Síða 2 af 2

Re: Okur hjá Tölvutek

Sent: Mið 01. Ágú 2018 16:13
af urban
g0tlife skrifaði:
urban skrifaði:
g0tlife skrifaði:
urban skrifaði:
g0tlife skrifaði:Afhverju er ekki gerður vaktara gámur frá USA eða eitthvað ? Einn gámur tekinn allir sem vilja vera með troða í, skipt niður eftir þyngd/plássi ? Fá allir það sem þeir vilja gegn ódýrari sendingu


Ertu að gera þér grein fyrir því hvað gámur er samt alveg fáránlegt mikið þegar að kemur að tölvuvörum ?

Ef að menn eru ekki að fara að fylla hann af tölvustólum og álíka, þá eru vaktarar ekkert að fara að panta heilan gám af vörum.

Megnið af því sem að fólki vantar tekur bara það lítið pláss.




6 feta gámur ? Með sjónvörpum og hvað annað sem fólk vill fá væri auðvelt hægt að troða í 8 feta gám.


Gámur í flutningum er 20 og 40 feta.
Semsagt 33 og 67 rúmmetra.

Alveg óhemju mikið pláss.

Hinar stærðirnar eru ekki notaðar almennt, þá yfirleitt flutt á fletum og álíka, sem að gerir flutning bara dýrari



Bara ekki rétt hjá þér, hef tekið þátt í svona og keypti eitt stykki sjónvarp í póllandi til að henda í. Ég sparaði helling en þegar fólk sér alltaf vandamál í hlutum þá gerist mjög lítið.


Nú jæja, þá veit ég bara ekkert um það hvernig gámar eru fyrst og fremst notaðir.
Vann nú samt sem áður við að afgreiða gámaskip, hélt að það væri ágætis undirbúningur í það að vita hvernig gámar eru aðalega notaðir við flutninga.

Lyftarinn sem að ég vann á gat meirað segja ekki tekið minni en 20" gáma og spreddarnir um borð á skipunum líka, ekki nema að vera ýmist með það á fleti (Sem að gerðist jú alveg nokkrum sinnum) eða í keðjum og álíka.

En hey, ég sé víst ekkert nema vandamál, þar sem að ég þekki þetta víst ekki.

Re: Okur hjá Tölvutek

Sent: Mið 01. Ágú 2018 21:22
af jojoharalds
Squinchy skrifaði:Ekkert að þessu, kjánalegt að bera saman netverslun út í heimi við verslun heima sem hefur hlutinn á lager og sér um ábyrgð tækis til tveggja ára


það er líka
ábyrgð ef þú kaupir á netinu.

Re: Okur hjá Tölvutek

Sent: Mið 05. Sep 2018 11:03
af netkaffi
Það er ekki eins og ábyrgð hérna á landi sé einhver gulldíll, maður hefur alveg lent í að tölvuverkstæðis- eða búðarmenn hafa karpað eitthvað á móti því yfir að viðgerð sé í ábyrgð þegar hún er það klárlega; en maður hefur yfirleitt fengið það í gegn á endanum (en ekki gaman að þurfa rökræða um eitthvað sem á að vera inni í þessari heilögu gullnu íslensku ofurábyrgð sem á að vera svona mikils virði).