Síða 1 af 1

Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 00:43
af appel
Ég þarf á fartölvu að halda fyrir vinnuna.

High-end.
Verð (látum bara á reyna flottasta fyrst).

Mun lítið nota fartölvuna sem fartölvu, heldur plugga við skjái og lyklaborð. Persónulega hata ég fartölvur að þurfa að burðast með þetta heim og aftur í vinnu daginn eftir, en maður verður víst að fá sér fartölvu til að geta unnið heima líka.

Þannig að krafan er að þetta sé nett vél. Ekki einhverja 10kg 17" leikjavél :)

Ekki makka, ekki tilbúinn að fara í það. Windows 10.

Maður hefur ekki hundsvit á fartölvu spekkum. Er þetta jafn gott og PC vélar sem maður getur púslað saman fyrir miklu lægri upphæð? Öll mín reynsla af fartölvum er sú að þetta eru slappar vélar sem breytast fljótt í saumavélar og ekkert geta, há bilanatíðni á þessu líka.

Svo þarf maður lausn fyrir:
Multi-screen (tengja við 2 stóra skjái og sjónvarp)
3 ethernet port
Nóg af usb

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 03:04
af Viktor
Þrjú ethernet port á fartölvu? :shock:

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 07:13
af Njall_L
Ég var í svipuðum pælingum fyrr á árinu og endaði á því að kaupa þessa hérna
Var reyndar ekki með jafn háar kröfur varðandi tengimöguleika en langaði í tölvu sem var minni en 14", létt og meðfærileg, með i7, 16GB RAM og allavega 256GB SSD. Skoðaði nokkrar, t.d. Thinkpad og HP Elitebook, en fannst Dellinn vera flottastur hvað varðar build quality og fídusa.

Svo er hægt að fá Thunderbolt USBC dokku sem græjar mínar tengiþarfir og hleður tölvuna á meðan. Mér fannst þetta skemmtilegri lausn heldur en smelludokkurnar sem Thinkpad nota.

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 07:24
af mercury

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 09:42
af appel
Sallarólegur skrifaði:Þrjú ethernet port á fartölvu? :shock:

Nah, nota usb-ethernet dongla bara.

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 09:52
af gotit23

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 09:57
af steiniofur
Ég var í sama bát og þú, anti fartölvu maður. Er það faktískt séð ennþá.

Þú segir ekki makka - win 10: Ég er með 15 tommu mac book pro frá vinnunni og win 10 uppsett á henni. Mér finnst flestar aðrar ferðatölvur sem ég þarf að ditta að í vinnunni vera drasl eftir að hafa verið með þessa - myndi ekki kaupa þetta ef veskið mitt þyrfti að koma við sögu en ef þetta er borgað af vinnunni myndi ég skoða þann möguleika. Reyndar eru þessar nýju orðnar heimskar að því leitinu að það er ekki hlaupið að því að uppfæra minni og diska, ég er með síðustu vélina frá þeim sem er þannig.

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 09:58
af Hauxon
Ég var að fá nýja vinnutölvu og valdi þessa hér og lét stækka minnið í 32Gb:

https://vefverslun.advania.is/vefverslun/vara/Dell-XPS-15-9560-Ultrabook-i7-Kaby-Lake-UHD/

Tölvan er mjög öflug fyrir fartölvu og skjárinnn er frábær (4k snertiskjár) sem er mikilvægt fyrir mig þar sem ég er töluvert í myndvinnslu. Vélin er fislétt og þunn og því lítil mál að fara með hana á milli. 15 tommu skjárinn nær líka alveg út að brún og er því ekki mikið minni en skjárinn á 17" fartölvunni sem ég var með áður. Varðandi tengimöguleika þá eru þessar nýju þunnu tölvur ekki með mörg innbyggð port og það er eiginlega ætlast til þess að þú sért með USB-C tengistykki eða tengikví (betra/dýrara) til þess að geta tengt fleiri tæki. Þú þarft svona stykki til að geta notað aðra skjái því að innbyggða HDMI tengið styður ekki hærri upplausnir (sem er fáránlegt). En amk. þú þarft að gera ráð fyrir að tengikví sé keypt handa þér og þá helst tvær, ein í vinnunni og ein heima. ...en vélin er hrikalega góð. (og flott) :)

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 10:29
af worghal
https://www.netverslun.is/Tolvur-og-skj ... 107.action
og
https://www.netverslun.is/Tolvur-og-skj ... 137.action

dokkan er með 2xdp og eitt hdmi, 5x usb 3.1 (usb ethernet dongles galore) auk þess að vera með ethernet tengi.

held að þetta sé solid lausn

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 12:34
af Cascade
Ég valdi thinkpad t460s í fyrra fyrir mig
er með i7 og 512gb ssd og 12gb ram minnir mig

Er alltaf í dokku í vinnunni, mjög þægilegt

Einstaklega þægilegt að fara með hana, létt og nett. En ég vinn svaka lítið á hana þegar ég er ekki við skrifborðið, en það var ástæðan fyrir að ég tók 14" vél en ekki 15"+. En er þá fín í basic hluti eins og tölvupóst og þess háttar og æðisleg í sófanum heima til að skoða netið

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 12:44
af depill
https://www.netverslun.is/Tolvur-og-skj ... 314.action

Fáðu þá til henda 32GB vinnsluminni í vélina. Ég er með þessa, i7 7600 örgjrvi, góður diskur og í þessi skipti sem ég er ekki með neina aðstöðu nema að nota hana beint að þá er þetta fínt.

Er "Mobile workstation" frekar en fartölva.

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 13:56
af B0b4F3tt
https://www.netverslun.is/Tolvur-og-skj ... 060.action

Þetta er alvöru mulningsvél, er sjálfur með P50. Lét setja auka 16gíg í minni í hana. Hlæ núna að mínum vinnufélugum sem eru fastir í 16 gíg á sínum möccum :)

Jú þetta er þyngri og stærri vél heldur margar aðrar en þar sem þetta situr á borði 99,9% af tímanum þá er það ekkert að angra mig.

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 16:34
af Jón Ragnar
Afhverju 3 eth port?

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 17:01
af appel
Jón Ragnar skrifaði:Afhverju 3 eth port?

Ég er að tengjast inn á mismunandi aðskilin net. Svo er ég að vinna með tæki sem þurfa sérstakt interface gagnvart tölvunni.

Skoðaði Lenovo. Fannst bæði vélarnar og dokkurnar frekar ljótar og clunky.

Fannst Dell flottari, ódýrari, og dokkarnir flottari. Þessi virðist fín í fljótu bragði, aðeins stærri en ég vildi, en ekki of þykk eða þung:
https://vefverslun.advania.is/vefverslu ... -Lake-UHD/

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 18:17
af axyne
Ég er búinn að eiga þessa í 4 mán https://www.netverslun.is/Tolvur-og-skjair/Fartolvur/Lenovo---TP-T570-i7-7600-16-512n-15%2C6-4K-nVi-W10P/2_13107.action

Er nær alltaf með hana í dokku og fíla að geta verið með 2x auka skjái, líka þegar ég er ekki með hana í dokku.
Finnst hún líka frábær sem fartölva, létt og þæginleg.

4k upplausn er samt algjört overkill, er nær alltaf með scaling 200 til 250%, annars er allt svo skrambi smátt. :nerd_been_up_allnight

Er líka með 4G módem innbyggt, finnst það algjör snilld.

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 18:30
af Viktor
appel skrifaði:Skoðaði Lenovo. Fannst bæði vélarnar og dokkurnar frekar ljótar og clunky.

Amen [-o< Eins og talað út úr mínu hjarta.

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 19:52
af gissur1
Þú hefðir semsagt ekki áhuga á T450s vélinni minni og dokku?

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 21:21
af agust1337
Á ekki bara að skella sér í eina svona?

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 21:35
af GullMoli
Sammála Steiniofur, Macbook Pro með Win uppsettu í virtual eða Dualboot. Þessar tölvur eru svo vel gerðar og ótrúlega flottar!

Dúndur rafhlaða, virkilega flottur skjár, gott lyklaborð, botninn á tölvunni fylgir ekki með þegar þú opnar hana, kæling sem kafnar ekki þó vélin sé uppí rúmi.. :D

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fim 05. Okt 2017 23:25
af Hjaltiatla
depill skrifaði:https://www.netverslun.is/Tolvur-og-skjair/Fartolvur/Lenovo---TP-P51s-i7-7600-16-512n-15FHD-M520-W10P/2_13314.action

Fáðu þá til henda 32GB vinnsluminni í vélina. Ég er með þessa, i7 7600 örgjrvi, góður diskur og í þessi skipti sem ég er ekki með neina aðstöðu nema að nota hana beint að þá er þetta fínt.

Er "Mobile workstation" frekar en fartölva.

Flott vél, ekki verra að geta haft 4g tengimöguleika. Ég reddaði einum Autocad teiknara þessa vél í vinnuni og hann er mjög sáttur.

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fös 06. Okt 2017 00:50
af Viktor
Hjaltiatla skrifaði:

:shock:

Ekkert smá verð fyrir vél með 1920x1080 upplausn, mediocre skjákorti og 16GB minni.

GullMoli skrifaði:Sammála Steiniofur, Macbook Pro með Win uppsettu í virtual eða Dualboot. Þessar tölvur eru svo vel gerðar og ótrúlega flottar!

Dúndur rafhlaða, virkilega flottur skjár, gott lyklaborð, botninn á tölvunni fylgir ekki með þegar þú opnar hana, kæling sem kafnar ekki þó vélin sé uppí rúmi.. :D

Svo er snertiflöturinn hreint æði. Ótrúlegt hvað Apple er mörgum ljósárum á undan í því.
Ég keypti mér magic mouse með minni, en snertiflöturinn er svo góður að ég hef aldrei þurft að nota hana.

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fös 06. Okt 2017 08:32
af Hjaltiatla
Sallarólegur skrifaði:
Hjaltiatla skrifaði:
depill skrifaði:
Ekkert smá verð fyrir vél með 1920x1080 upplausn, mediocre skjákorti og 16GB minni.

Svo er snertiflöturinn hreint æði. Ótrúlegt hvað Apple er mörgum ljósárum á undan í því.
Ég keypti mér magic mouse með minni, en snertiflöturinn er svo góður að ég hef aldrei þurft að nota hana.

nvidia quadro er reyndar hugsað fyrir Autocad vinnslu , btw þar sem þú komst inná snertiflötinn hjá Apple þá er touchpadinn á Lenovo vélinni sem Depill vísaði í algjör snilld. Verðið hjá Nýherja er reyndar mjög hátt (án afsláttar).

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Fös 06. Okt 2017 10:52
af Jón Ragnar
appel skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:Afhverju 3 eth port?

Ég er að tengjast inn á mismunandi aðskilin net. Svo er ég að vinna með tæki sem þurfa sérstakt interface gagnvart tölvunni.

Skoðaði Lenovo. Fannst bæði vélarnar og dokkurnar frekar ljótar og clunky.

Fannst Dell flottari, ódýrari, og dokkarnir flottari. Þessi virðist fín í fljótu bragði, aðeins stærri en ég vildi, en ekki of þykk eða þung:
https://vefverslun.advania.is/vefverslu ... -Lake-UHD/

Fair enough

Ég nota bara VPN í það rugl :happy

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Þri 10. Okt 2017 10:41
af lifeformes
gissur1 skrifaði:Þú hefðir semsagt ekki áhuga á T450s vélinni minni og dokku?

Gissur1 ertu eithvað að spá í að selja vèlina?

Re: Pro fartölva fyrir vinnu?

Sent: Þri 10. Okt 2017 14:56
af asgeirbjarnason
appel skrifaði:
Jón Ragnar skrifaði:Afhverju 3 eth port?

Ég er að tengjast inn á mismunandi aðskilin net. Svo er ég að vinna með tæki sem þurfa sérstakt interface gagnvart tölvunni.

Þurfa þetta að vera fýsísk port? Gengur ekki að vera með VLAN? (sem sagt fyrir þessi mismunandi aðskildu net, líklega erfitt að VLANa það að þurfa sérstakt interface gagnvart tæki) Annars held ég að USB-Ethernet breytur séu eina lausnin. Nánast ómögulegt að finna multi-nic fartölvur, nema kannski þessi http://www.rugged-portable.com/multi-la ... op-server/