Fartölva - almenn notkun + leikjaspilun annað slagið


Höfundur
Rumpituski
Fiktari
Póstar: 82
Skráði sig: Sun 27. Maí 2012 21:31
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Fartölva - almenn notkun + leikjaspilun annað slagið

Pósturaf Rumpituski » Þri 07. Mar 2017 10:42

Sælir Vaktarar

Ég vil endilega fá að heyra ykkar sérfræðiálit á fartölvum fyrir litla til miðlungs leikjaspilun og hversu öflugan vélbúnað er þörf á. Budget er top 200 þús. kr.

Ég hef ávallt haft efasemdir um að fartölvur séu rétti vélbúnaðurinn fyrir leikjaspilun, lítið sem ekkert hægt að uppfæra eða breyta samhliða auknum kröfum nýrri leikja. Verðið hefur einnig staðið í mér, hvernig er hægt að réttlæta 400-500 þús. kr. fyrir fartölvu þar sem upplifunin af leikjaspilun er verri en í 150 þús. kr. borðtölvu.
En með fleiri árum á bakinu og minni tíma til aflögu þá hafa kröfurnar minnkað og mér sýnist" að verðið hafi minnkað og gæði vélbúnaðar hafi aukist.

Leikir sem ég spila, stundum, eru
*Fallout 4 - Vegas, 3, 2 og 1.
*Pillars of Eternity - baldurs gate, Icewind dale etc..
*Skyrim
Witcher 1 og 2
*Mass effect 3 og mun kaupa mér nýja þegar hann kemur.
*Darkest Dungeon.

Önnur notkun er tölfræðivinna í Excel og almenn notkun eins og vefráp og videogláp.

Tölvur sem ég hef verið að skoða eru Acer Aspire VX5-591G og þá hvort ég þurfi i5 eða i7 örgjörva og hvort ég þurfi GTX 1050 eða GTX 1050ti skjákort. Og eru þetta yfirleitt traustar tölvur? Þessi týpa og Acer yfirleitt?
https://www.tl.is/product/aspire-vx5-591g-i7-hq-orgjorva-m-8gb-minni-ssd-gtx-1050ti
https://tl.is/product/aspire-vx5-591g-i5-hq-orgjorva-m-8gb-minni-ssd-gtx-1050ti
https://tl.is/product/aspire-vx5-591g-i5-hq-orgjorva-m-8gb-minni-ssd-gtx-1050

Bestu þakkir
Rumpituski ..




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Ótengdur

Re: Fartölva - almenn notkun + leikjaspilun annað slagið

Pósturaf Klemmi » Þri 07. Mar 2017 15:04

Það er spurning hversu mikin mun, ef einhvern, þú myndir finna á milli i5 og i7 örgjörva í leikjum. Hins vegar er það engin spurning að Ti kortið myndi skila þér betri afköstum heldur en non-Ti, en það er spurning hvað þú ættir að vera tilbúinn til að borga mikið fyrir það.

Almennt er ég hrifnari af Lenovo heldur en Acer, myndi því vilja benda á þessa vél, i5 og GTX1050 (ekki Ti), en er með 1TB "auka"disk.
https://www.netverslun.is/T%C3%B6lvur-o ... 805.action

Annars er þetta alveg pæling, ef ég vil spila og njóta leikja, þá get ég ekki gert það í fartölvu. Einnig, ef þú vilt leikjafartölvu, þá er það nokkurn vegin ávísun á að vera með stóra og þunga fartölvu... sjálfur vel ég sæmilega öfluga borðtölvu fyrir leiki og svo netta og létta fartölvu til að hafa á flakkinu/skólanum/fríinu.

T.d. eitthvað á þessa leið, ásamt notaðri leikjaborðtölvu + aukahlutir, ef vel ert fylgst með því sem kemur í sölu þá ætti það að sleppa undir 200þús :)
https://www.netverslun.is/T%C3%B6lvur-o ... 142.action




Höfundur
Rumpituski
Fiktari
Póstar: 82
Skráði sig: Sun 27. Maí 2012 21:31
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Fartölva - almenn notkun + leikjaspilun annað slagið

Pósturaf Rumpituski » Þri 07. Mar 2017 20:32

Takk fyrir svarið Klemmi!

Ég einmitt á borðtölvu með i5 2500 sandy bridge, 8GB ddr3 og Asus GTX 970 strix skjákorti, eina vandamálið með hana er að hún hitnar við ákveðið álag (illa skipulagður kassinn). Eini staðurinn fyrir borðtölvuna núna hins vegar er við sjónvarpið og ég held að hún myndi ekki endast lengi þar með tvo stráka á leikskólaaldri hlaupandi út um allt :)

Ég er sammála þér með Lenovo, er með Lenovo T460s með i7 frá vinnunni og hún er frábær í alla staði. Ég ætla að skoða þessa fartölvu sem þú leggur til og sjá líka hvort þeir í nýherja eigi jafnvel von á samskonar með 1050ti skjákorti innan skamms.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Ótengdur

Re: Fartölva - almenn notkun + leikjaspilun annað slagið

Pósturaf Klemmi » Þri 07. Mar 2017 21:58

Svo ég haldi auðvitað áfram að pimpa síðuna mína... á www.laptop.is geturðu séð gott sem allar fartölvur sem eru til sölu hérlendis, síað niður eftir eiginleikum o.s.frv ;)




Höfundur
Rumpituski
Fiktari
Póstar: 82
Skráði sig: Sun 27. Maí 2012 21:31
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Fartölva - almenn notkun + leikjaspilun annað slagið

Pósturaf Rumpituski » Þri 07. Mar 2017 22:27

Hjó eftir tenglinum, búinn að liggja á henni, flott framtak! :)




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Ótengdur

Re: Fartölva - almenn notkun + leikjaspilun annað slagið

Pósturaf Klemmi » Þri 07. Mar 2017 22:30

Var að keyra scraperinn og hvað heldurðu, Nýherji var að bæta við vél með GTX1050Ti... og i7 + 512GB SSD... kostar smá en er rosaleg.

https://www.netverslun.is/T%C3%B6lvur-o ... 857.action




Höfundur
Rumpituski
Fiktari
Póstar: 82
Skráði sig: Sun 27. Maí 2012 21:31
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Fartölva - almenn notkun + leikjaspilun annað slagið

Pósturaf Rumpituski » Þri 07. Mar 2017 23:02

Hah! Þetta er tölvan, kaupi þessa :) Borgar sig alltaf að fara á vaktina.

Ég vil líka koma því á framfæri að ég tel að vaktin sé alltaf að festa sig meira og meira í sessi sem áhrifavaldur með tilliti til hvaða vöru á að kaupa, verð, þjónustu og orðspor fyrirtækja. Og ég veit að ég er ekki einn um þá skoðun.

Takk fyrir mig!



Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1252
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 129
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Fartölva - almenn notkun + leikjaspilun annað slagið

Pósturaf Minuz1 » Þri 07. Mar 2017 23:03

Ég myndi taka cheap as fuck laptop og uppfæra desktopið.
En það er bara ég...þú ert að eyða 100 þús aukalega í að fá laptop sem getur uppfyllt þínar kröfur í staðinn fyrir að kaupa skjákortið í kassann sem þú átt og laptop sem getur sinnt því sem þú þarft.


Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það


Höfundur
Rumpituski
Fiktari
Póstar: 82
Skráði sig: Sun 27. Maí 2012 21:31
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Fartölva - almenn notkun + leikjaspilun annað slagið

Pósturaf Rumpituski » Þri 07. Mar 2017 23:10

Ah en Minuz1 , þá þyrfti ég nýjan kassa sem kæmist helst inn í sjónvarpsskenkinn með tilheyrandi óvissu með kælingu, hægindastól (sem er ekki pláss fyrir) því sófinn er það langt frá sjónvarpinu að ég sé ekki textann og leyfi frá konunni fyrir hægindastólnum ;)

Með tilliti til þess þá er 100 þús aukalega ásættanlegur fórnarkostnaður fyrir mig..




Risadvergur
Fiktari
Póstar: 80
Skráði sig: Mið 31. Ágú 2016 19:47
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Fartölva - almenn notkun + leikjaspilun annað slagið

Pósturaf Risadvergur » Þri 07. Mar 2017 23:26

Hugsa út fyeir kassann aðeins hérna en miðað við flesta leikina sem þú telur upp er þá ekki bara leikjatölva máluð fyrir leikina. Flestir sru fáanlegir á ps eða xbox og síðan er náttúrulega alltaf steam console.




linenoise
spjallið.is
Póstar: 411
Skráði sig: Þri 12. Júl 2011 16:35
Reputation: 76
Staða: Ótengdur

Re: Fartölva - almenn notkun + leikjaspilun annað slagið

Pósturaf linenoise » Mið 08. Mar 2017 09:22

Ættir að geta sett saman litla leikjatölvu fyrir lítin pening.
Coolermaster RC 130 13K https://www.computer.is/is/product/tolv ... 1-mini-itx,
itx mobo https://kisildalur.is/?p=2&id=3277 24K,
i3-6100 (hann heldur alveg í við 2500 og er betri en ansi margir fartölvu örgjörvar. Klikkað single thread score) 17K,
minni á 10K,
nýr aflgjafi ef þú þarft 10-25K,
skjákortið úr gömlu.

6100 hitnar mjög lítið, þarft í raun bara smá loftflæði gegnum kassann og stock cooling.
Kostnaður ca. 70-80K og mun minna ef gamli aflgjafinn er nothæfur.
Afköstin ekki verri en það sem þú ert með núna og miklu betra en clunky fartölva sem þú þarft að burðast með að eilífu. Það hlýtur að vera hægt að koma nýju tölvunni fyrir bak við sjónvarpið og svo siturðu bara á gólfinu eins og góðu börnin.



Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1577
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Reputation: 67
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Re: Fartölva - almenn notkun + leikjaspilun annað slagið

Pósturaf Halli25 » Mið 08. Mar 2017 09:33

linenoise skrifaði:Ættir að geta sett saman litla leikjatölvu fyrir lítin pening.
Coolermaster RC 130 13K https://www.computer.is/is/product/tolv ... 1-mini-itx,
itx mobo https://kisildalur.is/?p=2&id=3277 24K,
i3-6100 (hann heldur alveg í við 2500 og er betri en ansi margir fartölvu örgjörvar. Klikkað single thread score) 17K,
minni á 10K,
nýr aflgjafi ef þú þarft 10-25K,
skjákortið úr gömlu.

6100 hitnar mjög lítið, þarft í raun bara smá loftflæði gegnum kassann og stock cooling.
Kostnaður ca. 70-80K og mun minna ef gamli aflgjafinn er nothæfur.
Afköstin ekki verri en það sem þú ert með núna og miklu betra en clunky fartölva sem þú þarft að burðast með að eilífu. Það hlýtur að vera hægt að koma nýju tölvunni fyrir bak við sjónvarpið og svo siturðu bara á gólfinu eins og góðu börnin.

Myndi frekar fara í i3-7100, ætti að vera á sama verði og 6100 en betri


Starfsmaður @ IOD


linenoise
spjallið.is
Póstar: 411
Skráði sig: Þri 12. Júl 2011 16:35
Reputation: 76
Staða: Ótengdur

Re: Fartölva - almenn notkun + leikjaspilun annað slagið

Pósturaf linenoise » Mið 08. Mar 2017 09:46

Halli25 skrifaði:Myndi frekar fara í i3-7100, ætti að vera á sama verði og 6100 en betri

Ah, vissi ekki af þessum. Er ekkert vesen að finna ITX mobo sem hentar?

Annað í þessu, þessir nýju örgjörvar eyða svo litlu að það mætti jafnvel íhuga að færa sig í i5 án þess að þetta breytist í einhverja hávaðamaskínu.