Örgjörvi að hitna óvenjulega mikið

Skjámynd

Höfundur
BjarkiB
Of mikill frítími
Póstar: 1947
Skráði sig: Fim 26. Nóv 2009 19:02
Reputation: 15
Staðsetning: C:\Akureyri
Staða: Ótengdur

Örgjörvi að hitna óvenjulega mikið

Pósturaf BjarkiB » Fös 23. Okt 2015 19:16

Góða kvöldið

Er með Acer Aspire V5-552 fartölvu sem er að sýna frekar skrítnar hitatölur á örgjörvanum. Við idle vinnslu er hann að rokka á milli 80-90° C en við 100% vinnslu er hann að maxa alveg uppí 120-130° C án þess að hún drepi á sér. Er nýbúinn að rykhreinsa og skipta um kælikrem á henni. Allar tölur eru fengnar úr HWMonitor. Nú er ég að velta fyrir mig hvort skynjarinn er að sýna vitlausar tölur eða hvað annað gæti verið að?

Mbk. Bjarki.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7082
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1009
Staða: Ótengdur

Re: Örgjörvi að hitna óvenjulega mikið

Pósturaf rapport » Fös 23. Okt 2015 21:29

Þetta er allt of hátt, situr kælingin alveg rétt á örgjörvanum?



Skjámynd

brain
vélbúnaðarpervert
Póstar: 978
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 134
Staða: Ótengdur

Re: Örgjörvi að hitna óvenjulega mikið

Pósturaf brain » Fös 23. Okt 2015 21:38

Mér finnst nú að hún eigi að hafa keyrt sig niður og slöökt á sér við 100-120 gráður.

Nema þetta sé fahrenheit gráður ?



Skjámynd

Höfundur
BjarkiB
Of mikill frítími
Póstar: 1947
Skráði sig: Fim 26. Nóv 2009 19:02
Reputation: 15
Staðsetning: C:\Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Örgjörvi að hitna óvenjulega mikið

Pósturaf BjarkiB » Fös 23. Okt 2015 21:41

rapport skrifaði:Þetta er allt of hátt, situr kælingin alveg rétt á örgjörvanum?


Já hún situr alveg fast á. Hitinn lækkaði eftir að ég skipti um kælikrem en er ennþá alltof hár.

brain skrifaði:Mér finnst nú að hún eigi að hafa keyrt sig niður og slöökt á sér við 100-120 gráður.

Nema þetta sé fahrenheit gráður ?


Já ég hefði haldið það einnig. Hinsvegar virðist þetta ekkert hafa áhrif á vinnslu tölvunnar. Þetta er allt í Celcius.