Síða 1 af 1

Íslenskt lyklaborð á mac keypta í UK?

Sent: Þri 06. Jún 2017 13:44
af capteinninn
Er að spá að kaupa Macbook í UK á næstunni en er að velta fyrir mér hvernig ég tækla að fá íslenska stafi á lyklaborðið.

Get keypt með allskonar lyklaborðsuppsetningu en ekki Íslenskt svo ég velti fyrir mér hvort ég þurfi þá að kaupa límmiða til að líma á lyklaborðið.

Hvernig hafið þið gengið frá þessu ?

Re: Íslenskt lyklaborð á mac keypta í UK?

Sent: Þri 06. Jún 2017 14:26
af Tiger
Já verður að kaupa límmiða, og velja Spanish layout sem er eins og það Íslenska (nema ekki með íslenskum stöfum per se).

Re: Íslenskt lyklaborð á mac keypta í UK?

Sent: Þri 06. Jún 2017 15:29
af dori
UK layout er líka eins og íslenska (ISO) annað en USA layout sem er ANSI.

Ef þú virkilega vilt hafa íslensk tákn á lyklaborðinu þá er hægt að fá límmiða hjá mörgum tölvuverslunum. Snöggt google og ég fann: https://www.tl.is/products/limmidar-a-lyklabord

Re: Íslenskt lyklaborð á mac keypta í UK?

Sent: Þri 06. Jún 2017 16:43
af capteinninn
Takk fyrir svörin, vitiði annars hvernig þetta er gert með tölvurnar sem eru seldar hér á landi, eru þær með sérgerðum lyklaborðum fyrir Ísland?

Re: Íslenskt lyklaborð á mac keypta í UK?

Sent: Þri 06. Jún 2017 17:48
af Opes
capteinninn skrifaði:Takk fyrir svörin, vitiði annars hvernig þetta er gert með tölvurnar sem eru seldar hér á landi, eru þær með sérgerðum lyklaborðum fyrir Ísland?


Já, eru framleiddar með íslensku lyklaborði.