Vantar fartölvuráðleggingar


Höfundur
Palm
has spoken...
Póstar: 175
Skráði sig: Þri 09. Sep 2003 21:01
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Vantar fartölvuráðleggingar

Pósturaf Palm » Sun 09. Jan 2005 13:06

Ég er að spá að fá mér ferðavél og vantar smá ráðleggingar hvað er best að gera. Líst ágætlega á DELL vélarnar (hverjir selja þær hér á landi aðrir en Tölvulistinn og EJS?)

Hvaða tölvum mælið þið með og hvað þarf maður að hafa í huga?

Það sem skiptir mig máli er að hún sé allavega: hljóðlát, góð batteriending, skjáupplausn ( meir en 1024x768), létt, ...
Hvað annað þarf maður að spá í?

Hér er ein DELL vél sem mér líst ágætlega á - hverjir eru kostir gallar á þessari og hvaða aðrar sams konar vélar ætti ég að skoða?

Fartölva - Dell Latitude D505 ferðatölva með TV Out (S-VHS)
Örgjörvi - 1.7 GHz Intel PM Centrino með 2MB cache og 400MHz bus
Vinnsluminni - 512MB 333MHz DDR 200pin - stækkanlegt í 1024MB
Harðdiskur - 60 GB Ultra DMA ATA100 harðdiskur
DVDskrifari - DVD+RW Skrifari sem einnig skrifar CD-RW diska
Hljóðkort - Hljóðkort, góðir hátalarar og hljóðnemi
Módem / netkort - Innvært 56K V.92 módem og 10/100 base netkort
Skjákort - 64MB DDR Intel Extreme Graphics II með TV-út
Skjár - 15" SXGA TFT LCD, 1400 x 1050 x 16.7 milljón litir
Lyklaborð - 88 hnappa lyklaborð / DELL Dualpoint snertimús
Stýrikerfi - Windows XP PRO
Þráðlaust net - Dell þráðlaust netkort og loftnet innbyggt í skjáinn 54Mbps
Bluetooth Innbyggt Bluetooth kort
Tengingar - 2x USB 2.0, Firewire, 1xPCMCIA, VGA, SVHS
Þyngd og mál - frá 2.3kg, H 33.1mm x W 338.4mm x D 273mm
Rafhlaða - 6-cell 48Whr allt að 5 tíma ending rafhlöðu
Ábyrgð - 3ja ára ábyrgð á tölvu, 1 árs ábyrgð á rafhlöðu

Allar ráðleggingar vel þegnar...

Palm



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3095
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 443
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf hagur » Sun 09. Jan 2005 13:29

Ég myndi skoða HP nx7010 vélarnar hjá Opnum kerfum. Þær fást líka í fleiri búðum, er ekki alveg með á hreinu hvar samt.

Ég er með c.a ársgamla svoleiðis vél, reyndar aðeins eldri týpu, nx7000.
Hún er með Pentium M 1.5 GHz (Centrino), 15.4" skjá í 1680x1050 upplausn, ATi Radeon 9200 skjákorti, 512mb minni ofl. Ég er hæst ánægður með hana.

nx7010 vélarnar eru komnar með 60-80 gb diska á örgjörva uppí a.m.k 1.8 GHz Dothan. Held líka að þær séu fáanlegar með ATi Radeon 9600 kortum, jafnvel 9700.




einarsig
Gúrú
Póstar: 511
Skráði sig: Fös 18. Jún 2004 22:18
Reputation: 0
Staðsetning: 113 rvk
Staða: Ótengdur

Pósturaf einarsig » Sun 09. Jan 2005 15:15

eina sem ég set útá er : Skjákort - 64MB DDR Intel Extreme Graphics II með TV-út = innbyggt = drasl ;)




Höfundur
Palm
has spoken...
Póstar: 175
Skráði sig: Þri 09. Sep 2003 21:01
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Palm » Sun 09. Jan 2005 18:17

Takk fyrir þessi svör. Væri gaman að fá álit frá fleirum um þetta.

HP nx7010 virðist vera frekar dýr - held um 220 Þ hér á Íslandi en bara um 120 Þ í US (veit án vsk og flutningskostnaðar).

Já var búinn að heyra að skjákortið væri lélegt - er engin leið að skipta því út fyrir eitthvað annað betra - er það ekki hægt?

Palm



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3755
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 121
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Sun 09. Jan 2005 20:09

mæli með að þú verslir þér alienware tölvu :)




einarsig
Gúrú
Póstar: 511
Skráði sig: Fös 18. Jún 2004 22:18
Reputation: 0
Staðsetning: 113 rvk
Staða: Ótengdur

Pósturaf einarsig » Mán 10. Jan 2005 09:00

það eru því miður ekki kominn út skjákort sem mar getur skipt út í ferðatölvum.... þó væri það snilld ef mar gæti keypt svona utanáliggjandi usb 6800 kort ;)



Skjámynd

jericho
FanBoy
Póstar: 788
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Vantar fartölvuráðleggingar

Pósturaf jericho » Mán 10. Jan 2005 09:27

Palm skrifaði:Það sem skiptir mig máli er að hún sé allavega: hljóðlát, góð batteriending, skjáupplausn ( meir en 1024x768), létt, ...
Hvað annað þarf maður að spá í?


Ef þú hafðir hugsað þér að geta notað hana í leiki, þá myndi ég segja að skjákortið skipti mestu máli. Einmitt vegna þess að það er ekki hægt að skipta út skjákorti á ferðavélum, þá ertu fastur með það skjákort sem þú velur þér.
Ég myndi reyna eftir fremsta megni að fá mér a.m.k. 128MB skjákort (t.d. ATi Radeon 9700) en það er þitt að ákveða. Einnig að reyna að fá þér hraðvirkan og stóran harðan disk. Þú getur uppfært minnið á lífsleiðinni o.fl. en þú ert alltaf fastur með sama skjákortið...

gangi þér vel í kaupunum
jericho



5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q


einarsig
Gúrú
Póstar: 511
Skráði sig: Fös 18. Jún 2004 22:18
Reputation: 0
Staðsetning: 113 rvk
Staða: Ótengdur

Pósturaf einarsig » Mán 10. Jan 2005 09:48

fá sér alienware lappa með gforce go6800 korti.... þá verðuru í góðum málum



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6424
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 285
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 10. Jan 2005 11:15

einarsig skrifaði:það eru því miður ekki kominn út skjákort sem mar getur skipt út í ferðatölvum.... þó væri það snilld ef mar gæti keypt svona utanáliggjandi usb 6800 kort ;)


usb er einmit nógu hraðvirkt fyrir sjkákort ;) hehe.. og er enþá að býða eftir USB örgjörfum og minnum..


"Give what you can, take what you need."


einarsig
Gúrú
Póstar: 511
Skráði sig: Fös 18. Jún 2004 22:18
Reputation: 0
Staðsetning: 113 rvk
Staða: Ótengdur

Pósturaf einarsig » Mán 10. Jan 2005 11:20

hehe æji þú veist hvað ég á við ;) nota þá bara einhverskonar ljósleiðara, það ætti vera nóg :)



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6424
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 285
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 10. Jan 2005 11:23

PCI er ekki nóg, og AGP er að verða ekki nóg.. það væri hinsvegar hugsanlegt að búa til 8x/16x PCIe link. svo svipað og er hægt með SCSI. það er bara spurning hvort að stýrikerfi eins og þau eru hönnuð í dag og driverar fyrir skjákortin myndu hreinlega höndla þetta.


"Give what you can, take what you need."


Yank
</Snillingur>
Póstar: 1058
Skráði sig: Mið 29. Des 2004 17:01
Reputation: 0
Staðsetning: www.tech.is
Staða: Ótengdur

Pósturaf Yank » Mán 10. Jan 2005 13:03

æji DELL :cry:

Ég á Acer með AMD 64 3000+ 9600 pro korti virkar fínnt en rafhlaðan mætti endast betur. Það er bæði cpu og kort sem spila þar inní. Reglan er eitthvað á þessa leið ef öflugra skjákort þá þyngri laptop og eyðir meira rafmagni. Ættir að skoða Acer áður en þú ákveður þig komið eitthvað nýtt útlit og flottheit frá því ég keypti.

Svo er annar punktur þegar þú ert að bera saman laptop ekki bara horfa á cpu, hdd og kort. Skoðaðu hleðslutækið og þyngd þess en það getur verið fáránlegur munur á þessu. En þú þarft víst að druslast með það líka.

en svona annars, IBM. HP, Acer, Mitac þau merki sem ég myndi skoða.

Kveðja Yank



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6424
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 285
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 10. Jan 2005 13:58



"Give what you can, take what you need."


einarsig
Gúrú
Póstar: 511
Skráði sig: Fös 18. Jún 2004 22:18
Reputation: 0
Staðsetning: 113 rvk
Staða: Ótengdur

Pósturaf einarsig » Mán 10. Jan 2005 14:34

LOL!!!! þvílík snilld :shock: :lol:



Skjámynd

arnarj
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
Reputation: 7
Staðsetning: 113 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf arnarj » Mán 10. Jan 2005 15:07

Ef þú ert ekki að spá í leikjum þá er þessi dell vél sem þú nefnir MJÖG fín. Annars þarftu að leita annað.




nomaad
has spoken...
Póstar: 198
Skráði sig: Fös 09. Jan 2004 11:06
Reputation: 0
Staðsetning: Á hvolfi.
Staða: Ótengdur

Pósturaf nomaad » Mán 10. Jan 2005 15:34

Þetta er mjög sweet vél (þekki tvo sem eiga svona). Annar hefur reyndar lent í einhverju smá veseni (þurfti að skipta um móðurborð) en annars vinna þær mjög vel.

Þú veist samt að þú ert ekkert að fara að spila neina leiki.


n:\>


sako
Græningi
Póstar: 30
Skráði sig: Fim 20. Maí 2004 11:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf sako » Mið 12. Jan 2005 21:14

Ég á svona vél og get mælt með henni.
Eins og þú segir er skjákortið einni gallin, en ferðavélar eru hvort eð er lélegar leikjavélar og skjákort úreltast mjög fljótt.