Nýju Macbook lyklaborðin eyðileggjast á undraverðum tíma

Skjámynd

Höfundur
Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Viktor » Fim 21. Des 2017 19:06

tl;dr nýju Apple lyklaborðin þola ekki rykkorn, gölluð hönnun eða framleiðsla

Vildi vara ykkur við lyklaborðum á nýju Apple tölvunum. Ég lét skipta um lyklaborðið mitt, sem var í ábyrgð, þar sem margir takkar voru orðnir mjög leiðinlegir - þar með talið bilstöng(sem var ÓÞOLANDI), eftir minna en 12 mánaða notkun.

Ég fór til Viss sem voru ótrúlega fljót að skipta út "frontinum" eins og ég held að það heiti, þá er skipt út lyklaborði, touchpad, rafhlöðu og e-ð fleira. Góð þjónusta þar á bæ.

Núna tveimur eða þremur vikum síðar er einn takkinn á nýja lyklaborðinu farinn að hegða sér leiðinlega. Tók eftir því að það er allt brjálað á netinu útaf þessum nýju lyklaborðum, og Apple er búið að setja upp sérstaka heimasíðu sem útskýrir hvernig maður þrífur þessi lyklaborð.

Sjá: https://support.apple.com/en-is/HT205662 :crying

Hefur einhver lent í einhverju svipuðu? Apple eru augljóslega að skipta út gölluðum lyklaborðum fyrir ný gölluð lyklaborð. Greinilega hönnunargalli eða framleiðslugalli í gangi.

Á maður bara að halda áfram að láta þau skipta þessu út út í það óendanlega?

Langar helst að skipta því út þangað til þeir gefa út svipað módel með endurhönnuðu lyklaborði, og fá þá nýja tölvu \:D/

Þetta er aðallega pirrandi því ég elska allt við þessa tölvu, þangað til þetta gerist. Ótrúlega falleg hönnun, gott touchpad, touchbar er sniðugt, hátalararnir öflugir, stýrikerfið æði fyrir hljóðvinnslu og forritun og svona mætti lengi telja. Lyklaborðið er nefnilega mjög þægilegt - þangað til það klikkar :dissed

edit: myndband

THE NEW MACBOOK KEYBOARD IS RUINING MY LIFE
grein: https://theoutline.com/post/2402/the-ne ... ng-my-life
Síðast breytt af Viktor á Fös 22. Des 2017 00:45, breytt samtals 2 sinnum.

I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things

Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

DJOli
Vaktari
Póstar: 2103
Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
Reputation: 175
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: Nýju Macbook lyklaborðin eyðileggjast á undraverðum tíma

Pósturaf DJOli » Fim 21. Des 2017 20:15

Ég myndi persónulega skila tölvunni vegna framleiðslugalla og kaupa eitthvað annað í staðinn. Ef þeir neita að samþykkja það, og að greiða þér fulla upphæð til baka myndi ég tala við neytendasamtökin.

Ég myndi telja þetta svolítið óheppilega tímasetningu, þar sem ég var bara að lesa áðan að Apple hægi á símunum sínum viljandi, til að annaðhvort, eða bæði, láta þá endast lengur, eða til að hvetja kaupendur til að kaupa sér næsta símann.

i7-11700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|

Skjámynd

Höfundur
Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6773
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 934
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýju Macbook lyklaborðin eyðileggjast á undraverðum tíma

Pósturaf Viktor » Fim 21. Des 2017 20:37

DJOli skrifaði:Ég myndi persónulega skila tölvunni vegna framleiðslugalla og kaupa eitthvað annað í staðinn. Ef þeir neita að samþykkja það, og að greiða þér fulla upphæð til baka myndi ég tala við neytendasamtökin.

Ég myndi telja þetta svolítið óheppilega tímasetningu, þar sem ég var bara að lesa áðan að Apple hægi á símunum sínum viljandi, til að annaðhvort, eða bæði, láta þá endast lengur, eða til að hvetja kaupendur til að kaupa sér næsta símann.

Vandamálið er að Windows og hljóðvinnsla fer ekki saman(Microsoft kann ekki að búa til stýrikerfi sem fokkar ekki öllu hljóðkortabrasi upp) - og touchpadið á Macbook er svo milljón sinnum betra en á öllum PC laptoppum að það ég myndi frekar láta mig hafa pirrandi lyklaborð - heldur en drasl touchpad. #-o

I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things

Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýju Macbook lyklaborðin eyðileggjast á undraverðum tíma

Pósturaf GuðjónR » Fim 21. Des 2017 20:49

Apple vilja bara að þú kaupir nýja tölvu á 12 mánaða fresti, þar sem iOS tæki endast of lengi þá skemma þeir þau bara með "uppfærslum".

http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/201 ... one_simum/
http://www.visir.is/g/2017171229698/app ... hone-simum

Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1252
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 129
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Nýju Macbook lyklaborðin eyðileggjast á undraverðum tíma

Pósturaf Minuz1 » Fim 21. Des 2017 21:19

Hef reyndar orðið vitni af því nýlega að þetta standist alveg sem þeir segja sér til varnar, Samsung S4 með upprunalegri rafhlöðu var farinn að slökkva á sér ef það kom smá bump meðan hann var í virkni, og ef það var eitthvað mikið að gerast í símanum.

Ætli þetta sé ekki svipað og þegar bílar hætta að getað kveikt á sér ef rafgeymirinn er orðinn slappur.

Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýju Macbook lyklaborðin eyðileggjast á undraverðum tíma

Pósturaf GuðjónR » Fim 21. Des 2017 21:48

Minuz1 skrifaði:Hef reyndar orðið vitni af því nýlega að þetta standist alveg sem þeir segja sér til varnar, Samsung S4 með upprunalegri rafhlöðu var farinn að slökkva á sér ef það kom smá bump meðan hann var í virkni, og ef það var eitthvað mikið að gerast í símanum.

Ætli þetta sé ekki svipað og þegar bílar hætta að getað kveikt á sér ef rafgeymirinn er orðinn slappur.

Alls ekki, er með iPhone 4s og hann er svo slow að það er ekki fyndið, tekur rúma mínútu að loda upp Facebook eða Snapchat app, fékk nýtt batterí og hann er alveg jafn slow.
Kunningi minn sá samskonar síma þar sem búið var að downgreida iOS og sá sími er jafn "snappy" og iPhone 8.
Þetta kallast "planned obsolete".

Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1252
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 129
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Nýju Macbook lyklaborðin eyðileggjast á undraverðum tíma

Pósturaf Minuz1 » Fös 22. Des 2017 00:14

GuðjónR skrifaði:
Minuz1 skrifaði:Hef reyndar orðið vitni af því nýlega að þetta standist alveg sem þeir segja sér til varnar, Samsung S4 með upprunalegri rafhlöðu var farinn að slökkva á sér ef það kom smá bump meðan hann var í virkni, og ef það var eitthvað mikið að gerast í símanum.

Ætli þetta sé ekki svipað og þegar bílar hætta að getað kveikt á sér ef rafgeymirinn er orðinn slappur.

Alls ekki, er með iPhone 4s og hann er svo slow að það er ekki fyndið, tekur rúma mínútu að loda upp Facebook eða Snapchat app, fékk nýtt batterí og hann er alveg jafn slow.
Kunningi minn sá samskonar síma þar sem búið var að downgreida iOS og sá sími er jafn "snappy" og iPhone 8.
Þetta kallast "planned obsolete".

Já, þeir reikna ekki með því að þú kaupir þér nýtt batterí, Samsung síminn minn dó útaf því að ég hefði átt að vera búinn að skipta um batterí á þeim tíma.
Þeir halda bara að allir skipti um síma (eða nota það sem réttlætingu)

Ætli það sé erfitt að setja "smart kerfi" á þetta, þannig að síminn viti hversu slæmt batteríið er?

Eða að leyfa notendum að stjórna þessu sjálfir (sé fyrir mér að það verði gert í framhaldi af þessu)

Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Nýju Macbook lyklaborðin eyðileggjast á undraverðum tíma

Pósturaf dori » Fös 22. Des 2017 10:07

GuðjónR skrifaði:
Minuz1 skrifaði:Hef reyndar orðið vitni af því nýlega að þetta standist alveg sem þeir segja sér til varnar, Samsung S4 með upprunalegri rafhlöðu var farinn að slökkva á sér ef það kom smá bump meðan hann var í virkni, og ef það var eitthvað mikið að gerast í símanum.

Ætli þetta sé ekki svipað og þegar bílar hætta að getað kveikt á sér ef rafgeymirinn er orðinn slappur.

Alls ekki, er með iPhone 4s og hann er svo slow að það er ekki fyndið, tekur rúma mínútu að loda upp Facebook eða Snapchat app, fékk nýtt batterí og hann er alveg jafn slow.
Kunningi minn sá samskonar síma þar sem búið var að downgreida iOS og sá sími er jafn "snappy" og iPhone 8.
Þetta kallast "planned obsolete".

Gerðirðu "calibration" á batteríið?

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nýju Macbook lyklaborðin eyðileggjast á undraverðum tíma

Pósturaf GuðjónR » Fös 22. Des 2017 10:46

dori skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Minuz1 skrifaði:Hef reyndar orðið vitni af því nýlega að þetta standist alveg sem þeir segja sér til varnar, Samsung S4 með upprunalegri rafhlöðu var farinn að slökkva á sér ef það kom smá bump meðan hann var í virkni, og ef það var eitthvað mikið að gerast í símanum.

Ætli þetta sé ekki svipað og þegar bílar hætta að getað kveikt á sér ef rafgeymirinn er orðinn slappur.

Alls ekki, er með iPhone 4s og hann er svo slow að það er ekki fyndið, tekur rúma mínútu að loda upp Facebook eða Snapchat app, fékk nýtt batterí og hann er alveg jafn slow.
Kunningi minn sá samskonar síma þar sem búið var að downgreida iOS og sá sími er jafn "snappy" og iPhone 8.
Þetta kallast "planned obsolete".

Gerðirðu "calibration" á batteríið?

Nei reyndar ekki....var að googla það eftir að þú kommentaðir þetta.
http://www.appledystopia.com/how-to/cal ... e-battery/

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Nýju Macbook lyklaborðin eyðileggjast á undraverðum tíma

Pósturaf dori » Fös 22. Des 2017 12:28

GuðjónR skrifaði:
dori skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Minuz1 skrifaði:Hef reyndar orðið vitni af því nýlega að þetta standist alveg sem þeir segja sér til varnar, Samsung S4 með upprunalegri rafhlöðu var farinn að slökkva á sér ef það kom smá bump meðan hann var í virkni, og ef það var eitthvað mikið að gerast í símanum.

Ætli þetta sé ekki svipað og þegar bílar hætta að getað kveikt á sér ef rafgeymirinn er orðinn slappur.

Alls ekki, er með iPhone 4s og hann er svo slow að það er ekki fyndið, tekur rúma mínútu að loda upp Facebook eða Snapchat app, fékk nýtt batterí og hann er alveg jafn slow.
Kunningi minn sá samskonar síma þar sem búið var að downgreida iOS og sá sími er jafn "snappy" og iPhone 8.
Þetta kallast "planned obsolete".

Gerðirðu "calibration" á batteríið?

Nei reyndar ekki....var að googla það eftir að þú kommentaðir þetta.
http://www.appledystopia.com/how-to/cal ... e-battery/

Bara eitthvað til að skoða. Ég gerði þetta eftir að ég skipti sjálfur um batterí hjá mér. Hef ekki hugmynd um hvort það gerði eitthvað gagn samt.