Íslenskt lyklaborð á mac keypta í UK?


Höfundur
capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Íslenskt lyklaborð á mac keypta í UK?

Pósturaf capteinninn » Þri 06. Jún 2017 13:44

Er að spá að kaupa Macbook í UK á næstunni en er að velta fyrir mér hvernig ég tækla að fá íslenska stafi á lyklaborðið.

Get keypt með allskonar lyklaborðsuppsetningu en ekki Íslenskt svo ég velti fyrir mér hvort ég þurfi þá að kaupa límmiða til að líma á lyklaborðið.

Hvernig hafið þið gengið frá þessu ?



Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3838
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskt lyklaborð á mac keypta í UK?

Pósturaf Tiger » Þri 06. Jún 2017 14:26

Já verður að kaupa límmiða, og velja Spanish layout sem er eins og það Íslenska (nema ekki með íslenskum stöfum per se).


Mynd

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskt lyklaborð á mac keypta í UK?

Pósturaf dori » Þri 06. Jún 2017 15:29

UK layout er líka eins og íslenska (ISO) annað en USA layout sem er ANSI.

Ef þú virkilega vilt hafa íslensk tákn á lyklaborðinu þá er hægt að fá límmiða hjá mörgum tölvuverslunum. Snöggt google og ég fann: https://www.tl.is/products/limmidar-a-lyklabord




Höfundur
capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskt lyklaborð á mac keypta í UK?

Pósturaf capteinninn » Þri 06. Jún 2017 16:43

Takk fyrir svörin, vitiði annars hvernig þetta er gert með tölvurnar sem eru seldar hér á landi, eru þær með sérgerðum lyklaborðum fyrir Ísland?




Opes
FanBoy
Póstar: 792
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 12:02
Reputation: 22
Staða: Ótengdur

Re: Íslenskt lyklaborð á mac keypta í UK?

Pósturaf Opes » Þri 06. Jún 2017 17:48

capteinninn skrifaði:Takk fyrir svörin, vitiði annars hvernig þetta er gert með tölvurnar sem eru seldar hér á landi, eru þær með sérgerðum lyklaborðum fyrir Ísland?


Já, eru framleiddar með íslensku lyklaborði.