýr.
Mun amk ekki fá mér Galaxy S9 eða Samsung aftur í bráð held ég.

ColdIce skrifaði:Fengi mér örugglega G7. LG símar hafa reynst mér mun betur en Samsung.
DoofuZ skrifaði:Ég ákvað annars fyrr í dag að festa kaup á Samsung símanum og ætlaði mér að versla við Símann þar sem hann er ódýrastur hjá þeim (124.990 kr) og það stendur á síðunni þeirra að ef maður kaupir símann á raðgreiðslum þá er enginn aukakostnaður svo hann kostar það sama og staðgreitt, sem hentar mér vel þar sem ég er ekki alveg svona ríkur eins og er.
En svo þegar ég mætti í verslunina þá komst ég að því að ósýnilega smáaletrið er að maður fær þennan díl á svokölluðum léttgreiðslum bara ef maður er búinn að vera viðskiptamaður Símans síðustu 6 mánuði, síðan getur maður ekki borgað raðgreiðslur hjá þeim með Visa, bara Netgíró, og þá er síminn ekki lengur ódýrastur hjá þeim
Þannig að núna stendur valið milli þess að kaupa hann annað hvort hjá Elko eða Nova. Ef ég kaupi hann hjá Elko á raðgreiðslum þá er það um 11 þúsund á mánuði í 12 mánuði sem endar í 133.946 kr, en 11 þúsund á mánuði er svoldið hátt fyrir mig svo ég hallast meira að Nova þar sem ég þarf bara að borga aðeins yfir 7 þúsund á mánuði í 18 mánuði en þá endar síminn í 140.670 kr. Svo fylgir þar að vísu 50 gb inneign með, en miðað við endalegt verð hjá Elko þá væri ég í raun að borga um 7 þúsund eða svo fyrir þá inneign og sú inneign kostar eins og er um 5 þúsund ein og sér, svo ég er með smá valkvíða
Það er greinilega ekki nóg að vera búinn að velja rétta símann, það þarf líka að velja rétta söluaðilann
B0b4F3tt skrifaði:Það er einnig hægt að fá þessa síma á 110þúsund hjá Heimkaup
https://www.heimkaup.is/samsung-galaxy-s9-plus
Ég fékk minn á tilboði þar í sumar á 104þúsund.
isr skrifaði:Hvernig eru lg v30 símarnir, er það ekki flaggskipið frá lg.
dori skrifaði:isr skrifaði:Hvernig eru lg v30 símarnir, er það ekki flaggskipið frá lg.
V30 og G7 eru "flaggskipin" í dag. V30 er samt orðinn ársgamall. Þú getur ímyndað þér að VXX línan er svipuð og Note símarnir frá Samsung og GX línan er svipuð og Galaxy.